Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Qupperneq 36
Með allt á hreinu Helgarblað 22. desember 2017KYNNINGARBLAÐ
Þrif og ræstivörur:
Þrif og ræstivörur er um margt afar áhugavert fyrirtæki með mikla sérstöðu. fyrirtækið er
á Akureyri og rekur annars vegar
sérverslun með efni og tæki til hrein-
gerninga og veitir hins vegar víðtæka
og fjölbreytta ræstinga- og hrein-
gerningarþjónustu til fyrirtækja og
einstaklinga.
verslunin er að frostagötu 4C og
er opin virka daga milli kl. 8 og 16.
Þar er meðal annars að finna hinar
þekktu Evans hreinsivörur frá Bret-
landi og margvísleg önnur hreinsiefni.
Þar eru einnig
margs konar
áhöld, vélar og
tæki til ræstinga:
tuskur, svampar,
sköft, skúringavagn-
ar og skúringafötur með
vindum. Af öðrum vörum má
nefna pappír, pappírsstanda og
sápuskammtara frá hinum virta
merki Katrin.
Enn fremur er mikið úrval af
ryksugum, gólfþvottavélum o.fl.
undir hinu klassíska Nilfisk-
merki til sölu í versluninni,
sem og hreingerningarvélar
frá þýska framleiðandanum
Kärscher – en þar ber hæst
afar vinsæla vél til heimilisnota
sem bæði skúrar og ryksugar.
„Helsta sérstaða verslun-
arinnar er kannski sú að þar
starfar fólk sem er að vinna
með þessa hluti alla daga þannig
að viðskiptavinir frá mjög sérhæfða
ráðgjöf um val og notkun á efnum og
tækjum. Þetta er eitthvað sem fólk
fær ekki annars staðar, til dæmis í
stórverslunum. Mörg sterk hreinsiefni
eru ekki fyrir alla og þú getur skemmt
meira með þeim en gert gagn. Það
er mikilvægt að velja rétta vöru sem
hentar í viðkomandi verkefni. við höf-
um alltaf lagt mikið upp úr persónu-
legri og góðri þjónustu,“ segir sveinn
rúnar, annar eigenda fyrirtækisins,
en hinn eigandinn er eiginkona hans,
Birna Böðvarsdóttir.
starfsemi Þrifa og ræstivara hefur
vaxið mikið í gegnum árin en fyrir-
tækið sinnir daglegum ræstingum og
hreingerningum fyrir hina ýmsu aðila,
stóra og smáa, fyrirtæki jafnt sem
einstaklinga og heimili. starfsmenn
eru nú um 120 talsins, allt í allt.
starfsemin nær víða út fyrir
Akureyri: „við veitum þjónustu
alveg austur á firði og vestur
fyrir Blönduós. við erum með
föst ræstingar-
verkefni á
Akur-
eyri,
Húsavík, Dalvík, Ólafsfirði, siglufirði, í
Mývatnssveit og víðar.“
sveinn rúnar segir þörfina mikla
og er lögð mikil áhersla á faglega
ráðgjöf og persónulega þjónustu í
hreingerningum, viðhaldi gólfefna
og öðrum sérverkefnum. fyrirtækið
sinnir margs konar vandasömum sér-
verkefnum en sveinn rúnar telur að
sú sérþekking sem fyrirtækið búi yfir
á þessu sviði sé fágæt.
Meðal stórra viðskiptavina Þrifa
og ræstivara er samkaup en fyrir-
tækið hefur séð um ræstingar fyrir
allar verslanir samkaupa á Norður-
landi í 12 ár. Einnig má nefna sam-
herja, Akureyrarbæ, Norðlenska,
Íslandsbanka, sjúkrahúsið á Akureyri,
Mjólkur samsöluna og Eimskip.
„við höfum líka sérhæft okkur
mjög í tækjabúnaði til að þjónusta
tryggingafélög í tjónamálum,“ segir
sveinn rúnar. „við erum vel búnir
tækjum til að glíma við afleiðingar
vatnstjóns, erum t.d. með rakabún-
að, skilvindur, blásara og fleira sem
til þarf. Einnig erum við sérhæfð í að
fást við brunatjón, t.d. með búnaði og
tækjum til að fást við þrif eftir bruna
og eyða lykt.“
Að sögn sveins rúnars
eru verkefnin óþrjótandi
en mikil áhersla er lögð
á að viðhalda þeirri
persónulegu þjónustu
með faglegri ráðgjöf
við viðskiptavini sem
ávallt hefur einkennt starf-
semi fyrirtækisins þrátt
fyrir að það stækki og
umsvifin aukist.
Nánari upplýsingar
um starfsemina veitir
Sveinn Rúnar í síma
865-2425 en einnig
er að finna upp-
lýsingar á Face-
book-síðunni Þrif
og ræstivörur
sem og á
heimasíðunni
thrif.is.
Fágæt sérþekking og
persónuleg þjónusta