Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Side 4
4 Helgarblað 22. desember 2017fréttir Lestur DV hefur aukist um 74% á hálfu ári Samkvæmt nýbirtum niður- stöðum Gallup um lestur prentmiðla jókst lestur á DV um tæplega 13% á milli mánað- anna október og nóvember. Lestur DV mældist 12,5% í nóvember en var 11,1% í október. Í apríl var lestur blaðsins 7,2% og hefur hann því aukist um tæp 74% á síð- asta hálfa ári. Hefur lestur blaðsins ekki mælst meiri síðan í mars árið 2014. Starfsfólk DV er ánægt og þakklátt fyrir þessar góðu við- tökur upp á síðkastið og mun sem fyrr leitast við að bæta og styrkja blaðið enn frekar í hverri viku. Sviðin jörð Jóhanns í Já iðnaðarmönnum n Kennitöluflakk og þjófnaðir n Dæmdur fyrir nauðgun og fíkniefnasmygl á tíunda áratugnum Á dögunum var tilkynnt um 126 milljóna króna gjald- þrot fyrirtækis sem áður hét Já iðnaðarmenn. Eig- andi fyrirtækisins, Jóhann Jónas Ingólfsson, hefur margoft komið við sögu lögreglu undanfarna ára- tugi. Hann hefur meðal annars hlotið dóm fyrir nauðgun, þjófnað og innflutning eiturlyfja. Þá flúði hann land á sínum tíma og slapp þannig við afplánun fangelsis- dóms. Í kjölfar áðurnefnds gjald- þrots hefur Jóhann fært rekstur Já iðnaðarmanna yfir á aðra kenni- tölu og heldur áfram rekstri eins og ekkert hafi í skorist. Að sögn birgja skilur Jóhann eftir sig sviðna jörð. Breytti um nafn rétt fyrir gjaldþrot Þann 11. desember síðastliðinn lauk skiptum í þrotabúi Verktaka og endurbóta ehf. Lýstar kröfur voru um 126 milljónir króna en engar eignir fundust í búinu. Fé- lagið hét áður Já iðnaðarmenn ehf. en þann 27. mars á þessu ári, þegar ljóst var að gjaldþrot blasti við, var nafni fyrirtækisins breytt í Verktakar og endurbætur ehf. Fé- lagið var síðan úrskurðað gjald- þrota nokkrum vikum síðar eða þann 12. apríl. Lauk þar með tæp- lega tveggja ára rekstrarsögu fé- lagsins. Eigandi fyrirtækisins, Jóhann Jónas Ingólfsson, er þó hvergi nærri af baki dottinn. Hann hef- ur haldið áfram með rekstur Já iðnaðarmanna á annarri kenni- tölu eins og ekkert hafi í skorist. Þá hefur Jóhann auglýst grimmt eftir starfsmönnum undanfarna mánuði, til dæmis eftir smiðum, málurum, bifvélavirkjum, verk- stjóra og traustum og ábyggileg- um fjármálastjóra. Umsvifin virð- ast því vera talsverð enda óhætt að fullyrða að eftirspurnin eftir iðnaðarmönnum og verktökum hefur sjaldan verið meiri. Aldrei kynnst öðrum eins siðblindingja Já iðnaðarmenn hafa komið að margs konar verktakastarfsemi undanfarin misseri. DV hefur heimildir fyrir því að margar kvartanir vegna starfseminnar hafi borist til eftirlitsaðila undanfarna mánuði. Þá hafi fyrirtækið ver- ið kært til lögreglu vegna meints brots á iðnaðarlögum. Brotin fel- ast í því að ófaglærðir starfsmenn hafi verið að sinna verkefnum sem þeir höfðu engin réttindi til að vinna. Þess konar fúsk hefur orðið til þess að margir viðskiptavinir sitja eftir með sárt ennið eftir viðskipti sín við Já iðnaðarmenn. Þá hafa birgjar einnig orðið illa úti. „Ég er búinn að vera í þessum bransa í þrjátíu ár og ég hef aldrei kynnst öðrum eins siðblindingja,“ segir Ingólfur Steingrímsson, eigandi Kvarna ehf. Félagið leigir meðal annars út vinnupalla fyrir verk- taka og hefur Ingólfur brennt sig á viðskiptum sínum við Jóhann. „Hann skuldar okkur tæplega sex milljónir auk þess sem hann er enn með palla fyrir um tvær millj- ónir króna. Þegar við höfum geng- ið á hann þá vísar hann bara á skiptastjóra þrotabúsins og virðist telja að málið komi sér ekki lengur við,“ segir Ingólfur. Sömu sögu er að segja að af samkeppnisaðila Kvarna, Stoð pallaleigu. „Við höfum unnið saman við að hafa upp á pöllun- um sem Jóhann hefur leigt af okk- ur. Við höfum verið að finna þá um allan bæ þar sem Jóhann er með verk í gangi á nýju kennitölunni,“ segir Ingólfur. Hann fordæmir framgang lögreglu og eftirlits aðila í málinu. „Ég kærði Jóhann fyrir löngu en hann er ekki einu sinni kallaður til skýrslutöku. Á meðan fær hann að halda áfram óáreittur og skilja eftir sig sviðna jörð,“ segir Ingólfur. Nauðgun, eiturlyfjasmygl og tálbeituaðgerð Ef framferði Jóhanns undanfarin misseri er skuggalegt þá er for- tíð hans hið fullkomna myrkur. Hann var fyrst handtekinn fyrir þjófnað árið 1974 en ákæru var frestað skilorðsbundið. Þrem- ur árum síðan fékk hann tvo skil- orðsbundna dóma fyrir þjófnað. Í frétt Pressunnar í september 1992 kemur fram að Jóhann, sem þá var 35 ára gamall, hafi komist yfir tutt- ugu sinnum í kast við lögin á átján árum. Í