Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Blaðsíða 31
fólk - viðtal 31Helgarblað 22. desember 2017 Hvað fannst þér um viðtalið fræga? „Hún er keppnismanneskja. Þetta atvik á Íslandsmótinu gerð­ ist í hita leiksins. Hún var rifin í viðtal strax og var ekki búin að ná að kæla sig niður. Þetta var svolítið ósanngjarnt. En þetta kemur fyrir á bestu bæjum og það gera allir mistök. Ég held ekki alltaf kúlinu heldur.“ Erfitt að bera saman íþróttir Altalað er að val á íþróttamanni ársins standi milli Ólafíu og Gylfa Sigurðssonar knattspyrnumanns. Ólafía er varkár að spá fyrir um hver hreppi styttuna. „Ég veit ekki hvernig þeir velja þetta og það er mjög erfitt að velja og bera saman ólíkar íþróttir.“ Þegar viðtalið er tekið er Ólafía nýbúin að vinna titilinn kylfingur ársins í sjötta sinn. En hún hefur aldrei verið kjörin íþróttamaður ársins. Er þetta eitthvað sem skiptir þig máli? „Ég hef farið á verðlauna­ afhendinguna síðustu sex ár, meðal annars til að taka við verð­ launum sem golfari ársins. En mér hefur aldrei dottið í hug að ég gæti orðið íþróttamaður ársins af því að það er oftast sama týpan sem verður fyrir valinu.“ Er ekki ótækt að boltastrákar vinni þetta yfirleitt? „Jú, en ég skil alveg að fótbolta­ strákar vinni þetta oft. Fótbolti er svo ótrúlega vinsæl íþrótt. Alltaf kemur upp umræðan um hvort verðlaunin eigi að vera kynjaskipt eða skipt í hópíþróttir og einstak­ lingsíþróttir. Þetta er flókið mál.“ Jafnvel brúðkaup á næsta ári Eftir grunnskóla gekk Ólafía í Verzlunarskólann í tvö ár og hélt síðan út til Bandaríkjanna í há­ skóla. Hún nam við Wake For­ est­skólann í Norður­Karólínu og bjó ein. Þar kynntist hún unnusta sínum, Thomas Bojanowski frá Þýskalandi. Neistaði strax á milli ykkar? „Já. Hann kom í skólann seint í janúar árið 2012 og í mars vorum við byrjuð saman. Hann var þá í hlaupaliði skólans.“ Ertu ekkert að kenna honum golf? „Hann er byrjaður í golfi en hefur ekkert náð að æfa sig eða spila mjög mikið af því að hann er alltaf með mér.“ Thomas rekur fyrirtæki sem hjálpar ungum íþróttamönnum, meðal annars nokkrum Íslending­ um, að fá skólastyrki í Bandaríkjunum. Hann hefur einnig verið kylfuberi hjá Ólafíu á mótum. Er ekki erfitt að vinna svo náið með unnusta sínum? „Jú, í byrjun. En síðan lærðum við bæði á það. Hann vissi til dæmis ekki hvernig ætti að bregð­ ast við ef mér gekk illa og var pirruð. Hann skammaði mig stund­ um og það gerði mig enn þá pirraðri. En núna veit hann að stundum þarf ég að fá að pústa og svo er það búið.“ Ólafía og Thomas hafa verið trúlofuð í tvö ár og hún segir brúð­ kaup hugsanlega í kort­ unum á næsta ári. „Ef ég næ að skipuleggja það, en það er erfitt að finna tíma. Ég er bók­ uð á þriðja tug móta en það eru nokkrar frívikur og ég gæti gert það. Ég er að skoða þetta.“ En barneignir? „Einhvern tímann í framtíð­ inni. Fyrst langar mig að ná aðeins lengra í golfinu.“ Fannst hún ábyrg fyrir slysi Þegar Ólafía var á síðasta ári í há­ skólanámi lenti Thomas í slysi sem hafði mikil áhrif á þau bæði. „Við vorum að grilla og ég var að reyna að kveikja á grillinu en kunni ekkert á það. Þegar Thomas minn ýtti á takkann til að kveikja á grillinu fékk hann eldsprengingu í andlitið. Hann brenndist illa og við fórum strax upp á bráðamót­ töku. Eftir þetta var hann alltaf hjá læknum, með umbúðir úti um allt og andlitið á honum skelfilega illa farið.“ Var þetta mikið áfall? „Þetta var alveg skelfilegt og ég kenndi sjálfri mér mikið um þetta, af því að ég var að fikta í grillinu og ef hann hefði gert þetta sjálfur þá hefði þetta aldrei gerst. Ég átti mjög erfitt. Það gerist eitthvað í líkamanum þegar þú færð svona mikið sjokk. Ég þurfti að leita til sálfræðings út af þessu og mér leið eins og ég væri orðin þunglynd. Ég vildi ekki tala um þetta við neinn og vildi ekki hitta fólk. Þetta var ákveðinn tímapunktur í lífi mínu en ég komst yfir þetta og varð sterkari fyrir vikið.