Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Síða 24
24 sport Helgarblað 22. desember 2017
sterkustu klúbbunum þar í landi,
þrátt fyrir að vera í 4. deild. Hug
myndafræði þeirra er að vera með
unga og efnilega leikmenn sem
komast ekki upp hjá River Plate
og Boca Juniors, þaðan eru þeir oft
seldir til Evrópu. Þeir vilja í sam
starf með okkur, lána okkur leik
menn og ef þeir eru síðan seldir þá
fáum við hluta af kaupverðinu. Ég
fór ásamt yfirmanni knattspyrnu
mála til Argentínu. Við fórum að
kíkja á leikmenn og ef allt geng
ur eftir munu fimm leikmenn frá
þessu félagi spila með Kristian
stad á næsta ári. Þetta er mjög
spennandi verkefni, San Jorge
borgar allan launakostnað og allt
í kringum leikmanninn. Þetta eru
leikmenn sem gætu spilað í úr
valsdeild í Svíþjóð, þeir gætu far
ið í efstu deildir í Evrópu. Þarna
komu við leikmenn eins og
Gabriel Batistuta, Carlos Tevez og
Messi var þarna líka. Þetta er mjög
spennandi. Þetta er stökkpallur,
þetta félag er mjög vel stætt. Þeir
hafa aldrei einbeitt sér að því að
spila eitthvað ofar, þarna kemur
þessi hugmynd að samstarfi við
okkur.“
Hugmyndirnar henta vel í Svíþjóð
Á Íslandi var oft talað um gamal
dags hugmyndafræði sem Atli
hefði en í dag er sú hugmynda
fræði að hans mati að slá í gegn.
Þar á stærstan þátt koma Lars Lag
erbäck til landsins sem hefur sýnt
íslenskum knattspyrnumönnum
að endurteknar æfingar skila sér í
árangri. Atli þjálfaði Aftureldingu
síðast hér á landi árið 2014 en var
rekinn úr starfi og hélt til Dan
merkur.
„Ég var í Danmörku, ég var að
þjálfa í öllum flokkum hjá liði í 6.
deild. Ég var ekki aðalþjálfari, í dag
er ég aðalþjálfari. Hugmyndafræði
mín passar vel inn í sænskan fót
bolta, það er 442 og hentar mér
mjög vel. Við byrjuðum vel, við
fengum ekki mark á okkur í fyrstu
þremur leikjunum. Liðið var búið
að fá á sig mikið af mörkum, við
náðum að laga varnarleikinn. Við
náðum að bæta sóknarleikinn, við
urðum bara betri og betri. Ég var
með svipaðan stíl og ég hef alltaf
notað, ég var með ungan leikmann
frá Argentínu, hann hafði spilað 38
mínútur á tímabilinu. Fyrirsögnin
hafði verið að hann hefði spilað 38
mínútum of mikið. Þegar ég tók við
þá setti ég hann inn í liðið og hann
varð einn af okkar bestu mönnum.
Þessi sænski stíll, eins og Heimir
Hallgrímsson er að vinna með, það
hentar mér vel. Ég henta sænsk
um fótbolta út af því. Því eldri sem
maður verður, þeim mun meira
veit maður. Ég held að maður verði
betri þjálfari með árunum.
Ég var með U21 árs landsliðið
hér á sínum tíma, þá spiluðum við
fastmótað 442 kerfi. Ég held að
það sé ekki ósvipað og landsliðið er
að gera í dag. Heimir Hallgrímsson
sagði að ef hann hefði strax tekið
einn við landsliðinu þá hefði hann
farið í „ungir á móti gömlum“. Það
er einmitt þessi munur, það var svo
mikil gæfa að Lars Lagerbäck kom.
Hann er að búa til umhverfi sem
leikmenn passa inn í, eftir því er
farið. Þar breytti hann öllu, hann
breytti öllu frá sambandinu og út í
alla þjóðina.
Það var mikið af ungum á móti
gömlum, ég var með keilur og
færslur. Þetta þótti alveg rosalega
leiðinlegt, núna er þetta uppi á
pallborðinu eftir að Lagerbäck
kom hingað. Ég var að taka UEFA
Pro Licence í Þýskalandi og þar
var Christian Ziege og hann fór
að segja mér sögur frá AC Milan
af Paolo Maldini þar sem þjálf
arinn var að taka hann og leiða
hann um völlinn og segja honum
að hann stæði vitlaust. Maldini var
einn besti varnarmaður í heimi
en þjálfarinn vildi sýna honum
hver væri með völdin. Ziege sagði
mér að ef hann myndi gera þetta í
Þýskalandi þá myndi fólk halda að
hann væri ekki í lagi, í dag er þetta
hins vegar orðið eðlilegt – þessi
breyting eins og Lars gerði, að
endurtaka alla hluti. Því oftar sem
þú gerir hlutina, því betri verður
þú. Þegar þú gerir hlutina svona
oft þá hættirðu að gera þá rangt,
það er íslenska landsliðið í dag.
Þetta var það sem þurfti, það
var eins árið 1984 þegar Tony
Knapp kom hingað. Þegar þessir
erlendu þjálfarar koma, þá breyt
ist allt í íslenska fótboltanum. Þá
koma inn hugmyndir og Ísland
fer á kortið, þjálfarar koma og fara
en við lærum af þeim. Reynslan í
því að vera á stórmóti kemur með
Lars. Heimir tekur svo við keflinu
og er að gera það ótrúlega.“
Fréttamenn sniðgengu matarboð
Atli þjálfaði Alandslið karla frá
1999 til ársins 2003. Gengið var
á köflum með ágætum en sam
band Atla við fréttamenn hefði
getað verið betra. Atli reyndi að
laga það með matarboðum fyrir
fréttamenn þar sem hann ætlaði
að útskýra hvernig leikirnir yrðu
spilaði. Það gekk vel til að byrja
með en svo hættu menn að mæta.
