Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Qupperneq 10
10 Helgarblað 22. desember 2017fréttir
F
aðir minn var pervert,
nauðgari og barnaníðingur.
Hann var líka hæstaréttar
lögmaður og frímúrari. Ég
hef verið um sjö ára aldurinn þegar
hann reyndi að troða typpinu undir
nærbuxurnar mínar þar sem ég lá á
milli foreldra minna. Mamma öskr
aði upp og reif mig frá honum.“
Þannig lýsir Anna Ragna
Magnúsardóttir, næringar
fræðingur og doktor í heilbrigðis
vísindum, kynferðisbrotum og
sifjaspellum föður síns, Magnúsar
Thorlacius. Faðir hennar lést árið
1978 en hún segist hafa þagað
yfir brotum hans opinberlega í
áratugi, meðal annars að ráði sál
fræðinga sem töldu henni trú um
að best væri að ræða brotin við
trúnaðarmenn en annars halda
þeim fyrir sjálfa sig.
Að kafna í þögninni
Hún telur að þrátt fyrir að sál
fræðingar hafi haft gott eitt í huga
þá sé þetta skaðlegur boðskapur.
Hún segist hafa fundið fyrir létti við
að opinbera brotin þann 1. desem
ber síðastliðinn, í kjölfar #metoo
og #höfumháttumræðunnar.
„Hrikalega hefur verið erfitt að
þegja allar þessar vikur, alla þessa
mánuði, öll þessi ár. Ég hélt það væri
nóg að segja fagaðilum frá þessu,
trúnaðarvinkonum og tala um þetta
á sjálfshjálparfundum. En það er
ekki nóg. Ef það má bara hvísla um
sifjaspell við fólk sem lofar að þegja,
þá eru þau ennþá leyndarmál, þá er
skömmin ennþá mín en ekki hans,“
segir Anna Ragna.
Anna Ragna segist hafa verið að
kafna í þögninni öll þessi ár. „Í hvert
skipti sem ég les frásagnir annarra
undir ofangreindum myllumerkj
um, í hvert skipti sem ég les viðtöl
við þolendur kynferðisofbeldis eða
bækur þeirra, fyllist ég miklu óþoli.
Ég hef þráð að öskra: „Ég líka“. En
alltaf hef ég hætt við, ákveðið að
þegja frekar. Í hvert skipti sem ég
heyri fólk tala af virðingu og upp
hafningu um föður minn verð
ur mér óglatt. Mig hefur langað að
kasta upp en alltaf hef ég kyngt og
þagað,“ segir Anna Ragna.
Móður nauðgað
Anna Ragna segir ofbeldi föður
hennar hafa verið gegnumgang
andi alla æskuna og ekki lokið
fyrr en hann lést. „Árum saman
lét hann mig standa yfir sér inni
á baði á meðan hann pissaði,
skeindi sig og fróaði sér. Ætli síð
asta skiptið hafi ekki verið þegar
ég var tólf ára, skömmu áður en
hann dó. Hann lét mig líka horfa á
sig þar sem hann speglaði sig nak
inn eða með buxurnar á hælun
um fyrir framan mannhæðarháan
spegil í holinu. Svo gyrti hann sig
ánægður. Ef einhver hringdi dyra
bjöllunni þegar hann var í miðju
kafi flúði hann inn á baðherbergi,
og reyndi að girða sig á leiðinni,“
segir Anna Ragna.
Móðir hennar slapp ekki
heldur. „Svo nauðgaði hann
mömmu þegar hann kom heim
af frímúrarafundi, fullur. Ég var
andvaka í herberginu mínu af því
ég fékk ekki lengur að sofa uppí.
Daginn eftir setti mamma púða
í stólinn áður en hún settist með
sársaukagrettu á andlitinu. Og
þegar hún náði í gráa og illa lykt
andi borðtusku til að þurrka af
borðinu henti hún henni á borðið
fyrir framan pabba og hvæsti:
„Mér líður eins og borðtusku, það
er hægt að nota mig og svo er mér
bara fleygt“,“ lýsir Anna Ragna.
Sýndi aðra hlið heima
Í sumar, þegar mál Roberts Downey
stóð sem hæst, kom það til tals,
meðal annars af Illuga Jökuls syni,
hví svo fáir „ fínir menn“ hafi í gegn
um tíðina á Íslandi þurft að svara
fyrir níðingsskap gegn börnum. Á
meðan pervertar á jaðri samfélags
ins hafi fengið sína refsingu þá hafi
menn í efri stéttum sloppið, en líkt
og Illugi benti á, þá spyr slíkur níð
ingsskapur ekki um stétt og stöðu.
