Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Blaðsíða 12
12 Helgarblað 22. desember 2017fréttir F rancisca Essien, 27 ára kona frá Gana, fæddi son sinn, Magnús Angel Essien, á Landspítalanum fyrir fjórum árum. Þar sem hún var ekki sjúkra­ tryggð fékk hún háan reikning sem hún gat ekki borgað þó að sonur hennar sé íslenskur ríkisborgari. Sá reikningur hefur nú vaxið með hverju árinu og Landspítalinn hef­ ur sýnt lítinn samningsvilja. 346 þúsund krónur fyrir fæðingu Francisca kom hingað til lands árið 2012 en fyrir þann tíma hafði hún búið á Spáni í þrjú eða fjögur ár. Af hverju komstu hingað? „Ég veit það ekki. Einn daginn pakkaði ég í tösku og sagðist vera farin. Svo var ég allt í einu hér. Ég þekkti engan þegar ég kom hingað en var fljót að kynnast mörgu fólki.“ Hún kynntist íslenskum manni sem hún var í sambandi með en það varði stutt. Ávöxtur sambands­ ins var Magnús sem fæddist í mars árið 2013. Francisca er ganverskur ríkisborgari og ekki sjúkratryggð og því fékk hún reikning upp á 346 þúsund krónur fyrir fæðingar­ þjónustu – upphæð sem hún réð engan veginn við að borga. „Þeir vildu að ég borgaði reikninginn en ég sagði þeim að ég gæti það ekki.“ Um tíma gat hún ekki unnið því hún fékk ekki gæslu fyrir Magnús en síðar vann hún nokk­ ur hlutastörf yfir skemmri tíma. Hún reyndi að borga eitthvað inn á skuldina en það dugði ekki fyrir vöxtunum. „Stundum gat ég borg­ að fimm þúsund og stundum tíu þúsund.“ Francisca, sem býr í fé­ lagslegri íbúð á vegum Kópavogs­ bæjar, hafði yfirleitt ekki nema 120 þúsund krónur á mánuði. Sett á svartan lista lánastofnana Á Íslandi er lítið samfélag Gan­ verja og leitaði hún til þessara vina sinna um ráð. Henni var bent á að fara með málið til umboðsmanns barna. „Hjá umboðsmanni fékk ég þau svör að ég yrði að borga það sem ég gæti í að minnsta kosti tvö ár og svo kæmi eitthvað í ljós.“ Nú þegar hefur Francisca náð að greiða niður 85 þúsund krónur en reikningurinn hefur verið sendur til TCM innheimtuþjónustu. Fyrir jólin fékk hún innheimtubréf og er skuldin komin upp í 581 þúsund. Ert þú áhyggjufull um jólin? „Já, sérstaklega þegar ég fæ innheimtubréf eins og þetta. Þau koma á hálfs árs fresti. Þegar ég fæ þau hugsa ég með mér hvernig í ósköpunum ég eigi að geta borg­ að.“ Francisca er komin á svart­ an lista hjá lánastofnunum og það veldur henni miklum vandræð­ um. „Ég get ekkert gert. Ég get ekki einu sinni fengið fyrirfram greitt greiðslukort.“ Árið 2015 eignaðist hún ann­ an son, Thor Kofi, en hún er enn einstæð. Francisca er nú í vinnu hjá Hótel Sögu og fær aðstoð vina sinna með synina tvo. Vildi nota jólapening til að greiða upp skuldina Faðir Franciscu býr í Bretlandi og hann sendi henni nýverið 300 þús­ und krónur til að nota í jólagjafir, mat og fleira. Hún vill hins vegar nota þennan pening til þess að greiða upp skuldina. Vinir henn­ ar voru reiðubúnir að bæta við það sem upp á vantaði í uppruna­ legu skuldina en vaxtagreiðslurnar eru vandamálið. „Mér var sagt að ef ég borgaði þessar 350 þúsund krónur þyrfti ég samt að borga helminginn af vöxtunum. Loks­ ins hef ég peninga til að borga reikninginn en vextirnir eru orðn­ ir of háir þannig að ég yrði áfram í skuld sem ég get ekki greitt upp. Ég sagði að ég gæti aldrei borgað þetta upp. Þótt ég fengi tíu ár.“ Hún segir það mjög skrítið að Landspítalinn vilji ekki taka við þessari greiðslu frekar en engu. „Ef ég fæ ekki að nota þennan pening til að hreinsa upp skuldina nota ég hann að sjálfsögðu frekar til að halda upp á jólin fyrir syni mína.“ Móðir ber ein fjárhagslega ábyrgð á fæðingu Málið vekur upp þá spurningu hvort Magnús, sem íslenskur ríkis­ borgari, eigi ekki rétt á að fæðast án þess að þurfa að greiða fyrir það. Anna Baldursdóttir hjá Landspít­ alanum segir að það sé ekki sjálf­ gefið að íslensk börn séu sjúkra­ tryggð en að Sjúkratryggingar Íslands setji þær reglur en ekki Landspítalinn. „Öll börn eiga rétt á að fæðast en reglurnar snúa að því hverjir séu sjúkratryggðir og hverj­ ir ekki. Það skiptir engu máli hvers lenskir þeir eru. Börn verða ekki sjálfkrafa sjúkratryggð við fæðingu ef foreldrarnir eru það ekki.“ Anna segir jafnframt að faðir­ inn beri enga fjárhagslega ábyrgð á fæðingunni sjálfri. „Konan kem­ ur til fæðingar og hún fær þjón­ ustuna. Margir átta sig ekki á þessu og erfitt fyrir fólk að lenda í þessu, alveg glatað.“ Gangið þið hart gegn fólki í slík- um tilvikum eða sýnið þið samn- ingsvilja? „Það verður enginn rúinn inn að skinni hér. Yfirleitt er farið í ein­ hvers konar mildar aðgerðir þar sem reynt er að semja um þessi mál. Þetta fer í innheimtuferli, en ef einstaklingurinn sýnir greiðslu­ og samningsvilja þá er samið um þetta. Síðan er hægt að sækja um niðurfellingu við sérstakar að­ stæður. Það er nefnd hjá okkur sem skoðar slík mál. Við afskrifum milljónir á hverju ári.“ Anna segist ekki vita hvort einstaklingar lendi á svörtum lista lánastofnana í slíkum tilvikum. n n Háir vextir n Á svörtum lista og getur ekkert gert n Mæður borga fæðingar Rukkuð um hálfa milljón fyRiR að fæða son á íslandi Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is „Stundum fimm þúsund og stundum tíu þúsund Francisca með sonum sínum Áhyggjufull um jólin. Mynd SiGtryGGur Ari Fiskur er okkar fag - Staður með alvöru útsýni Opið allt árið, virka daga, um helgar og á hátíðisdögum Duusgata 10, Keflavík - Sími 421 7080 - duus@duus.is - Opið frá kl. 10:30-23:00 alla daga Kvöldverðir frá 17-22 Skötuhlaðborð 23. desember
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.