Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Page 6
6 Helgarblað 12. janúar 2018fréttir Ó ttastjórnun, starfsmaður kærður fyrir alvarlegt kyn- ferðisbrot, óviðeigandi samskipti yfirmanns við kvenkyns skjólstæðinga og and- lát sem aldrei hefði átt að eiga sér stað. Þetta eru atvik sem koma við sögu á síðustu tveimur árum á meðferðarstöðinni og tengjast rekstri Krýsuvíkursamtakanna á meðferðarheimili í Krýsuvík. „Ég dey í kvöld,“ sagði ungur maður, Jón Einar Randversson, við vini sína og ráðgjafa með- ferðarheimilisins þegar hon- um var vísað úr meðferð í byrjun október. Jón Einar hafði dvalið í níu vikur í Krýsuvík. Hann hafði ekki lokið meðferð sem tekur sex mánuði. Samkvæmt heimildum DV hafði Jón Einar staðið sig með miklum sóma og þótti starfsfólki og öðrum skjólstæðingum með- ferðarheimilisins brottvísunin afar ósanngjörn. Daginn eftir var Jón Einar látinn. Gríðarleg starfsmannavelta Þetta er aðeins eitt dæmi af nokkrum sem virðast benda til þess að pottur sé brotinn í mál- efnum meðferðarheimilis Krýsu- víkursamtakanna. Heimildir DV herma að nokkrir stjórnenda og starfsmanna heimilisins hafi síð- ustu misserin átt óviðeigandi samskipti og sambönd við skjól- stæðinga heimilisins og hef- ur einn þeirra kært fyrrverandi starfsmann til lögreglu fyrir kyn- ferðisbrot. Þá þykir stjórnun nokkurra helstu starfsmanna hafa verið mjög harðneskjuleg og ósanngjörn, bæði í garð skjól- stæðinga og undirmanna. DV hefur rætt við ótal starfsmenn og skjólstæðinga vegna þeirra mála sem upp eru komin. „Að mínu mati á að loka þessari stofnun,“ segir Inga Lind Gunnarsdóttir, fyrrverandi ráð- gjafi sem starfaði hjá Krýsu- víkursamtökunum um hálfs árs skeið. Inga Lind segist hafa veru- legar efasemdir um að þar inn- andyra sé unnið faglegt starf og að árangurinn, sem stjórnendur hreykja sér af, sé í besta falli ýktur. „Þann tíma sem ég var þarna þá held ég að það sé einn sem sé enn edrú, sem tókst að bjarga. Aðrir eru á kafi í neyslu eða látnir,“ segir Inga Lind. Þá segir hún að aðrar meðferðarstofnanir, til dæm- is SÁÁ, nái mun betri árangri að hennar mati. Þá sé starfsmanna- veltan gríðarleg, þvert á það sem stjórnendur halda fram. Fjölskylda og vinir stjórna með- ferðarstöðinni Krýsuvíkursamtökin reka áfengis- og vímuefnameðferð fyrir fólk af báðum kynjum frá 18 ára aldri. Skjólstæðingarnir eru rúmlega 22 hverju sinni og eru jafnan þeir sem hafa átt í hve mestum vand- ræðum að fóta sig í samfélaginu og á öðrum meðferðarstofnun- um. Í kringum 15 manns starfa fyrir samtökin og tengjast þau sterk- um fjölskyldu- og vinaböndum. Framkvæmdastýra samtakanna er Lovísa Christiansen en sonur hennar, Þorgeir Ólason, er for- stöðumaður meðferðarheim- ilisins. Á skrifstofunni starfar einnig mágkona Þorgeirs og með- al annarra lykilstarfsmanna hafa valist nánustu vinir Þorgeirs. Hafa nýir starfsmenn fundið fyrir því á eigin skinni að falli þeir ekki inn í þá fjölskyldustemningu og þann kúltúr sem hefur myndast á heimilinu þá verði þeir ekki lang- lífir í starfi. Þorgeir heldur fram að starfsmannavelta sé lítil sem engin en heimildir DV segja allt aðra sögu. Starfsmenn hafa flúið eða verið reknir skyndilega og er þar fyrst og fremst skorti á faglegri umgjörð um að kenna varðandi ógöngurnar í stjórnun Krýsu- víkursamtakanna. Þá séu þeir látnir fara sem hafa út á starfs- hætti yfirmanna að setja. Óeðlilegt samneyti starfs- manna við skjólstæðinga Blaðamenn DV hafa síðustu daga átt samtöl við ótal einstaklinga Jón lést daginn eftir umdeilda brottvísun n „Ég dey í kvöld“ n Engir starfsmenn eftir klukkan fjögur n Gríðarleg starfsmannavelta n Fjölskylda og vinir stjórna meðferðarstöðinni n Óeðlilegt samneyti við skjólstæðinga Björn Þorfinnsson, Kristjón Kormákur Guðjónsson, Sigurvin Ólafsson bjornth@dv.is / kristjon@dv.is / sigurvin@dv.is Um Krýsuvíkursamtökin Krýsuvíkursamtökin eru sjálfseignarsamtök sem voru stofnuð árið 1986, upphaflega til að sjá um meðferð unglinga í vímuefnavanda. Eftir erfið byrjunarár var starfið endurreist og því breytt verulega árið 1997. Í dag reka samtökin áfengis- og vímuefnameðferð fyrir fólk af báðum kynjum frá 18 ára aldri og upp úr. Meðferðarheimilið er staðsett í Krýsuvík. Starfið á meðferðarheimilinu byggist á þremur þáttum; með- ferð, vinnu og námi. Meðferðin er grundvölluð á 12 spora kerfinu og felur m.a. í sér einkaviðtöl, hópfundi, fyrirlestra, kennslu og lík- amsrækt. Meðferðartíminn er að lágmarki sex mánuðir. Vinnan miðast við almenn húsverk innanhúss svo og viðhald á húsinu og nánasta umhverfi þess. Umsjón húsdýra er einnig í höndum vist- manna. Í samstarfi við Menntaskólann í Kópavogi er boðið upp á nám á framhaldsskólastigi fyrir skjólstæðinga. Námið er að miklu leyti sjálfsnám en kennarar menntaskólans hitta nemendur einu sinni í viku. Samkvæmt heimasíðu samtakanna starfa að jafnaði í kringum 15 manns við meðferðarheimilið, þar á meðal áfengisráðgjafar, kennarar, matreiðslumenn, handleiðarar, læknir, forstöðumaður, sálfræðingur, staðarhaldari og bílstjóri. Sigurlína Davíðsdóttir, prófessor emerita, er formaður samtak- anna. Framkvæmdastýra er Lovísa Christiansen og sonur hennar, Þorgeir Ólason, er forstöðumaður meðferðarheimilisins. Á heimasíðu samtakanna er heimilinu lýst sem framsæknasta meðferðarúrræði í Evrópu sem völ er á í dag. „Í raun og veru er þetta landsliðið í neyslu, fólkið sem er við það að fara að deyja „Að mínu mati á að loka þessari stofnun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.