Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Blaðsíða 40
Með allt á hreinu Helgarblað 22. desember 2017KYNNINGARBLAÐ
Ræstingar og ráðgjöf er fyrir-tæki sem tjaldar ekki til einnar nætur. Eigandinn, Guðlaugur
V. Guðlaugsson, hefur starfað við
ræstingar frá árinu 1995 en fyrir-
tækið í núverandi mynd var stofnað
árið 2010. Fullkominn tækjakostur,
stöðugleiki í mannahaldi, mikil þekking
og umfram allt langtímaviðhorf til
verkefna og þjónustu gera Ræstingar
og ráðgjöf að afar traustu fyrirtæki
sem viðskiptavinir leita til aftur og
aftur. „Þó að við séum litlir þá erum
við stórir í því sem við erum að gera,“
segir Guðlaugur, en hann vísar þar
annars vegar til þess að starfsmenn
fyrirtækisins eru aðeins 3–5 hverju
sinni og heildarársverk um fimm.
Hins vegar tekur fyrirtækið að sér
mörg og margvísleg verkefni og sum
mjög stórtæk. Ræstingar og ráðgjöf
þjónustar jöfnum höndum lítil og stór
fyrirtæki, stofnanir, húsfélög, skóla og
leikskóla.
Einu hreinsivélar landsins fyrir rúllu-
og rennistiga
Ræsting og ráðgjöf hefur sterka
stöðu á hreingerningamarkaðnum
og margvíslega sérstöðu. Hún birtist
meðal annars í því að fyrirtækið er
eini aðilinn hér á landi sem hefur yfir
að ráða hreinsivélum fyrir rúllu- og
rennistiga. Þetta eru þýskar há-
gæðavélar: „Vélarnar eru vottaðar
af flestum stærstu framleiðendum
hreingerningavéla fyrir rúllustiga og
rennistiga í heiminum,“ segir Guð-
laugur. Um er að ræða tvær vélar og
Guðlaugur útskýrir muninn á þeim:
„Juma Step 100 er ætluð fyrir
rúllustiga og þrífur þá í kyrrstöðu,
þrífur upp þrepið. Juma Travel
600 er hins vegar ætluð fyrir bæði
rennistiga og rúllustiga. Hún er mun
hraðvirkari og hægt að bjóða upp á
ódýrari hreinsun með henni á meðan
Juma Step 100 þrífur ítarlegar og
með henni er boðið upp á það sem
kallast full hreinsun. Annar kostur
við Juma Travel 600 er sá að hægt
er að þrífa með henni á meðan
stigarnir eru í gangi.“
Með Juma-vélunum þjónustar
Ræsting og ráðgjöf Isavia í Leifstöð,
Smáralind og Kringluna. Guðlaugur
bendir á að nauðsynlegt sé að þrífa
rúllu- og rennistiga til að draga úr
slysahættu en óhreinindi valda því
smám saman að stigarnir verða hálir.
Ónýtir gólfdúkar verða sem nýir
Rúllu- og rennistigavélarnar eru
sannarlega ekki einu vélknúnu tækin
sem fyrirtækið hefur yfir að ráða en
framúrskarandi tækjakostur er einn
af hornsteinunum í rekstrinum. Við
gólfvinnu er beitt skúringavélum til að
þrífa og öflugum bónleysivélum til að
hreinsa upp gamalt bón. Gólfin eru
síðan bónuð með höndum.
„Við höfum farið þá leið að eyða
meiri tíma og gera hlutina vel. Það er
undirvinnan sem skiptir höfuðmáli.
Rétt eins og enginn vill málara sem
þekur ekki nógu vel þá þarf bónið að
þekja gólfdúkinn vel til að fylla upp í
hann og jafna hann upp. Við höfum
til dæmis verið að endurnýja dúka
sem höfðu verið úrskurðaðir ónýtir en
við höfum náð að hreinsa þá upp og
gera sem nýja. Við notum líka vissa
tækni til að hreinsa upp gamla bónið
án þess að skemma yfirborðið á dúk-
unum,“ segir Guðlaugur. Á mynd-
um sem fylgja greininni má sjá
raunveruleg dæmi um þessi
verk – „ónýtan“ gólfdúk
fyrir og eftir vinnu Guð-
laugs og hans manna.
Teppahreinsun og
steinteppahreinsun
„Við erum mjög
stórir í teppahreins-
unum fyrir hótel,
meðal annars. Ég
flyt sjálfur inn efnin
sem við notum.
Meðal annars flyt
ég inn vissar gerðir
af duftsápum sem
kristallast
í teppunum þannig
að engar sápuleifar
verða eftir og því
enduróhreinkast
teppin síður. Auk
þess bjóðum við
upp á óhreinkunar-
og blettavörn sem
er úðað yfir teppin
eftir að við höfum
þrifið þau. Vörnin
lokar teppunum
þannig að eftir
hreinsun líta þau út
eins og þau komu
úr verksmiðjunni
upphaflega,“ segir
Guðlaugur. Fyrir-
tæki hans sérhæfir
sig líka í þrifum á steinteppum fyrir
smáa sem stóra aðila og þjónustar
mörg af stærstu fyrirtækjum landsins
í viðhaldi á steinteppum.
Tækjakostur – þekking –
mannskapur
Guðlaugur hefur alltaf
lagt
höfuðáherslu á að leggja eins mikla
vinnu og kostnað og þarf í hvert verk-
efni til að skila hágæða vinnu en síður
lagt upp úr ágóða af hverju verkefni.
Hann telur mikilvægara að efla
orðsporið og tryggja við-
skiptavinum alltaf toppþjón-
ustu:
„Þess vegna hringja
kúnnarnir í mig aftur og aft-
ur,“ segir Guðlaugur og bætir
við að sum verkefni gefi af sér
á meðan önnur geri það ekki
– það er bara eins og gengur.
„Í bónvinnu og teppahreinsun
erum við í 80–90% tilvika að
þjónusta sömu aðilana ár eftir
ár,“ segir hann.
Áður höfum við drepið á
tækjakosti fyrirtækisins sem
ávallt er framúrskarandi en
Guðlaugur hefur líka verið mjög
gæfusamur með starfsfólk:
„Ég er svo heppinn með strák-
ana sem vinna fyrir mig að þeir
þrífa alltaf eins vel og þeir væru að
þrífa fyrir sjálfa sig. Ég hef verið
með sömu starfsmennina ár
eftir ár og því hefur þekking
og reynsla viðhaldist í fyrir-
tækinu. Viðskiptavinirnir vita
því að þeir eru alltaf að fá til
sín starfsmenn sem þekkja
aðstæður og kunna til verka.
Þetta fyrirtæki er ekki rekið
með skammtímagróða í huga,
ég borga góð laun og allt er
hér rekið á háu gæðastigi.“
Nánari upplýsingar má fá á
heimasíðunni clean.is, í síma 770-
4630 og með fyrirspurnum á net-
fangið gvg@clean.is
„Þess vegna hringja
kúnnarnir aftur og aftur“
RæSTInG oG RÁðGJöF VEITIR ÞJónUSTU Á HÁU GæðASTIGI
FyRiR eFtiR