Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Blaðsíða 34
Með allt á hreinu Helgarblað 22. desember 2017KYNNINGARBLAÐ Albertsson ehf. er hreingern-ingarþjónusta sem sinnir al-mennum þrifum fyrir húsfélög, heimili og fyrirtæki auk flutningsþrifa. Að sögn starfsmanns fyrirtækisins, Ölmu Haraldsdóttur, dreifast verkefni nokkuð jafnt á milli þessara sviða en í heildina er mjög mikið að gera og verkefnum fer sífellt fjölgandi. Albertsson ehf. hefur viðamikla reynslu af ræstingum og almennum þrifum og er með mörg fyrirtæki í föstum viðskiptum. Athygli vekur að á heimasíðunni albertsson.is er hægt að panta tilboð í öll verkefni sér að kostnaðarlausu. Meðal annars er hægt að panta heimilisþrif í áskrift og að sögn Ölmu færist slíkt í vöxt hjá önnum köfnu fólki. Flutningsþrif fara líka sífellt vaxandi og margir sem eru að skipta um heimili kjósa að losna við þá vinnu enda er hún mikil: „Þetta eru líklega mest krefjandi verkefnin, það þarf að taka alla veggi, dyrakarma, glugga að innan og alla innbyggða skápa og skúffur,“ segir Alma. Starfsmenn hjá Albertsson eru mismargir eftir árstíma. „Þetta er í grunninn fjölskyldufyrirtæki og margir úr fjölskyldunni eru starfsmenn. Við leggjum áherslu á persónulega þjón- ustu og leggjum þunga áherslu á að allir viðskiptavinir séu ánægðir. Það er hins vegar ekkert launungarmál að við þurfum að fjölga starfsfólki á næstunni og erum að leita að góðu starfsfólki.“ Albertsson kappkostar að fylgja öllum verkefnum eftir til að viðhalda persónulegri þjónustu við sína við- skiptavini svo gæðin séu í hámarki. Fyrirtækið hefur yfir að ráða góð- um tækjakosti og er allur vélbúnaður nýr, til dæmis skúringarvélar og svo- kallaðar gufuvélar sem ná vel óhrein- indum af gólfflísum. Albertsson er til húsa á Sel- tjarnarnesi og af því leiðir að mörg verkefni eru á Nesinu og í Vestur- bænum. Hins vegar nær starfssvæð- ið alveg yfir höfuðborgarsvæðið og raunar víðar því Alma fer stundum upp í sveit og þrífur sumarbústaði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Nánari upplýsingar eru á vefsíð- unni albertsson.is. Símanúmer er 867-0754. Persónuleg þjónusta við ánægða viðskiptavini AlbertSSoN eHF. Árið 2005 keyptu hjónin Sig-fríður eggertsdóttir og Guðjón Valgeir Guðjónsson sér hús á Hvammstanga. Í núverandi bílskúr heimilisins var á þessum tíma rekin þvottaþjónusta með þremur þvotta- vélum, tveimur þurrkurum og strau- vél. Hjónin tóku yfir þessa starfsemi, sem var aðallega þvottur fyrir sjúkra- húsið á staðnum, og sinntu henni í aukavinnu fyrstu árin, en síðan hefur starfsemin vaxið gífurlega. Starfs- menn fyrirtækisins síðasta sumar voru 22 talsins en átta starfsmenn, að þeim hjónum meðtöldum, vinna allt árið hjá fyrirtækinu. „Maðurinn minn sagði upp starf- inu sínu fyrir tveimur árum og ég töluvert fyrr,“ segir Sigfríður en þau hjónin helga fyrirtækinu alla starfs- krafta sína. „Ferðaþjónustan sprakk út hérna í héraðinu eftir 2011 og síðan hefur verið geysilega mikið að gera. Við höfum lítið sem ekkert auglýst heldur einfaldlega reynt að svara þeirri eftirspurn sem hefur streymt til okkar,“ segir Sigfríður. Að sögn hennar teygir starfsemin sig út fyrir Hvammstanga, til hótela í sveitum, t.d. í Víðidal, auk þess sem eitt verk- efni er í gangi á Sauðárkróki. Í dag notar Perlan fjórar þvottavél- ar, fjóra þurrkara og tvær strauvélar. Meginstarfsemi Perlunnar er þvottur fyrir hótel og minni gisti- staði auk þrifa á hótelum og gisti- íbúðum. Perlan þvær einnig þvott fyrir einstaklinga sem þess óska en meginþungi starfseminnar er fyrir- tækjaþjónusta. „Við höfum auk þess bætt við okkur þrifum fyrir grunnskólann hérna og hluta af sjúkrahúsinu. Auk þess höfum við til kvöldmat á sjúkrahúsinu,“ segir Sigfríður. Sem fyrr segir er mun meira að gera á sumrin en ferðamanna- vertíðin er þó farin að teygja sig inn í haustið og var töluvert að gera í október og nóvember. „Það er líka gott að halda hótel- unum inni allt árið þó að minna sé að gera yfir veturinn, því þá heldur maður yfirsýninni betur.“ Í hópi sumarfólksins er nokkuð um framhaldsskólanema sem koma til starfa hjá Perlunni ár eftir ár. einnig er eitthvað um erlent starfsfólk hjá fyrirtækinu og segist Sigfríður fá margar fyrirspurnir að utan hjá fólki sem langar til að starfa hjá Perlunni. Perlan er staðsett að Höfðabraut 34, Hvammstanga. Allar frekari upp- lýsingar eru veittar í síma 896-3530. Aukavinnan varð að öflugu fyrirtæki ÞVottAHúSið PerlAN, HVAMMStANGA Hluti af vöskum hópi Perlunnar Frá vinstri: Ólína, Stefanía, lena, Margrét og Þóranna. Sigfríður með dótturinni Önnu Sveinborgu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.