Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Blaðsíða 7
Helgarblað 12. janúar 2018 fréttir 7 sem hafa komist í kynni við sam- tökin síðustu misserin, einkum fyrrverandi starfsmenn. Þeir hafa allir staðfest að samskipti ýmissa starfsmanna og yfirmanna við skjólstæðinga hafi verið óeðlileg og ósiðleg. Að minnsta kosti tve- ir starfsmanna hafi átt í lengra sambandi, ástarsambandi, við að minnsta kosti þrjá skjólstæðinga, á meðan þeir hafi verið í meðferð á heimilinu. Rétt er að hafa í huga að skjólstæðingar Krýsuvíkur- heimilisins eru alla jafna afar illa settir andlega, og jafnvel líkam- lega, og oftar en ekki flytja þeir þangað inn af götunni. Þá greiða skjólstæðingar fyrir vistina. „Í raun og veru er þetta lands- liðið í neyslu, fólkið sem er við það að fara að deyja. Það voru ógnvekjandi aðstæður og ég fékk á engan hátt nægilegan stuðning né þjálfun til þess að sinna því starfi. Enginn sem þarna starfar er með menntun við hæfi. Það kem- ur læknir einu sinni í viku sem og ráðgjafi varðandi kynferðisbrot. Að öðru leyti eru starfsmenn að mestu ómenntaðir,“ segir fyrrver- andi starfsmaður. Þá segist hún strax hafa tekið eftir skrýtnum vinnubrögðum og áherslum for- stöðumannsins, Þorgeirs Ólason- ar. „Hann sat á fundum, alltaf að- eins hærra uppi en við og horfði valdsmannslega yfir okkur. Ef við vorum að ræða um einhvern skjólstæðing þá gerði hann oft athugasemdir eins og „eigum við ekki að reka hann?“ eða „er hann ekki bara að klæða sig í jakkann í þessum töluðu?“. Ég hugsaði oft hvernig hann gæti eiginlega hagað sér svona,“ segir annar starfsmaður. Björn kærður fyrir kynferðisbrot Samkvæmt heimildum DV eru skýrar reglur gegn samneyti starfsmanna við skjólstæðinga, rétt eins og á öðrum meðferðar- stofnunum. Heimildarmenn DV upplýstu hins vegar um að þegar í eitt skiptið komst upp um slíkt brot starfsmanns þá hafi hann verið leystur frá störfum sem ráð- gjafi en að hann hafi skömmu síðar verið ráðinn aftur sem bíl- stjóri fyrir heimilið. Jafnvel þó að þá hafi þegar verið starfandi bíl- stjóri en hann var látinn fara til að koma hinum brotlega starfs- manni aftur til starfa. Sögðu heimildarmenn DV að þetta væri aðeins eitt af mörgum dæmum um frændhygli stjórnenda. Um- ræddur starfsmaður var ekki löngu síðar aftur bendlaður við ósæmilegt athæfi gagnvart skjól- stæðingi og hefur hann nú vegna þess verið kærður til lögreglu fyrir kynferðisbrot. Konan staðfesti við DV að hafa kært manninn. Maðurinn, sem heitir Björn Ragnarsson, er um sextugt en skjólstæðingurinn um tvítugt. Í samtali við DV við Björn gengst hann við því að hafa farið út fyr- ir siðferðisleg mörk í samskiptum sínum við skjólstæðinga en neitar alfarið að hafa brotið gegn þeim kynferðislega eða að hafa átt við þá kynferðislegt samneyti. Svör hans í heild má lesa á öðrum stað í umfjölluninni. „Ég lagði fram kæru,“ segir konan sem kveðst þrátt fyrir það sem á undan hafi gengið elska Krýsuvík og segir meðferðina hafa bjargað lífi hennar. „Ég veit ekki hvar kæran er stödd í kerf- inu. Hann var látinn fara og ég hef engan áhuga á að vita hvar hann er niðurkominn.“ Auðvelt sé að misnota sér traust skjólstæðinga. „Það er svo auðvelt að verða hrifinn af ráðgjafanum sínum. Það verður svo mikil nánd á milli ráðgjafa og skjólstæðinga og fólk treystir þér fyrir lífi sínu og öll- um áföllum sem það hefur orðið fyrir og hefur jafnvel aldrei treyst öðrum fyrir. Maður ert skyndi- lega bjargvættur þeirra og skjól- stæðingarnir dýrka mann, þeir elska mann út af lífinu. Maður ert fyrsta manneskjan sem viður- kennir þá. Þess vegna eru mjög strangar siðareglur,“ segir fyrr- verandi starfsmaður og bætir við: „Þessar reglur eru bara ekki virt- ar.“ Nokkrir starfsmenn og skjól- stæðingar sem DV hefur rætt við telja að yfirmaður með- ferðarheimilisins, Þorgeir, hafi átt í óeðlilegum samskiptum við skjólstæðing. Þorgeir, sem er um fimmtugt, er sagður eiga í sam- bandi við konu á þrítugsaldri sem hefur verið án vímuefna í skamman tíma. Rík áhersla er lögð á það í meðferðum bæði á Krýsuvík og hjá SÁÁ að fólk ein- beiti sér að eigin bata eftir með- ferð og forðist sambönd fyrst í stað. Þykir fyrrverandi starfsfólki Þorgeir ekki vera góð fyrirmynd í þeim efnum, bæði fyrir ráðgjafa og skjólstæðinga hans. „Ég dey í kvöld“ Heimildarmenn DV upplýstu blaðamenn um annað sláandi og sorglegt dæmi um að reglum heimilisins hafi verið beitt í þágu vildarvina stjórnenda. Meðal skjólstæðinga heimilisins á síð- asta ári var áðurnefndur Jón Einar Randversson, rúmlega þrí- tugur maður sem stóð sig vel í meðferðinni og var á réttri leið. Skömmu síðar kom kona í með- ferð á heimilið en hún var frænka eins lykilstarfsmanns. Hún og Jón Einar áttu sér forsögu sem par en reglur eru hins vegar stífar um samneyti skjólstæðinga. Tekið skal fram að þau höfðu verið par þegar þau voru á unglingsaldri. Þegar slíkar eða aðrar svipað- ar aðstæður eru uppi setur heim- ilið jafnan upp samskiptabann „Hann var látinn fara og ég hef engan áhuga á að vita hvar hann er niður- kominn Jón Einar Randversson Fyrrverandi starfsmenn gagnrýna brottvísun Jóns Einars. Degi síðar fannst hann látinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.