Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Page 56

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Page 56
Helgarblað 29. desember 2017KYNNINGARBLAÐÁramót Þýskar hefðir blandast vel við íslenskt hugvit og vatn Brugghús Steðja er fjölskyldu-fyrirtæki sem staðsett er á jörðinni Steðja í Borgarfirði. Fyrirtækið var stofnað árið 2012 og er því fimm ára. Að sögn Dagbjart- ar Arilíussonar hjá Steðja er þýskur bruggmeistari á meðal þess sem gefur fyrirtækinu sérstöðu: „Við erum með þýskan brugg- meistara sem hefur verið hjá okkur frá upphafi og er alfluttur til Íslands. Það eru mikil fræði á bak við bruggun á góðum bjór í Þýskalandi og þetta er margra alda gömul hefð. Ég fullyrði að hann er einn best menntaði bruggarinn á Íslandi. Bjórarnir okkar ein- kennast af þýskum grunni en svo bætist ofan á hann íslenskt hugvit og íslenska vatnið sem er heimsins besta vatn,“ segir Dagbjartur. „Það sem einkennir þýska bjóra er að þeir eru án viðbætts sykurs og gildir það um alla bjórana okkar. Þetta er náttúruleg bruggun sem tekur lengri tíma. Hvítur sykur er ekki leyfilegur innan veggja Steðja og allir okkar drykkir eru því lausir við hann.“ Límonaðidrykkurinn Alda Sífelld vöruþróun einkennir Steðja og ein frumleg afurð er límonaðidrykk- urinn Alda sem kom á markaðinn í fyrra: „Þetta er samstarfsverkefni okkar og fyrirtækis sem heitir Cod- land, sem er staðsett í Sjávarklasan- um. Þeir eru að framleiða kollagen- prótein úr þorskroði. Þetta er nýjung til að nýta afurðina enn betur. Við blöndum kollagen-próteinum í sykur- laust límonaði sem er okkar uppskrift og í hverri flösku af Öldu eru fimm grömm af próteini, sem er mjög hátt gildi. Þessi drykk- ur er líka hita- einingasnauður vegna þess að það er enginn við- bættur sykur í honum en þess í stað er hann sættur með náttúrulegum sykri, stevíu. Þetta er sannkallaður heilsudrykkur,“ segir Dagbjartur. Alda er til sölu í Nettó-Samkaup- um, Bláa lóninu og á völdum veitinga- stöðum. Drykkurinn er að mælast mjög vel fyrir erlendis og er við það að ryðjast inn á erlendan markað. Má einnig búast við því að hann verði seldur í mun fleiri verslunum á Íslandi á næstunni. Gestastofan ber hróður Steðja um heiminn Síðasta sumar opnaði Steðji gestastofu sem hefur mælst mjög vel fyrir hjá erlendum ferðamönn- um, ekki síst Bandaríkjamönnum, þar sem rík hefð er fyrir því að litlir aðilar í bruggun hafi opið hús þar sem áhugasamir geta kynnt sér framleiðsluna og fengið að smakka. „Borgarfjörðurinn er ört vaxandi ferðaþjónustusvæði og við erum í mekka túrismans þar. Hingað koma allra þjóða kvikindi sem bera orðspor okkar til heimalandsins og hafa valdið því að útflutningur á okkar vörum hefur aukist,“ segir Dagbjartur. Gestastofan er opin alla daga nema sunnudaga frá kl. 13 til 17. Hvalabjór Ein eftirtektarverðasta afurðin hjá Steðja er hvalabjór sem er kallaður brjálaðasti bjór í heimi. Núna er þorr- inn handan við hornið og verður þá í boði ný tegund af hvalabjórnum. „Við höfum verið með bjór sem er brugg- aður úr taðreyktum hvalseistum, en sá nýi er bruggaður úr hvalseistum sem sýrð eru í Kambucha, sem er vin- sælt heilsu-ger erlendis. Það verður því líka súrpungabjór fyrir þennan þorra. Þarna sameinast þýsku gæðin og íslenska sköpunargáfan sem aldrei fyrr,“ segir Dagbjartur. Nánar má lesa um starfsemi Steðja á vefsíðunni stedji.com.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.