“ En hann kenndi þér ekkert um þetta? „Nei nei, það var bara ég. Það var sama hvað fólk sagði við mig, ég gat ekki breytt hvernig mér leið. Núna er allt í lagi með and­ litið, það greri mjög vel. En hann er með stórt ör á fætinum.“ Bloggaði um stóra kjálkaaðgerð Jólin í ár verða Ólafíu mun þægi­ legri en jólin í fyrra þegar hún var að jafna sig eftir stóra kjálkaaðgerð. „Þegar ég var um sextán ára tók ég vaxtarkipp og neðri kjálkinn fór fram úr þeim efri. Ég var með smá undirbit af því að efri kjálk­ inn er svo lítill. Af því að þetta gerðist svo seint var ekki hægt að laga þetta með teinum.“ Hún segir afar sjaldgæft að þetta gerist og vegna núnings hefðu tennur hennar eyðst með tímanum. „Að vera með undirbit gerði mig að­ eins grófari í andlitinu. En ég fór ekki í þessa aðgerð út af því. Mér hefði sjálfri aldrei dottið í hug að fara í þessa aðgerð fyrr en tann­ læknirinn minn benti mér á að gera þetta. Annars hefðu tennurn­ ar orðið að stubbum þegar ég væri orðin fimmtug.“ Aðgerðin var mjög umfangs­ mikil. Beinið í efri kjálka var skorið í gegnum nefið og kjálkinn dreg­ inn fram. „Þeir flettu húðinni af og þurftu að sauma nefið aftur á.“ Ólafía var lengi að jafna sig eftir aðgerðina, léttist og missti mikinn mátt. „Ég var ekki með neina vöðva í munninum og varð mjög smeyk. Það tók nokkrar vikur að vinna upp kraftinn aftur. Í byrjun gat ég bara opnað munninn og þurfti að kyngja matnum beint. Það var nógu erfitt bara að opna munninn. Ég var á 100 prósent vökvafæði í fjórar vikur en síðan gat ég borðað aðeins þykkari mat.“ Hún gat lengi vel ekki farið fram úr rúminu og sá fram á að leiðast mikið. Þess vegna tók hún upp á því að blogga um aðgerðina og batann á heimasíðu sinni und­ ir heitinu Olafia Bites Back. „Mig langaði að leyfa fólki að fylgjast með og ef einhver annar væri að fara í svona þá gæti viðkomandi séð mitt ferli og verið undirbúinn.“ En hafði þetta áhrif á atvinnu- mennskuna? „Ég gat ekki hreyft mig mikið og snerti ekki golfkylfu í einn og hálfan mánuð. Fyrsta mótið eftir aðgerð var á Bahamaeyjum og ég fékk aðeins viku til að undirbúa mig. En ég stóð mig vel þar og náði niðurskurðinum. Það var vonum framar. Stundum er gott að fara inn í mót með engar væntingar því þá er engin pressa. Það vita allir að ég var nýbúin í kjálkaaðgerð og það gerist sem gerist.“ Playboy-fyrirsætur með milljón á Instagram #MeeToo-byltingin hefur ekki far- ið fram hjá neinum þar sem konur segja reynslusögur af kynferðislegu ofbeldi, áreitni og mismunun. Hef- ur þú tekið eftir slíku í golfheimin- um? „Ég veit ekki um marga sem hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni. En það er alveg klassískt í íþróttaheiminum að fá vissar spurningar af því að þú ert kona – spurningar sem karlmenn myndu aldrei fá.“ Ólafía segist taka eftir karl­ rembu og staðalímyndum við val á boðskeppendum á mótum. „Við Valdís höfum báðar náð miklum árangri í golfi en svo er öðrum boð­ ið á mót. Ég tók sérstaklega eftir þessu þegar ég var á Evrópumóta­ röðinni. Þegar þú ert á fyrsta ári þá kemstu í fá mót og þú þarft að sækjast eftir boðum líka. Stundum voru einhverjar gellur sem líta út eins og Playboy­fyrirsætur, með milljón fylgjendur á Instagram en ekkert sérstaklega góðar í golfi, að fá boð í mótið en ekki við. Þá sáum við að þetta getur verið svolítill karlrembuheimur sem við búum í.“ Hún segir þetta þó mun sann­ gjarnara á LPGA. „Þar er valið eft­ ir getustigi en ekki hversu fallegur þú ert eða hversu marga fylgjend­ ur á samfélagsmiðlum þú hefur.“ n „ Þeir flettu húðinni af og þurftu að sauma nefið aftur á m y n d Ir s Ig tr y g g u r a r I Valdi golfið Ólafía æfði badminton og handbolta en valdi þó golfið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.