Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Blaðsíða 74
74 Áramótablað 29. desember 2017
það sáu enda fátt um fína drætti
þegar kom að skemmtanamálum
borgarbúa. Á gamlárskvöld þetta
ár framlengdu drengirnir í fjörinu
ásamt stúdentum þaðan og frá
Kaupmannahöfn. Þeir klæddu
sig upp sem ljósálfa eða svartálfa
og gengu niður að Tjörninni í
Reykjavík með blys í hönd þar sem
þeir dönsuðu og sungu álfasöngva.
Upp úr þessu skapaðist svo hefðin
fyrir því að heilsa formlega upp á
álfa við áramótabrennurnar þó að
blessaðir álfarnir hafi reyndar fylgt
okkur mikið lengur.
Á hvaða vikudegi hefst nýja árið?
Þó við höldum upp á áramót um
mánaðamótin 31. desember og 1.
janúar hafa tímasetningar þeirra
verið breytilegar í gegnum tíðina.
Hér á Íslandi verður 1. janúar að
nýársdegi á 16. öld en fram að
því höfðu áramót verið á jólum.
Jólanótt var þá líka nýársnótt og
var hún talin ansi mögnuð enda
hlaðin hjátrú hvers konar.
Í þjóðsögum Jóns Árnasonar
eru frásagnir af ýmsum kreddum
sem tengjast til dæmis áramótun-
um og veðurfari. Fólk trúði því að
ef fyrsti dagurinn í janúar félli á
sunnudegi yrði veturinn spak-
ur og staðvindasamur, sumarið
þurrt, heyskapur mikill, vöxtur
góður í nautum, kerlingadauði,
nægð og friður eins og segir í
þjóðsögunum. Verra væri það
ef 1. janúar félli á laugardag. „Þá
ferst sauðfé og þá deyja gamlir
menn.“
Komi þeir sem koma vilja
Þá var það lengi siður, og líklega
til gamans, að bjóða álfum heim á
gamlárskvöld því þegar þeir fluttu
sig búferlum, gat verið að þeir
litu inn á bæjunum. Sópaði þá
húsmóðirin bæinn horna á milli
og setti ljós í hvern krók og kima,
svo að hvergi bæri skugga á. Gekk
hún síðan út og í kringum bæinn
þrem sinnum svo segjandi: “Komi
þeir sem koma vilja, veri þeir sem
vera vilja, fari þeir sem fara vilja
mér og mínum að meinalausu.“
Ljós var oft látið loga í öllum
hornum alla nóttina. Og mjög
lengi þótti sjálfgert að láta a.m.k.
eitt ljós lifa í húsi á jóla- og
nýársnótt. Þá eru til sagnir um
húsmæður, sem báru mat á borð
handa álfum á afviknum stað á
þessum nóttum. Átti það ævinlega
að vera horfið að morgni, þótt
ekki sé grunlaust um, að mennsk-
ir búálfar hafi þar tekið ómakið af
hinum.
Krossgötur og andlegar álfaþolraunir
Krossgötur hafa mikla merkingu
í bæði trú og hjátrú hjá flestum
þjóðum og þá sérstaklega þegar
kemur að því að standast einhvers
konar freistingar eða breyta til
hins betra. Nýársnótt þótti mjög
þýðingarmikil tímasetning en þá
fara alls konar verur á stjá og því
um að gera fyrir hugrakka að mæta
þessum fyrirbærum með vilja-
styrkinn að vopni. Þetta minnir til
dæmis á bandarískar sögur af því
þegar skrattinn sjálfur mætir með
freistingarnar að krossgötum, helst
í skiptum fyrir sálina í þeim sem
þar húkir. Hér voru það hins vegar
álfar sem óskuðu eftir geðheilsu
manna í skiptum fyrir góss. Mættu
með hvers konar gersemar á
nýársnótt, klæði, mat, drykk, gull
og silfur. Ef ekkert gekk brugðu
þeir sér jafnvel í dulargervi náinna
ættingja og báðu mann að koma
heim. Þá skipti máli að haggast
ekki og halda þetta út þar til dagur
rynni upp. Þá átti krossgötuhetjan
að standa upp og segja: „Guði sé
lof, nú er dagur um allt loft.“
Við þetta áttu álfarnir að hverfa
hviss-bang-búmm en eftir varð
góssið úr álfheimum sem viðkom-
andi mátti þá hirða. Hafi sú eða
sá sem sat á krossgötunum yfir
nóttina hins vegar svarað álfunum
varð viðkomandi vitstola og ekki
mönnum sinnandi. Þetta kom til
dæmis fyrir hann Fúsa (Þjóðsögur
Jóns Árnasonar) sem sat úti á jóla-
nótt og stóðst lengi þangað til ein
álfkonan kom með stóra flotskildi
og bauð honum að bíta í. Þá leit
Fúsi við og sagði það sem síðar er
að orðtæki haft: „Sjaldan hef ég
flotinu neitað“. Beit hann þá bita
úr flotskildinum, trylltist og varð
vitlaus.
Best að sleppa því.
„Fólk trúði því
að ef fyrsti
dagurinn í janúar
félli á sunnudegi
yrði veturinn spakur
og staðvindasamur,
sumarið þurrt, hey-
skapur mikill, vöxtur
góður í nautum,
kerlingadauði, nægð
og friður eins og
segir í þjóðsögunum.
Verra væri það ef 1.
janúar félli á laugar-
dag. „Þá ferst sauðfé
og þá deyja gamlir
menn.
Á krossgötum Krossgötur hafa mikla merkingu í bæði trú og hjátrú hjá
flestum þjóðum og þá sérstaklega þegar kemur að því að standast einhvers
konar freistingar eða breyta til hins betra. Nýársnótt þótti mjög þýðingarmik-
il tímasetning en þá fara alls konar verur á stjá og því um að gera fyrir hug-
rakka að mæta þessum fyrirbærum með viljastyrkinn að vopni. Mynd Jonatan Pie
Flugeldar Á miðnætti Að skaupinu loknu
förum við út að skjóta upp flugeldum enda þarf
að brenna gamla árinu í burtu. Mynd Carlos doMínguez