byrjun tíunda áratugar síð- ustu aldar sat Jóhann í fangelsi vegna dóms sem hann hlaut fyr- ir nauðgun. Nauðgunin átti sér stað í heimahúsi að morgni ný- ársdags árið 1990. Klæddi Jó- hann sofandi konu úr fötun- um og hafði við hana samræði gegn hennar vilja. Hlaut Jóhann sex mánaða óskilorðsbund- inn dóm fyrir ódæðið. Hann sat inni í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg í þrjá mánuði. í afplánuninni kynntist hann afbrotamanninum Steini Ár- manni Stefánssyni og tókst með þeim vinskapur. Steinn Ármann trúði Jóhanni fyrir því að hann ætti von á stórri kókaínsendingu til landsins. Þær upplýsingar ákvað Jóhann að nýta sér til hins ítrasta. Hann var í erfiðri stöðu því í febrúar 1991 hafði hann verið handtekinn með þrjú kíló af hassi. Ákæra í mál- inu hafði verið gefin út og átti Jó- hann því þungan dóm yfir höfði sér. Um leið og hann lauk afplán- un nauðgunardómsins gaf hann sig fram við lögreglu, sagði allt af létta og tók að sér að þykjast ætla að kaupa efnið með það að mark- miði að grípa Stein Ármann með það undir höndum. Áætlunin gekk upp og var málið, sem fékk mikla fjölmiðlaumfjöllun, þekkt sem Stóra – Kókaínmálið. Fram kom að Jóhann hafi freistað þess að fá mildari dóm í hassmáli sínu í staðinn fyrir uppljóstrunina. Ekki verður hér lagt mat á hvort það ætlunarverk Jóhanns hafi tekist en árið 1993 var hann dæmdur í sjö mánaða fangelsi fyrir innflutning á fíkniefnum og kynferðis- brot. Í kjölfarið ákvað Jóhann að yfir- gefa landið. Interpol ekki að standa sig Þann 26. mars 1999 greindi DV síðan frá því að Jóhann væri aftur kominn til Íslands eftir að dómur- inn gegn honum hafði fyrnst. Starfaði hann þá fyrir breskt heildsölufyrirtæki sem lét til sín taka hérlendis. Í frétt blaðsins kom fram að íslensks yfirvöld hefðu leitað til Interpol til þess að hafa uppi á Jóhanni en án ár- angurs. Blaðamaður hafði þá samband við Jóhann og bar undir hann hvort hann hefði vísvitandi flúið land til þess að komast hjá fangelsisvist. Því svaraði Jóhann: „Nei, ég var ekki að því. Það er ekki við mig að sakast ef Interpol nær ekki að sinna sínu starfi.“ Hélt hann því fram að honum hefði aldrei verið birt boðun um af- plánun refsingar og íslensk yfir- völd hefðu auðveldlega getað haft uppi á honum. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Jóhann Jónas Ingólfsson Jóhann hefur ítrekað komist í kast við lögin undanfarna áratugi. STEFÁN HANDTEKINN Í MEXÍKÓ Íslenskur karlmaður, Stefán Ingimar Koeppen Brynjars- son, var í október í fyrra handtekinn í Cancún í Mexíkó grunaður um fíkniefnasmygl. Aldrei hefur verið greint frá handtöku hans á Íslandi en fjallað var um handtökuna erlendis. DV hefur heimildir fyrir því að handtaka hans tengist máli íslenskrar konu sem var eftirminnilega handtekin í Kanada í fyrra með tæpt kíló af kókaíni sem fannst í golfsetti í farangri hennar. Hún var handtekin á Pearson-flugvelli í Toronto þar sem hún millilenti á leið sinni til Íslands frá Cancún. Heimildir DV herma að Stefán Ingimar hafi verið búsettur í Mexíkó um árabil. Hann hlaut einn þyngsta dóm sem fallið hefur á Íslandi í fíkniefnamáli árið 2003. Þá dæmdi Hæstiréttur hann í átta ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnasmygl til Íslands á árunum 1998 til 2001. Hann var dæmdur fyrir að hafa staðið að innflutn- ingi á um sex kílóum af amfetamíni og 300 grömmum af kókaíni. Grímur Grímsson yfirlögreglu- þjón segist í samtali við DV ekki kannast við málið. Hann segir að ef Stefán hefði verið framseldur til Íslands þá væri hon- um kunnugt um málið. Þær upplýsingar fengust hjá utanríkisráðuneytinu að mál hans væri ekki skrá hjá borgaraþjónust- unni. Það þýddi að hann hafi ekki óskað eftir aðstoð íslenskra stjórnvalda. Mál íslensku konunnar vakti mikla athygli í febrúar í fyrra, ekki síst vegna skrautlegra lýsinga íslenskra kvenna sem sögðust hafa verið narraðar í ferðina til Mexíkó. Konurnar þrjár töldu sig þess fullvissar eftir á að hyggja að markmiðið hafi verið að nota þær sem burðardýr án þeirra vitneskju. Heimildarmaður DV sem er nátengdur þeim segir að nafn Stefáns hafi borið á góma. Síðastliðinn nóvember ákvað ákæru- valdið í Kanada að stöðva réttarhöld yfir konunni. Að sögn Penny Her- mann, upplýsingafulltrúa konunglegu kanadísku riddaralögreglunnar, var ákveðið að bíða með ákæru (e. charges stayed). Í kanadísku réttarkerfi þýðir slík ákvörðun yfirleitt að ekki verði dæmt í málinu nema aðstæður breytist.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.