„Ég tók upp á því að bjóða frétta
mönnum í mat daginn fyrir leik,
þeim var öllum boðið fyrir leik
gegn Möltu og allir mættu. Svo var
ég með töfluna og fór yfir fundinn
sem ég færi með fyrir leikinn, ég
teiknaði upp og blaðamenn komu
með sínar spurningar. Ég leysti
það þegar þeir spurðu af hverju
ég spilaði ekki svona, ég var með
mínar hugmyndir. Einn blaða
maður, sem var á DV, skrifaði um
fundinn með mér og sagði að allt
hefði gengið upp sem ég hefði
sagt. Svo voru Svíar í næsta leik
og þá var nákvæmlega eins boð,
daginn fyrir leik. Ég stóð í matsaln
um og enginn mætti, þá var hringt
og þeir sögðu að það hefði ekki
neina þýðingu að mæta. Liðin mín
myndu alltaf spila eins, það var
Malta í fyrsta leik og svo Svíþjóð.
Við unnum þá 21, sænsku blaða
mennirnir höfðu frétt af þessu og
reyndu að mæta en ég vildi það
ekki. Ég vildi bara að fréttamenn
myndu vita hvernig við ætluðum
að spila, það mætti enginn og þá
lögðum við þetta niður. Það var
stórmerkilegt að enginn skyldi
mæta, þetta féll því niður.“
Knattspyrnumenn
stórstjörnur í dag
Atli segir breytingu hafa orðið á því
hvernig knattspyrnumenn hugsa
um sig, áður fyrr sneri stór hluti
af landsliðsverkefnum að því að
koma sér á pöbbinn eftir leikinn,
en í dag hugsa leikmenn öðruvísi.
Atli segir aðstæður hafa breyst og
að í dag séu knattspyrnumenn
stórstjörnur. „Þegar ég var ung
ur þá söfnuðum við leikaramynd
um, svo á unglingsárunum voru
þetta rokkstjörnur, í dag eru þetta
knattspyrnumenn sem allir líta
upp til. Í dag er þjálfunarfræðin
svo mikil, fjölmiðlar er orðið svo
stórt dæmi. Íslenskir landsliðs
menn voru ekki mjög þekktir, í
dag þekkja allir Íslendingar alla
leikmenn í Pepsideildinni. Þetta
er mikil breyting, þeir geta ekki
leyft sér það sem áður tíðkaðist,
keppnin er orðin það mikil. Við
erum með 70–80 leikmenn sem
eru erlendis í atvinnumennsku,
breiddin er orðin svo mikil. Á
mínum tíma vorum við kannski
fimm í atvinnumennsku, blaða
menn voru með í rútunum, þetta
voru meira skemmtiferðir. Menn
voru búnir að panta sumarfríið
sitt daginn eftir leik en kannski
komumst við áfram, menn eru
meðvitaðri og umhverfið er miklu
sterkara. Aðstæður á Íslandi eru í
heimsklassa, miklu betri en í Sví
þjóð og Danmörku.
Eftir leik var oft farið á pöbbinn,
þegar ég var leikmaður og svo sem
þjálfari. Það var búið að skipu
leggja fögnuði oft áður en leik
urinn hófst, þetta er ekki hlutur
sem bara einn þjálfari getur tekið
á. Þetta kemur með karakter
um, það verða að vera leiðtogar í
klefanum sem eru það sterkir að
þeir taka alla með sér. Þarna get
ur þjálfarinn ekkert gert, þjálfar
inn veit svona hluti síðastur. Þetta
er eins með framhjáhald, makinn
veit það síðastur. Það var skortur
á sterkum karakterum, núna höf
um við marga mjög sterka karakt
era. Sumar af stórstjörnum okkar
smakka það ekki, það er einstakt
og frábært. Menn eru meðvitaðri
um allt, þeir gera grein sér fyrir
því að þeir eru fulltrúar íslenskr
ar knattspyrnu. Þeir verða að vera
skynsamir.“
Kom aldrei við lóð
Breyttar aðstæður eru í fótboltan
um í dag, Atli lék margar stöður
sem leikmaður og þá voru menn
ekki meðvitaðir um þjálfun. Þannig
má nefna að Atli kom aldrei við lóð
í lyftingasal sem leikmaður. „Ég fór
aldrei inn í lyftingasal, ég tók aldrei
í lóð. Maður hljóp bara það sem
maður átti að hlaupa, næringin var
í lagi hjá mér. Ég gerði það mjög
vel, það eru ekki margir sem æfðu
meira en ég. Ég tognaði aldrei eða
sleit nein liðbönd, ég var klár í álag.
Ég hefði viljað æfa í umhverfi eins
og er í dag, ég hefði ekki spilað sem
framherji í Þýskalandi og miðvörð
ur í landsliðinu. Ef Alfreð kæmi
í landsleik í dag eftir þrennuna í
Þýskalandi og yrði settur í mið
vörðinn, menn myndu segja eitt
hvað. Ég gerði þetta, af því að það
vantaði eitthvað.“ n
Þjálfaraferill Atla
1995–1996 ÍBV
1997 Fylkir
1998–1999 KR Reykjavík
1999–2003 Ísland
2005–2006 Þróttur Reykjavík
2009 Valur
2013 Reynir Sandgerði
2014 Afturelding
2017– Kristianstad FC
„Aðstæður á
Íslandi eru í
heimsklassa, miklu
betri en í Svíþjóð
og Danmörku.