Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Síða 8
8 Helgarblað 22. desember 2017fréttir
J
ólin eru að ganga í garð.
Fólk þeytist um til að kaupa
jólagjafir og hátíðarmatinn.
Spennan magnast meðal
barna og jólafríið nálgast óðum.
Börn bíða full eftirvæntingar. Sum
börn koma frá fjölskyldum sem
eiga um sárt að binda. Þau koma
nestislaus í skólann og hafa ekki
efni á jólamat í skólanum.
Undanfarið hefur verið mik
il umræða um fátækt á Ís
landi. DV hafði samband við
kennara á Íslandi og ræddi við
tvo þeirra. Það sem stóð upp
úr samræðunum var að báð
ir kennararnir sögðu að börn
væru alltaf tilbúin að deila nesti
sínu með þeim sem minna mega
sín.
Börnin deila alltaf með sér
Einn kennari sem blaðamaður
ræddi við er umsjónar
kennari á höfuðborgar
svæðinu. Sá kennari
segir að það séu
ávallt nokkur börn
í hverjum bekk
sem koma nestis
laus í skólann en
kennarar fylgjast
vel með þeim.
Eru mörg börn sem koma
nestislaus í skólann?
„Ekki mörg börn. Af 21 barni
eru tvö til þrjú börn nestislaus.“
Veistu hvort það sé svipað og í
öðrum bekkjum?
„Ég held maður gæti búist við
að það séu til um eitt til þrjú börn
í hverjum bekk sem koma nestis
laus í skólann. Í öllum bekkj
um sem ég hef kennt hafa ver
ið einhver nestislaus börn.“
Eru þessi börn í matar
áskrift í hádeginu?
„Börnin eru ekki nestislaus
alla daga. En einn nemandi er
oftar nestislaus og ég fylgist með
honum. Sá nemandi er í matar
áskrift, annar er í mataráskrift sem
félagsþjónustan borgar.
Þegar kennarar taka eftir að
börn eru ekki með nesti og fá ekki
að borða í hádeginu þá láta þeir fé
lagsþjónustuna vita sem grípur þá
inn í og greiðir fyrir mataráskrift.“
Er erfitt fyrir börnin sem eru
nestislaus að sjá önnur börn borða
í nestistímanum?
„Stundum nota börnin þá af
sökun að þau séu ekki svöng. En
alltaf ef ég annaðhvort tek eftir að
barn sé nestislaust eða það segir
mér að það sé nestislaust þá spyr
ég allan bekkinn hvort einhver sé
ekki með aukanesti sem má deila.
Börnin eru alltaf tilbúin að deila
með sér. Þannig að ekkert barn
þarf að vera svangt.
Í gegnum árin hefur það gerst að
enginn geti deilt með sér eða barnið
borðar ekki það sem er í boði. Þá
hef ég farið á kaffistofu kennara og
sótt eitthvað þar að borða, sem ég
skrifa síðan á skólann.
Maður fylgist með börnunum
og ég held að kennarar geri það al
mennt. Maður myndi aldrei láta
barn sitja svangt.“
Hvernig er jólamatnum ykkar
háttað?
„Börn sem eru í áskrift fá jóla
mat. Svo er hægt að kaupa miða á
jólamatinn fyrir 500 krónur.“
Hvernig er með börnin sem eru
ekki í áskrift og eiga ekki pening
fyrir jólamatnum?
„Hjá okkur hefur það alltaf ver
ið þannig að ef maður sér eitt
hvert barn, sem langar rosalega í
jólamatinn og er ekki með pening
og ekki með neinn annan hádeg
ismat, þá gefum við því að borða.
Við vitum líka oft hvernig aðstæð
ur barnanna eru.“
Allur gangur á
Hinn kennarinn sem DV ræddi við
er umsjónarkennari á landsbyggð
inni. Kennarinn segir að börn sem
koma oft nestislaus í skólann vilji
ekki að aðrir viti af því og koma
með ýmsar afsakanir fyrir því að
þau séu ekki með nesti.
Eru mörg börn í þínum bekk
sem koma nestislaus í skólann?
„Nei. Það er ekkert barn í mín
um bekk sem ég er að kenna núna
sem kemur nestislaust. En í öðrum
bekkjum sem ég hef kennt hafa
verið börn sem koma nestislaus í
skólann. Ég er búin að kenna í um
tíu ár og myndi segja að meðaltali
séu um eitt til tvö í bekk.“
Er erfitt fyrir börnin sem eru
nestislaus að sjá önnur börn borða
í nestistímanum?
„Börnin fara inn í sig, eins og
þau vilji ekki bera á því að þau
séu nestislaus. Þau segjast oft hafa
gleymt nesti eða ekki langa í nesti.“
Deila hin börnin með sér?
„Já, það er mjög algengt. Líka
ef börn gleyma nesti þá eru önnur
börn alltaf tilbúin að deila, einnig
þótt um sé að ræða einhvern sem
er aldrei með nesti, þá deila þau
alltaf með sér.“
Eru börn sem eru nestislaus í
mataráskrift?
„Það er allur gangur á því. Ég
veit að kirkjan hefur verið að borga
mataráskrift fyrir einhver börn. En
það er þannig að ef foreldri hef
ur ekki efni að hafa barn í matar
áskrift þá þarf það að leita sér að
stoðar sjálft.“
Hvernig er jólamatnum hjá
ykkur háttað?
„Krakkarnir sem eru í áskrift
fá mat og aðrir geta keypt miða í
jólamatinn. Síðan er þeim, sem
eru ekki með nesti, gefið að borða.
Maður veit yfirleitt hvaða krakkar
það eru og er búinn að gera ráð
stafanir fyrirfram.
Svo eru þetta einnig börn sem
eiga foreldra sem eru mjög upp
teknir og kannski ekki að pæla
mikið í hlutunum. Þannig að það
er allur gangur á.“ n
Börnin sem koma
nestislaus í skólann
n Börn í mörgum bekkjum koma nestislaus n Kennarar segja börnin dugleg að deila matnum
„ Í öllum bekkjum
sem ég hef kennt
hafa verið einhver nestis-
laus börn.
Nestislaus
Kennararnir
telja að
það séu að
meðaltali eitt
til þrjú börn í
hverjum bekk
sem koma
nestislaus í
skólann.
Alhliða veisluþjónusta
Kökulist | Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar | Sími: 555 6655 og 662 5552 | kokulist@kokulist.is
Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 | Reykjanesbæ | Sími: 421 2630 | kokulist@kokulist.is
Eingöngu fyrsta flokks hráefni
Tertur – Tapas snittur – Spjót – Súrdeigsbrauð
Konfekt – Kransakökur – Súpur – Brauðréttir
Gerðu daginn eftirminnilegan
l li veisl j st
Kökulist | Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar | Sími: 555 6655 og 662 5552 | kokulist@kokulist.is
Eingöngu fyrsta flokks hráefni
Tertur – Tapas snittur – Spjót – Súrdeigsbrauð
Konfekt – Kransakökur – Súpur – Brauðréttir
i fti i il
Útskrift · Brúðkaup · Skírn · Ferming Útskrift · Brúðkaup · Skírn · Ferming
Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is