Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Page 42
42 Helgarblað 22. desember 2017 Sakamál 22 karlmenn urðu fórnarlömb indversku „ræningjadrottningar-innar“ Phoolan Devi. Í kjölfar þess að henni var hópnauðgað af karlmönnum í heimaþorpi sínu fetaði hún stigu glæpa og stóð að baki morðum á 22 körlum úr efri stétt í þorpinu árið 1981. Síðar meir tókst Phoolan að hasla sér völl í stjórnmálum og varð fulltrúi Samajwadi-flokksins. Hún lést árið 2001. Sofandi Sauður Pólverjinn Lukasz Chojnowski ákvað árið 2014 að brjótast inn í mannlaust hús í Lancashire á Englandi. Það væri í sjálfu sér ekki í frásögur færandi, nema fyrir þá sök að þegar íbúarnir, Martin Holtby og Pat Dyson, komu heim úr fríi fundu þau Lukasz steinsofandi í hjónarúmi þeirra. Lukasz, sem annars bjó í Leeds, hafði gert gott betur því hann hafði þrifið á heimil- inu, þvegið af sér þvott og keypt inn. Hafði Pat Dyson á orði að heimilið væri mun þrifalegra en þau höfðu skilið við það. „Hann hafði reyndar eyðilagt gamlan sósupott, en það getur gerst á bestu bæjum,“ sagði Pat. Ekki er vitað hvort Lukasz þekkti söguna um Gullbrá og birnina þrjá en hann fékk skil- orðsbundinn dóm og fjár- sekt fyrir sitt ævintýri. Enginn fuglasöngur Tveir ferðalangar frá Wales voru helst til sneypulegir þegar þeir stóðu fyrir fram- an dómara í Queensland í Ástralíu. Ferðalöngunum, Rhys Owen Jones og Keri Mules, var, hvorum um sig, gert að greiða sem samsvarar um 90.000 ís- lenskum króna í sekt. Auk þess sagði dóm- arinn þeim að „slaka aðeins á í vodka- drykkjunni“. Rhys og Keri höfðu, vel við skál, fengið þá snilldarhugmynd að brjótast inn í sædýrasafn í Queens- land. Þar skelltu þau sér til sunds með höfrungunum, tæmdu slökkvitæki þar sem hákarlar dóluðu í makindum sínum og héldu síðan heim á leið – með mörgæsina Dirk sem ferðafélaga. Næsta morgun vöknuðu skötu- hjúin með slæma timbur- menn og fagran fuglasöng var hvergi að heyra. Hins vegar vængstuttur fugl vapp- andi um híbýli þeirra og í tilraun til að gera sitt besta settu þau hann í sturtu. Síð- ar reyndu þau að losna við Dirk með því að sleppa hon- um í sýki, en til þeirra sást og þau enduðu í musteri laga og réttar. Dirk var hins vegar skilað á sædýrasafnið og varð ekki meint af til- breytingunni. Hrottinn á hjólreiðaStígnum n nauðgaði og myrti n Lék lausum hala um langt skeið Í um tuttugu ár reyndi lögreglan í Buffalo í New York-fylki í Bandaríkjunum að hafa hend- ur í hári níðings sem lagðist á varnarlausar konur og misþyrmdi þeim kynferðislega. Var undir hælinn lagt hvort fórnarlömbin sluppu með líftóruna. Lögreglan hafði undir höndum blóðsýni úr viðkomandi manni og lífsýni, en hafði ekki fundið sam- svörun í gagnagrunnum sínum þrátt fyrir viðamikla leit. Blóð- flokkur mannsins var O og átti hann rætur að rekja til frumbyggja Ameríku og Spánverja. Grunuðum sleppt Veiðilendur þessa níðings ein- skorðuðust að mestu við hjól- reiðastíga í Buffalo og nágrenni og fékk hann því viðurnefnið Hjól- reiðastígsnauðgarinn. Ferill hans hófst árið 1986 og í fjölda ára bjuggu konur og tán- ingsstúlkur í Buffalo við ótta og forðuðust í lengstu lög að vera ein- ar á ferli. Árið 1990 beindust sjónir lög- reglunnar, einhverra hluta vegna, að Altemio Sanchez í kjölfar morðs á konu að nafni Linda Yalem. Á vettvangi hafði fundist vatnsflaska en rann- sókn leiddi í ljós að ekki var um fingraför Altemio að ræða. Því fór sem fór. Kíkt á gömul mál Mörgum árum síðar, árið 2007, fór lögreglan að kíkja á gömul mál, allt frá ár- inu 1981. Líkindi voru með mörgum þeirra mála og þeim sem eignuð voru Hjólreiða- stígsnauðgaranum. Reynd- ar hafði Anthony nokkur Capozzi verið dæmdur fyrir þá glæpi. Eitt málanna sem tekin voru til skoðunar varðaði nauðg- un sem átti sér stað í Delaware Park í Buffalo. Fórnar lambið hafði sloppið lifandi úr klóm árásarmannsins og fyrir slembi- lukku náð að leggja bílnúmer hans á minnið. Eigandi bílsins, Wilfredo Caraballo, hafði á þeim tíma sagt lögreglu að hann hefði ekki hreyft bílinn svo mánuðum skipti og ekki voru bornar brigður á orð hans. Frændinn forherti Ýmislegt nýtt kom upp úr dúrnum þegar lögreglan spjallaði við Wilfredo áratugum síðar og vakti eitt sérstakan áhuga hennar. Frændi Wilfredos hafði þá fengið bílinn að láni. Og hver var svo umrædd- ur frændi? Enginn annar en áður- nefndur Altemio Sanchez. Í stað þess að rjúka strax í Al- temio fékk lögreglan lífsýni úr ætt- ingja hans. Lífsýnið sýndi náinn skyldleika við Hjólreiða- stígsnauð- garann og lög- reglan taldi sig hafa borið kennsl á hann. Sök staðfest Fylgst var með ferðum Altemio og í janúar 2007 var honum veitt eftirför þegar hann fór út að borða á veitingastað í Buffalo. Eftir að hann yfirgaf veitingastaðinn tókst lögreglu að komast yfir lífsýni af glasi sem hann hafði drukkið úr. Niðurstöður í rannsókn á líf- sýnum staðfesti svo ekki varð um villst sekt Altemio Sanchez og hann var tafarlaust handtekinn. ágúst 2007 var Altemio dæmdur til 75 ára fangelsis- vistar án möguleika á reynslu- lausn. Altemio var dæmdur fyrir þrjú morð, en talið er nokkuð víst að fórnarlömb hans hafi ver- ið mun fleiri. Á jákvæðum nótum í lokin: Í mars 2007 var Anthony Capozzi hreins- aður af sök. Eftir 22 ára prísund, vegna glæpa sem hann hafði ekki framið, gat hann loks um frjálst höfuð strok- ið. n Þrjú fórnarlömb F.v. Linda Yalem, Majane Mazur, Joan Diver. „Ýmislegt nýtt kom upp úr dúrnum þegar lögreglan spjallaði við Wilfredo áratugum síðar og vakti eitt sér- stakan áhuga hennar. Hjólreiðastígsnauðgarinn Stundaði ódæði sín í fjölda ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.