Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Qupperneq 56
Helgarblað 29. desember 2017KYNNINGARBLAÐÁramót
Þýskar hefðir blandast vel
við íslenskt hugvit og vatn
Brugghús Steðja er fjölskyldu-fyrirtæki sem staðsett er á jörðinni Steðja í Borgarfirði.
Fyrirtækið var stofnað árið 2012 og
er því fimm ára. Að sögn Dagbjart-
ar Arilíussonar hjá Steðja er þýskur
bruggmeistari á meðal þess sem
gefur fyrirtækinu sérstöðu:
„Við erum með þýskan brugg-
meistara sem hefur verið hjá okkur
frá upphafi og er alfluttur til Íslands.
Það eru mikil fræði á bak við bruggun
á góðum bjór í Þýskalandi og þetta
er margra alda gömul hefð.
Ég fullyrði að hann er einn
best menntaði bruggarinn á
Íslandi. Bjórarnir okkar ein-
kennast af þýskum grunni
en svo bætist ofan á hann
íslenskt hugvit og íslenska
vatnið sem er heimsins
besta vatn,“ segir Dagbjartur.
„Það sem einkennir þýska
bjóra er að þeir eru án viðbætts
sykurs og gildir það um alla bjórana
okkar. Þetta er náttúruleg bruggun
sem tekur lengri tíma. Hvítur sykur
er ekki leyfilegur innan veggja Steðja
og allir okkar drykkir eru því lausir við
hann.“
Límonaðidrykkurinn Alda
Sífelld vöruþróun einkennir Steðja og
ein frumleg afurð er límonaðidrykk-
urinn Alda sem kom á markaðinn í
fyrra: „Þetta er samstarfsverkefni
okkar og fyrirtækis sem heitir Cod-
land, sem er staðsett í Sjávarklasan-
um. Þeir eru að framleiða kollagen-
prótein úr þorskroði. Þetta er nýjung
til að nýta afurðina enn betur. Við
blöndum kollagen-próteinum í sykur-
laust límonaði sem er okkar uppskrift
og í hverri flösku af Öldu eru fimm
grömm af próteini, sem er mjög hátt
gildi. Þessi drykk-
ur er líka hita-
einingasnauður
vegna þess að
það er enginn við-
bættur sykur í honum
en þess í stað er hann
sættur með náttúrulegum
sykri, stevíu. Þetta er sannkallaður
heilsudrykkur,“ segir Dagbjartur.
Alda er til sölu í Nettó-Samkaup-
um, Bláa lóninu og á völdum veitinga-
stöðum. Drykkurinn er að mælast
mjög vel fyrir erlendis og er við það
að ryðjast inn á erlendan markað.
Má einnig búast við því að hann verði
seldur í mun fleiri verslunum á Íslandi
á næstunni.
Gestastofan ber hróður Steðja um
heiminn
Síðasta sumar opnaði Steðji
gestastofu sem hefur mælst mjög
vel fyrir hjá erlendum ferðamönn-
um, ekki síst Bandaríkjamönnum,
þar sem rík hefð er fyrir því að litlir
aðilar í bruggun hafi opið hús þar
sem áhugasamir geta kynnt sér
framleiðsluna og fengið að smakka.
„Borgarfjörðurinn er ört vaxandi
ferðaþjónustusvæði og við erum í
mekka túrismans þar. Hingað koma
allra þjóða kvikindi sem bera orðspor
okkar til heimalandsins og hafa valdið
því að útflutningur á okkar vörum
hefur aukist,“ segir Dagbjartur.
Gestastofan er opin alla daga
nema sunnudaga frá kl. 13 til 17.
Hvalabjór
Ein eftirtektarverðasta afurðin hjá
Steðja er hvalabjór sem er kallaður
brjálaðasti bjór í heimi. Núna er þorr-
inn handan við hornið og verður þá í
boði ný tegund af hvalabjórnum. „Við
höfum verið með bjór sem er brugg-
aður úr taðreyktum hvalseistum, en
sá nýi er bruggaður úr hvalseistum
sem sýrð eru í Kambucha, sem er vin-
sælt heilsu-ger erlendis. Það verður
því líka súrpungabjór fyrir þennan
þorra. Þarna sameinast þýsku gæðin
og íslenska sköpunargáfan sem aldrei
fyrr,“ segir Dagbjartur.
Nánar má lesa um starfsemi
Steðja á vefsíðunni stedji.com.