Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Blaðsíða 21
Helgarblað 22. desember 2017 fréttir 21
álagstímanum. „Það var rosalega
mikið að gera í desember og stór
hópur af krökkum sem vann hjá
okkur. Flottir krakkar og skemmti-
legir. Þetta var hræðilega mikil
vinna en skemmtilegur tími.“
Var unnið fram á nótt?
„Fram á morgun!“
Páll rak verslunina allt árið um
kring á neðri hæðinni en leigði
Upplýsingaþjónustu byggingar-
iðnaðarins efri hæðina. „Hann
gerði þannig samninga að þeir
fluttu út í desember og þá var
Liverpool stækkuð fyrir jólin.“ Á
þeim árum voru búsáhöld enn
mjög stór hluti af rekstrinum. „Ég
man eftir því þegar kaffibollarn-
ir komu því þá myndaðist biðröð.
Svo var hann með perlufestar og
ýmislegt skraut frá Tékkóslóvakíu.
Það var alltaf biðröð þegar nýjar
sendingar komu.“
Páll flutti allar vörur inn sjálfur
sem var flókið mál í íslensku hafta-
þjóðfélagi. Fór hann út á sýningar
í Danmörku, Austur-Þýskalandi
og víðar til að kaupa inn. Einnig
var það vandkvæðum bundið að
fá byggingarefni og leyfi fyrir húsið
sjálft. „Hann gat aðeins byggt tvær
hæðir fyrst. Það tók þó nokkuð
mörg ár að byggja það upp í fimm
hæðir.“
Laumuðust til að kaupa byssur
Hvaða leikföng voru vinsælust?
„Ég held að Lego hafi verið vin-
sælast. Við seldum alltaf mikið af
kubbum og fullt af leikföngum sem
eru góð og sígild. Síðan dúkkur og
allt í sambandi við mömmuleiki.“
Margrét var leikskólakennari og
vandaði valið þegar hún pantaði
inn. „Mér þótti óskaplega erfitt
að vera með byssur og Barbie var
ekkert rosalega vinsæl hjá mér á
tímabili. En svo rúnnaðist það nú
af mér.“
Guðjón Magnússon, eigin-
maður Margrétar, skýtur nú kím-
inn inn í: „Friðelskandi foreldrar
sem voru jafnvel búnir að ganga
friðargönguna urðu að gefa eftir
og laumast til þess að kaupa
byssur handa strákunum. Annars
smíðuðu þeir þær sjálfir.“
Vöruúrvalið breyttist hins vegar
alltaf fyrir sumrin. Margrét segir:
„Þá komu útileikföngin. Á þess-
um tíma var til siðs að gefa börn-
um sumargjafir á sumardaginn
fyrsta, sippubönd, bolta, krítar og
húlahringi. Við urðum að passa
upp á að allar þessar vörur væru
komnar í hús fyrir sumardaginn
fyrsta.“
Liverpool var sérstaklega þekkt
fyrir búðargluggana sem íslensk
börn horfðu dreymin inn um og
Margrét segir þá hafa skipt miklu
máli. „Ég lagði mikla áherslu á
gluggann og hafði flottar útstill-
ingarkonur til að sjá um það. Það
var hangið á glugganum. Pabbi var
alltaf með fólk í útstillingum líka.“
Kertasníkir og Soffía frænka
Liverpool var ekki aðeins fyrsta
sjálfsafgreiðsluverslun landsins og
fyrsta alvöru nýmóðins verslunin.
Páll braut blað með því að fá jóla-
sveina til að skemmta börnunum í
desember. Lengst af var það Ólafur
Magnússon frá Mosfelli, sem fræg-
ur var um miðja síðustu öld fyrir
að leika Kertasníki. „Pabbi réð
hann sem jólasvein og hann vakti
mikla kátínu. Hann kunni að tala
við börn og var ekki með einhver
fíflalæti. Kunni að syngja og kunni
texta. Þeir jólasveinar sem síðar
komu voru líka góðir.“
Margrét segir að á þessum
árum hafi Ólafur verið nokkurs
konar andlit verslunarinnar
ásamt leikkonunni Emilíu Jón-
asdóttur sem þekktust var fyr-
ir að túlka hlutverk Soffíu frænku
í uppsetningu Þjóðleikhússins
á Karde mommubænum. „Hún
vann alltaf hjá okkur í desem-
ber. Hún seldi dúkkurnar og gerði
mikla lukku. Hún var sæt kona og
mikill karakter.“
Jólin færðu Liverpool hins
vegar ekki aðeins líf og fjör og pen-
inga í kassann. Vinnan og stressið
var gríðarlegt. „Þar sem við flutt-
um allt inn tókum við áhættu í
vöruvalinu. Það var afskaplegt
stress líka þegar maður var kom-
inn með allar vörurnar í hús í
október eða nóvember, það er
hvort þær myndu falla í kramið.“
Á þessum tíma var líka passað
upp á lítilmagnann. „Pabbi bauð
Hjálpræðishernum að koma og
vera með söfnunarpott fyrir fram-
an verslunina. Þau höfðu alltaf
athvarf hjá okkur, fengu að komast
inn í hlýjuna og þiggja kaffi. Margir
komu gagngert í Liverpool til að
setja í pottinn og ég veit að Hjálp-
ræðisherinn fékk góða innkomu
hjá okkur.“ n
Þar sem börnin héngu á glugganum
Liverpool sem krambúð Í Mjólkurfélagshúsinu Hafnargötu 5.
Búsáhöld seld í tíð Páls Sæmundssonar
„Ég man eftir því þegar kaffibollarnir komu því
þá myndaðist biðröð.“
→ Inni- og útimerkingar
→ Sandblástursfilmur
→ Striga- og
ljósmyndaprentun
→ Bílamerkingar
→ Gluggamerkingar
→ Prentun á símahulstur
→ Frágangur
... og margt fleira
Skoðaðu
þjónustu
okkar á
Xprent.is
SundaBorG 1, reykjavík / SímI 777 2700 / XPrent@XPrent.IS