Anna Ragna tekur undir þetta
sjónarmið. Líkt og fram hefur
komið var Magnús hæstaréttarlög
maður, frímúrari og prestssonur á
tíma þegar það þótti merkilegra en
nú. „Það var sagt um föður minn:
„Hann var ljúfur maður en harður
lögfræðingur“. Hann var í þessari
fínu stöðu þannig að fólk bar
virðingu fyrir honum, en heima
sýndi hann allt aðra hlið á sér,“
segir Anna Ragna.
Sálfræðingar mæltu með þögn
Anna spyr sig hvort neikvætt
viðhorf sálfræðinga til þess að
tala opinskátt um kynferðisbrot
hafi haft sín áhrif á þöggun mála
flokksins. Hún undirstrikar þó að
hún telji að þeir hafi meint vel. „Ég
er búin að vinna í sjálfri mér mjög
lengi og langt síðan ég fór að tala
um sifjaspellin við fagaðila. Það er
mjög algengt meðal sálfræðinga
að vitna í rannsóknir máli sínu
til stuðnings. Ég hef grun um að
þetta séu frekar gamlar rannsókn
ir. Hlutirnir hafa breyst hratt á allra
síðustu árum og kominn tími til
að endurskoða viðhorf til þess að
opna á þessi mál.
Rannsóknirnar sýndu víst að
það væri mjög hjálplegt að segja
einhverjum frá svona ofbeldi, að
maður hafi gengið í gegnum sifja
spell eða kynferðisofbeldi. Það
sé mjög gott að eiga einn eða fáa
trúnaðarvini, einhverja sem mað
ur treysti 100 prósent, og tala
við fagaðila. En að það að segja
fleirum frá, eða öllum opinberlega,
geri ekki meira gagn, og sé jafnvel
skaðlegt. Þetta hef ég heyrt mjög
oft,“ segir Anna Ragna og bætir við
að hún hafi tekið þessum skila
boðum mjög alvarlega. „Ég hlýddi
þessum ráðum í 25 ár.“
Erfitt að heyra föður sinn mærðan
Anna Ragna segist hafa komist
að því að þetta viðhorf hafi marga
galla, þar á meðal að það varpi
ábyrgðinni á hana en ekki gerand
ann. „Það er ekki nóg til að vinna
úr áfallinu. Það sem er svo erfitt við
þetta er að þótt maður ræði þetta
við trúnaðarvini og eigi þessa fag
aðila að, þá getur fjölskyldan áfram
litið á þetta sem leyndarmál þótt
hún viti af þessu og trúi því alveg að
ofbeldið hafi átt sér stað. Fjölskyld
an lætur samt eins og þetta hafi
ekki gerst. Þögnin verður áfram
þrúgandi. Þannig hefur mér liðið
í tuttugu, þrjátíu ár,“ segir Anna
Ragna en hún segist hafa fundið
fyrir miklum létti eftir að hún fór að
ræða ofbeldið opinskátt.
Í ofanálag hélt fólk áfram að
tala vel um föður hennar, bæði fólk
sem ekkert vissi og fólk sem hafði
vitað af misnotkun hans árum
saman: „Það hefur verið erfitt að
heyra föður minn mærðan á sama
tíma og það ríkti þögn um þá glæpi
sem hann framdi. Sumir höfðu
ekki hugmynd um þetta fyrr en
ég steig fram fyrir þremur vikum,
en aðrir tóku þátt í að mæra hann
þrátt fyrir að vita hvað hann hafði
gert. Þannig var breitt yfir ofbeldið
og það þaggað niður.“ n
„Faðir minn
var pervert,
nauðgari,
barnaníðingur,
hæstaréttar-
lögmaður og
Frímúrari“
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Anna Ragna var beitt kynferðisofbeldi af hálfu föður síns, Magnúsar Thorlacius
„Í hvert
skipti sem
ég heyri fólk
tala af virðingu
og upphafningu
um föður minn
verður mér óglatt
„Hæstaréttarlögmaður og frímúrari“
Magnús var líka nauðgari og barnaníðingur.
Steig fram Anna Ragna segist
finna fyrir létti við að ræða
ofbeldið opinskátt. Mynd SigtRygguR ARi