Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Blaðsíða 39
Með allt á hreinuHelgarblað 22. desember 2017 KYNNINGARBLAÐ
Bónstöðvar koma og fara en bónstöðin Hjá Jobba hefur verið starfandi síðan árið
1986 og átti því þrítugsafmæli í
fyrra. Hvernig er slíkt hægt þegar
meðalaldur í bransanum er 2–3 ár?
Svarið er: Gæði, lágt verð og ánægð-
ir viðskiptavinir. Þeir sem fara með
bílinn sinn til Jobba vita að þeir munu
fá toppþjónustu. Bónstöðin vex enn
og dafnar og er núna elsta starfandi
bónstöð landsins.
Reynsla Jobba í bransanum nær
reyndar enn lengra aftur í tímann en
hann starfaði hjá Sveini Egilssyni frá
árinu 1982 og stýrði deild sem sá um
standsetningu, skráningu og þrif á
nýjum bílum. Hann hefur síðan verið
sjálfstætt starfandi frá
árinu 1986.
Helstu þjónustuþættir
sem í boði eru hjá Jobba
eru eftirtaldir: Alþrif, þrif
að innan, þrif að utan og
bónun, teflonbónun, djúp-
hreinsun teppa og sæta,
tjöruþvottur, vélarþvottur,
ryksugun, lakkmössun,
blettun og lakkviðgerðir, og
ýmislegt fleira. Ítarlegar
upplýsingar um þjón-
ustuliðina er að finna á
vefsíðunni hjajobba.is. Þar
eru einnig greinargóðar
upplýsingar um verð.
Fólksbílar almennings eru vitan-
lega algengustu verkefni Jobba en
stöðin tekur líka meðal annars að sér
hreinsun og bónun á
rútum, flutningabílum
og öðrum vinnutækjum.
Enn fremur þrífur Jobbi og bónar
bíla fyrir Suzuki bíla ehf. og fleiri þekkt
fyrirtæki.
Hjá Jobba er staðsett í Skeifunni
17. Stöðin er opin virka daga frá kl. 9
til 17.30 nema föstudaga er opið til
kl. 17. Tímapantanir eru í síma 568-
0230. Þá er einnig tilvalið að senda
töluvpóst á netfangið hjajobba@
simnet.is ef þú vilt bætast í hóp ört
vaxandi og ánægðra viðskiptavina
stöðvarinnar. Því eins og Jobbi segir:
„Við gerum gott betra.“
Heimasíða er, sem fyrr segir:
hjajobba.is.
Engin tilviljun að Hjá Jobba er
elsta starfandi bónstöð landsins
Fólki þykir eðlilega vænt um æðardúnssængurnar sínar enda afskaplega notalegt að
sofa með slíkar ábreiður ofan á sér.
En æðardúnssængur slitna eins og
aðrir veraldlegir hlutir og stundum
fara þær að leka að auki og æðar-
dúnninn getur verið orðið óhreinn.
Margir vita ekki að hér á landi er
hægt að fá þá þjónustu að fá gömlu
slitnu æðardúnssængurnar sínar
góðar á ný. Dóróthea Guðrún Sig-
valdadóttir rekur fyrirtækið Morgun-
roða, sem staðsett er við Borgarnes,
og þar er meðal annars
boðið upp á þá þjónustu að
koma með slitnar æðardúns-
sængur. Æðardúnninn er þá
þveginn og settur í nýtt ver
og fólk fær til baka mjúka,
slétta og fallega æðardúns-
sæng.
„Við þvoum æðardún-
inn, skiptum um dúnver á
gömlum æðardúnssængum
og setjum nýjan æðardún í
dúnver. Einnig seljum við nýjar
æðardúnssængur og merkj-
um æðardúnssængur,“ segir
Dóróthea.
Fyrir utan þessa þjónustu við
sængureigendur sinnir Morgunroði
öllum æðardúnþvotti fyrir fyrirtæk-
ið RR Dúnhreinsun í Borgarnesi.
Dóróthea fær þá æðardúninn til
sín grófhreinsaðan og skilar honum
hreinum til baka svo hann er tilbúinn í
framleiðsluvörur, sængur eða annað.
Dúnþvotturinn er þar í vissum skiln-
ingi hluti af framleiðsluferlinu.
Enn fremur sinnir Morgunroði
dúnþvotti fyrir einstaklinga sem hafa
dúntekju og þurfa að láta þvo dúninn
sinn. Margt dúntekjufólk veit ekki af
þessari þjónustu en hún getur komið
sér afar vel.
Til að kynna sér og nýta sér þjón-
ustu Morgunroða ehf. er best að hafa
samband í síma 893-2928.
Er gamla æðardúns-
sængin þín orðin slitin?
MoRGunRoði EHF. – SÍMi 893-2928