Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Blaðsíða 35
Með allt á hreinuHelgarblað 22. desember 2017 KYNNINGARBLAÐ
Guðmundur oG Þórey hjá Þernunni eru alltaf á vaktinni
Bjargaði sparifötum fyrir
klukkan fimm á aðfangadag
Guðmundur aðalsteinn Sig-urðsson hefur lengi veitt stórum hluta eyfirðinga
fatahreinsun og skylda þjónustu.
Guðmundur hefur rekið Þernuna
fatahreinsun á dalvík frá árinu
2008 og síðastliðið sumar tók
hann við rekstri efnalaugarinnar
lindar á Siglufirði. fyrirtækin
rekur hann með eiginkonu sinni,
Þóreyju tulinius.
„Þegar ég keypti Þernuna
tók ég yfir þjónustusamning
við átvr og rak áfengissöluna
í sama húsi, að hafnarbraut 7.
Þjónustusamningur við átvr
var svo ekki í boði frá 2013
og eftir það hefur ríkið rekið
áfengissöluna í sama húsi en
við fluttum Þernuna í næsta
hús, að hafnarbraut 11, en
hafnarbraut 9 er ekki til,“
segir Guðmundur.
dalvíkingar nýta sér óspart þjón-
ustu Þernunnar en þjónustan teygir
sig víða. Þar sem engin efnalaug er
í ólafsfirði sækja ólafsfirðingar sér
fatahreinsun til dalvíkur og einnig
Siglufjarðar þar sem þau Guðmundur
og Þórey reka lindina en auk þess
þjónusta þau akureyringa og fleiri
nærsveitunga mikið.
Útleiga á rykmottum til stofnana og
fyrirtækja er töluverður hluti af starf-
seminni: „við hjónin erum með um 300
mottur í umferð í dag. Þetta eru skipt-
imottur sem við leigum til fyrirtækja og
stofnana víðs vegar um eyjafjarðar-
svæðið og fyrirkomulagið er þannig að
ég kem á staðinn með hreina mottu
og sæki óhreinu mottuna.“ aðspurður
viðurkennir Guðmundur að þetta sé
ærinn starfi. við höfum eingöngu selt
rykmottur til einstaklinga sem þess
óska en leiguþjónustan er fyrir fyrir-
tæki og stofnanir.
Flestir koma tímanlega en sumir
afar seint
„Í öllum efnalaugum er það þannig
að það er meira að gera fyrir
hvítsunnu, páska, jafnvel fyrir
haustfagnaði – og loks fyr-
ir jólin. af þessum hátindum
eru langmestu annirnar fyrir
jólin,“ segir Guðmundur. hann
segir að almennt sé fólk mjög
tímanlega með sparifötin sín í
hreinsun.
„langflestir koma tíman-
lega með fötin sín í hreinsun
en þó eru alltaf einhverjir
sem kom seinna en aðrir,
eins og gengur. Það eru
alltaf einhverjir sem vakna
upp við það að jólin eru á
morgun eða hinn og fötin
eru óhreinsuð. Ég reyni því
alltaf að bjarga málunum
þegar slíkt kemur upp ef
ég get. Ég hef meira að
segja reddað skyrtum á
aðfangadag og jafnvel
fötum. eitt sinni hringdi í
mig maður sem hafði látið
mig hreinsa þjóðbúninginn
sinn og hélt að hann hefði
fengið rangan þjóðbúning
því hann komst ekki lengur í hann. Ég
sagði honum sem satt var að þetta
hefði verið eini þjóðbúningurinn sem
var til hreinsunar í hans stærð og því
hefðu fötin ekki minnkað, það væri
hann sem hefði stækkað. klukkan
var að verða fimm á aðfangadag. Ég
hafði keypt nokkra þjóðbúninga karla
til að leigja út við hátíðleg tækifæri og
gat því bjargað honum um einn slíkan
svo hann gæti haldið jólin í nýjum
þjóðbúningi.“
Þessi saga er gott dæmi um það
að eigandi efnalaugar er alltaf á
vaktinni og segir Guðmundur að hann
og eiginkona hans séu í raun alltaf á
bakvakt.
Starfsemin á Siglufirði
Sem fyrr segir keyptu þau
Guðmundur og Þórey rekstur efna-
laugarinnar lindar á Siglufirði síðast-
liðið sumar og reka hana áfram með
nánast sama starfsfólki og var, sem
skiptir líka máli í þessari starfsgrein
en fyrirtækið á sér yfir aldarfjórð-
ungs sögu. Starfsemi lindarinnar er
sambærileg og Þernunnar en talsvert
umfangsminni enda hefur Þernan
þjónað stærra svæði í langan tíma.
„Ég keyri á milli og fer þrisvar í viku
til Siglufjarðar á veturna. á sumrin
fer ég sex sinnum í viku,“ segir Guð-
mundur en hann byrjaði að veita
Siglfirðingum þjónustu löngu áður en
hann tók við lindinni.
„við höfum leigt allt lín, hand-
klæði og lök á gistiheimilið Siglunes
á Siglufirði á vegum Þernunnar allar
götur síðan 2011. Ég hef líka verið að
leigja út mottur á Siglufirði. Það var
því rökrétt framhald að við hjónin
tækjum við rekstri lindarinnar,“ segir
Guðmundur.
Þernan fatahreinsun, Hafnarbraut
11, Dalvík – sími: 464-2700, 899-
9360, 845-2700.
Efnalaugin Lind, Aðalgötu 21,
Siglufirði – sími: 467-1966.
Guðmundur og Þórey