Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Page 54
54 Helgarblað 22. desember 2017
Eftir tvo tíma
Eruð Þið komin
til Edinborgar!
Að koma til Edinborgar er í hugum margra eins og að ferðast til ævintýra-
lands. Borgin státar af sögufræg-
um byggingum sem margar
minna á senur úr myndunum um
Harry Potter en það var einmitt í
Edinborg sem höfundurinn, J.K.
Rowling, skrifaði fyrstu bókina um
þennan heimsfræga galdrastrák.
Og þetta er í raun töfrum líkast því
það tekur aðeins tvo tíma að fljúga
þangað frá Keflavík og tímamis-
munurinn er enginn. Sem sagt
– næstum því eins og að fara til
Akureyrar, bara örlítið lengra.
Í Edinborg búa um 450 þúsund
manns sem hafa getið sér gott orð
fyrir vingjarnleika í garð ferða-
manna. Þar er jafnframt fyrirtaks
úrval af afþreyingu; ótal fram-
úrskarandi veitingastaðir, lifandi
tónlist ómar af börum á hverju ein-
asta kvöldi og fyrir þau sem kunna
að meta viskí þá er ferð til Skotlands
augljóslega mjög góð hugmynd!
Í miðri borginni stendur
Edinborgarkastali sem er helsta
kennileiti borgarinnar. Kastalinn
laðar að fjölda ferðamanna hvern
einasta dag en að sögn Maríu
Erlendsdóttur, sem hefur búið í
Edinborg síðustu þrjú árin, er betra
að sleppa því að fara inn í hann.
„Flestir sem hingað koma vilja
kíkja í Edinborgarkastalann en ég
mæli ekki endilega með því. Hann
er vissulega mjög fallegur að utan
en þegar maður kemur inn þá er
þar allt krökkt af ferðamönnum og
verslunum. Svo er dýrt að borga sig
inn. Frekar hvet ég ferðalanga til að
virða bara kastalann fyrir sér utan frá
og kíkja heldur á Holyrood Palace-
kastalann í hinum enda borgarinnar.
Elísabet Bretadrottning býr þar í einn
mánuð á hverju ári svo hann er alveg
ekta en ekki bara safn. Alvöru antík-
húsgögn og þess háttar sem gaman er
að virða fyrir sér,“ útskýrir María.
Flugfarið fljótt að borga sig upp
Þar sem pundið er sérlega hagstætt
fyrir Íslendinga um þessar mundir
ætti flugmiðinn að vera fljótur að
borga sig upp, þá sérstaklega ef fólk
hyggst endurnýja í fataskápnum
eða festa kaup á öðrum varningi.
Samkvæmt ferðavefnum Dohop.is
er ódýrasta farið fram og til baka á
23.997 krónur en þá er flogið með
Wow Air. Flugtíminn er þægilegur;
lagt af stað klukkan 7.00 á föstudegi
og flogið heim klukkan 10.55 á
mánudagsmorgni.
Þegar til borgarinnar er komið
tekur svo aðeins 20 mínútur að
ferðast með leigubíl í miðborgina
og farið kostar 20 til 25 pund, eða
um 3.500 krónur.
„Matur er líka mikið ódýrari í
Edinborg en heima svo ef fólk vill
gera vel við sig þá þarf það ekki
að kosta nema um 5.000 krónur
kannski; matur og drykkir á góðum
veitingastað,“ segir María.
Ævintýrakastalar, unaðslegt viskí, ódýr
matur og aðeins tveggja tíma ferðalag
til nágrannaborgar okkar í Skotlandi.„ lifandi tónlist
ómar af bör-
um á hverju einasta
kvöldi og fyrir þau
sem kunna að meta
viskí þá er ferð til
Skotlands augljóslega
mjög góð hugmynd!
Góðir punktar
n Edinborg er að verða mjög vinsæll áfangastaður evrópskra ferðamanna sem
vilja skella sér í helgarferðir og því um að gera að undirbúa helgina vel með því
að bóka fyrirfram á veitingastöðum. Það er hægt að gera á netinu, á heimasíð-
um veitingastaðanna, eða einfaldlega með því að slá á þráðinn.
n Meðalverð á bjór er um fjögur pund og á vínglasi um sjö pund.
n Verðið á pítsu er í kringum 18 pund.
n Að gefa þjórfé er ekki skylda en það er reiknað með því að fólk gefi um 10
prósent af heildarreikningi. Þessu er yfirleitt bætt á reikninginn ef fólk er saman í
hóp og það er óskrifuð regla að samþykkja þessa viðbót.
n Leigubíla þarf ekki að tipsa en oft er rúnnað upp að næsta pundi. María
leggur til að fólk noti City Cabs í stað Uber. Þótt Uber geri út í Edinborg eru
heimamennirnir á City Cabs fljótari að rata og öruggari.
Elskar Edinborg
María Erlendsdóttir flutti
ásamt syni sínum til Edin-
borgar fyrir þremur árum og
unir hag sínum vel í borginni.
Calton Hill „Ég veit fátt yndislegra en
að fara upp á Calton Hill og virða fyrir mér
útsýnið yfir þessa dásamlegu borg. Á sumrin
er einnig mjög ljúft að skreppa þangað í
pikknikk í góðu veðri. Kannski með vinum, eða
bara til að flatmaga og lesa bók.“ Mynd AlAn Copson