Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Blaðsíða 40
Með allt á hreinu Helgarblað 22. desember 2017KYNNINGARBLAÐ Ræstingar og ráðgjöf er fyrir-tæki sem tjaldar ekki til einnar nætur. Eigandinn, Guðlaugur V. Guðlaugsson, hefur starfað við ræstingar frá árinu 1995 en fyrir- tækið í núverandi mynd var stofnað árið 2010. Fullkominn tækjakostur, stöðugleiki í mannahaldi, mikil þekking og umfram allt langtímaviðhorf til verkefna og þjónustu gera Ræstingar og ráðgjöf að afar traustu fyrirtæki sem viðskiptavinir leita til aftur og aftur. „Þó að við séum litlir þá erum við stórir í því sem við erum að gera,“ segir Guðlaugur, en hann vísar þar annars vegar til þess að starfsmenn fyrirtækisins eru aðeins 3–5 hverju sinni og heildarársverk um fimm. Hins vegar tekur fyrirtækið að sér mörg og margvísleg verkefni og sum mjög stórtæk. Ræstingar og ráðgjöf þjónustar jöfnum höndum lítil og stór fyrirtæki, stofnanir, húsfélög, skóla og leikskóla. Einu hreinsivélar landsins fyrir rúllu- og rennistiga Ræsting og ráðgjöf hefur sterka stöðu á hreingerningamarkaðnum og margvíslega sérstöðu. Hún birtist meðal annars í því að fyrirtækið er eini aðilinn hér á landi sem hefur yfir að ráða hreinsivélum fyrir rúllu- og rennistiga. Þetta eru þýskar há- gæðavélar: „Vélarnar eru vottaðar af flestum stærstu framleiðendum hreingerningavéla fyrir rúllustiga og rennistiga í heiminum,“ segir Guð- laugur. Um er að ræða tvær vélar og Guðlaugur útskýrir muninn á þeim: „Juma Step 100 er ætluð fyrir rúllustiga og þrífur þá í kyrrstöðu, þrífur upp þrepið. Juma Travel 600 er hins vegar ætluð fyrir bæði rennistiga og rúllustiga. Hún er mun hraðvirkari og hægt að bjóða upp á ódýrari hreinsun með henni á meðan Juma Step 100 þrífur ítarlegar og með henni er boðið upp á það sem kallast full hreinsun. Annar kostur við Juma Travel 600 er sá að hægt er að þrífa með henni á meðan stigarnir eru í gangi.“ Með Juma-vélunum þjónustar Ræsting og ráðgjöf Isavia í Leifstöð, Smáralind og Kringluna. Guðlaugur bendir á að nauðsynlegt sé að þrífa rúllu- og rennistiga til að draga úr slysahættu en óhreinindi valda því smám saman að stigarnir verða hálir. Ónýtir gólfdúkar verða sem nýir Rúllu- og rennistigavélarnar eru sannarlega ekki einu vélknúnu tækin sem fyrirtækið hefur yfir að ráða en framúrskarandi tækjakostur er einn af hornsteinunum í rekstrinum. Við gólfvinnu er beitt skúringavélum til að þrífa og öflugum bónleysivélum til að hreinsa upp gamalt bón. Gólfin eru síðan bónuð með höndum. „Við höfum farið þá leið að eyða meiri tíma og gera hlutina vel. Það er undirvinnan sem skiptir höfuðmáli. Rétt eins og enginn vill málara sem þekur ekki nógu vel þá þarf bónið að þekja gólfdúkinn vel til að fylla upp í hann og jafna hann upp. Við höfum til dæmis verið að endurnýja dúka sem höfðu verið úrskurðaðir ónýtir en við höfum náð að hreinsa þá upp og gera sem nýja. Við notum líka vissa tækni til að hreinsa upp gamla bónið án þess að skemma yfirborðið á dúk- unum,“ segir Guðlaugur. Á mynd- um sem fylgja greininni má sjá raunveruleg dæmi um þessi verk – „ónýtan“ gólfdúk fyrir og eftir vinnu Guð- laugs og hans manna. Teppahreinsun og steinteppahreinsun „Við erum mjög stórir í teppahreins- unum fyrir hótel, meðal annars. Ég flyt sjálfur inn efnin sem við notum. Meðal annars flyt ég inn vissar gerðir af duftsápum sem kristallast í teppunum þannig að engar sápuleifar verða eftir og því enduróhreinkast teppin síður. Auk þess bjóðum við upp á óhreinkunar- og blettavörn sem er úðað yfir teppin eftir að við höfum þrifið þau. Vörnin lokar teppunum þannig að eftir hreinsun líta þau út eins og þau komu úr verksmiðjunni upphaflega,“ segir Guðlaugur. Fyrir- tæki hans sérhæfir sig líka í þrifum á steinteppum fyrir smáa sem stóra aðila og þjónustar mörg af stærstu fyrirtækjum landsins í viðhaldi á steinteppum. Tækjakostur – þekking – mannskapur Guðlaugur hefur alltaf lagt höfuðáherslu á að leggja eins mikla vinnu og kostnað og þarf í hvert verk- efni til að skila hágæða vinnu en síður lagt upp úr ágóða af hverju verkefni. Hann telur mikilvægara að efla orðsporið og tryggja við- skiptavinum alltaf toppþjón- ustu: „Þess vegna hringja kúnnarnir í mig aftur og aft- ur,“ segir Guðlaugur og bætir við að sum verkefni gefi af sér á meðan önnur geri það ekki – það er bara eins og gengur. „Í bónvinnu og teppahreinsun erum við í 80–90% tilvika að þjónusta sömu aðilana ár eftir ár,“ segir hann. Áður höfum við drepið á tækjakosti fyrirtækisins sem ávallt er framúrskarandi en Guðlaugur hefur líka verið mjög gæfusamur með starfsfólk: „Ég er svo heppinn með strák- ana sem vinna fyrir mig að þeir þrífa alltaf eins vel og þeir væru að þrífa fyrir sjálfa sig. Ég hef verið með sömu starfsmennina ár eftir ár og því hefur þekking og reynsla viðhaldist í fyrir- tækinu. Viðskiptavinirnir vita því að þeir eru alltaf að fá til sín starfsmenn sem þekkja aðstæður og kunna til verka. Þetta fyrirtæki er ekki rekið með skammtímagróða í huga, ég borga góð laun og allt er hér rekið á háu gæðastigi.“ Nánari upplýsingar má fá á heimasíðunni clean.is, í síma 770- 4630 og með fyrirspurnum á net- fangið gvg@clean.is „Þess vegna hringja kúnnarnir aftur og aftur“ RæSTInG oG RÁðGJöF VEITIR ÞJónUSTU Á HÁU GæðASTIGI FyRiR eFtiR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.