Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Blaðsíða 28
28 tímavélin Helgarblað 12. janúar 2018 1602 „Höggðu betur, maður“ Í Skarðsárannál segir frá aftöku Björns Þorleifssonar, þeirri fyrstu sem framkvæmd var samkvæmt Stóradómi. Björn var líflátinn fyrir kvennamál og svall en fékk góða iðran frá Oddi Einarssyni Skálholtsbisk- upi. Í annálnum segir að Björn hafi gengið keikur til móts við dauðann, kvaddi hann menn með handabandi og lagð- ist síðan óbundinn á högg- stokkinn. En böðullinn var þá orðinn „gamall og slæmur og krassaði í höggunum.“ Björn lá kyrr í fyrstu en eftir sex högg sneri hann sér að böðlinum og sagði: „Höggðu betur, mað- ur!“ Þessi hvatningarorð virð- ast þó ekki hafa haft teljandi áhrif því að 30 högg þurfti til að ná höfðinu af Birni. „Var það hryggilegt að sjá.“ H oldsveiki er sjúkdómur sem fæstir Íslendingar kannast við í dag nema úr bíómyndum og sögu- bókum. Sjúkdómurinn hefur fylgt mannkyninu í árþúsund en í dag finnst hann einungis í þróunar- ríkjum. Holdsveiki var útbreidd á Íslandi um aldir og vegna útlits- lýta sjúkdómsins fylgdi honum mikil skömm og sjúklingarnir lifðu yfirleitt í einangrun við bágar að- stæður. Líkt og annars staðar á Vesturlöndum tókst að uppræta holdsveiki á Íslandi með einangr- un og lyfjagjöf á 20. öldinni. Síð- ustu tveir sjúklingarnir, Margrét og Jósefína, létust á áttunda áratugn- um eftir langa vist á Kópavogshæli en grunur leikur á því að önnur þeirra hafi verið ranglega greind. Fylgdi Íslendingum sjö aldir Í fornri siðmenningu Egyptalands, Grikklands, Kína og Indlands var holdsveiki vel þekkt en sjúkdómur- inn barst til Íslands á þrettándu öld. Þetta er bakter- íusýking, skyld berkl- um, sem heitir upp á latínu Mycobact- erium leprae og ræðst á taugafrum- ur í húð, andliti, út- limum og fleiri stöð- um. Í raun eru þetta tveir sjúkdómar; lík- þrái og limafalls- sýki en seinni gerðin lýsir sér í dofa eða lömun. Holdsveiki er hægsmitandi og helst því yfirleitt í fjölskyldum eða milli fólks sem er í mikilli návist við hvert annað. Útbreiðsla holdsveikinnar var hæg á Íslandi til að byrja með en á sautjándu öld var veikin orðin að slíkum faraldri að aðgerða þótti þörf. Hræðslan og trúaróttinn við smit- aða var gríðarlegur. Um miðja öldina voru settir á laggirnar fjórir holds- veikraspítalar, hver í sínum fjórðungi, en þeir voru ekki spítalar í nútíma- skilningi þess orðs. Fólk fékk þar ekki lækningu heldur bjó nokkurs konar klausturlífi og við mikinn skort. Um miðja nítjándu öldina voru spítalarnir aflagðir en þá voru holdsveikir á þriðja hund- rað í landinu. Undir lok aldarinn- ar gaf danska Oddfellow-reglan Íslendingum holdsveikraspítala sem vígður var í Laugarnesi árið 1898. Var þetta stærsta timburhús landsins með sextíu sjúkrarúmum. Sjúkum fækkaði hratt næstu árin, í hundrað laust eftir aldamótin og niður í tuttugu árið 1940. Við hernámið tók breski herinn hús- ið yfir og brann það þremur árum síðar. Sjúklingarnir voru færðir yfir í Kópavogshælið þar sem fyrir voru berklasjúklingar. Seinna voru þroskaskertir og fatlaðir fluttir þar inn. Holdsveikum fækkaði stöðugt uns tvær konur voru þar eftir á átt- unda áratugnum. Röng greining Kristjana Sigurðardóttir þroska- þjálfi hóf störf á Kópavogshæli árið 1960 og vann þar um langa hríð. Hún þekkti Margréti og Jósefínu. „Þær töluðu ekki mikið um sitt líf. Okkur stelpunum fannst vera mikill leyndarhjúpur yfir þeim af því að þær voru þarna í einangr- un. Jafnvel að þær væru búnar yfir náttúrulegum kröftum vegna örlaga sinna.“ Þær höfðu verið teknar frá fjölskyldum sínum og voru komnar á háan aldur. Margrét þótti fáskiptin og bitur og hélt sér meira til hlés en Jósef- ína. Hún var fædd árið 1897 og kom inn á hælið árið 1952. Jósefína var Guðmundsdóttir, fædd árið 1892 og alin upp á Snæfellsnesi. Hún flutti ung til Reykjavíkur þar sem hún starfaði sem þvotta- og saumakona þar til hún kom inn á hælið árið 1957, síðust Íslendinga. Henni þótti góð tilbreyting að fá heimsóknir frá stúlkunum og spáði fyrir þær í bolla. Grímur Magnússon taugalækn- ir annaðist konurnar síð- ustu árin. Í Morgunblað- inu árið 1984 segir hann: „Starf mitt var aðallega fólgið í því að sinna sjúk- lingunum manneskju- lega. Holdsveikin var búin að vinna sitt á þeim og mitt hlutverk var því að sinna líkam- legum kvillum þeirra […] Þær voru ekki smitberar og á þeim sáust engin veruleg örkuml svo óvanur maður hefði ekki tekið eftir neinu óeðlilegu.“ Á þessum tíma voru til svokölluð súlfalyf sem gáfust ágætlega en konurnar neituðu að taka þau. Óvíst er hvort þær hafi báðar verið með sjúkdóminn. Edda Björg Kristmundsdóttir, barnabarn Jósef- ínu, segir: „Hún var ranglega greind og var vissulega tekin úr umferð. Hún reyndist ekki vera með þennan sjúkdóm en það var mikið áfall að vera komin með þennan stimpil.“ Hún segist þó ekki vita hvert mein Jósefínu var og þetta hafi ekki verið mikið rætt í sín eyru. Allt sótthreinsað Á áttunda áratugnum voru Jósef- ína og Margrét orðnar heimilis- fastar á Kópavogshæli og þrátt fyrir að vera í nokkurs konar fang- elsisvist er óvíst hvort þær hefðu viljað og getað farið eitthvert ann- að. Báðar áttu þær fjölskyldur og fengu heimsóknir. Jósefína fór einnig í bæjarferðir af spítalan- um. Edda ólst upp í öðrum lands- hluta en man eftir að hafa heim- sótt ömmu sína á Kópavogshælið: „Hún lifði alveg sínu lífi. Ég vissi ekkert af þessu fyrr en hún var látin.“ Jósefína sat ekki iðjulaus á Kópavogshæli. Hún nýtti reynslu sína sem saumakona og gerði við föt fyrir vistmenn. Starfsfólkið sótti fötin til hennar og setti í sér- staka kistu og þar voru þau sótt- hreinsuð. Þó að talið væri að Jósefína væri ekki smitandi á þessum tíma var enn mikil hræðsla hjá stjórnend- um. Kristjana segir: „Við vorum náttúrulega svo ungar og hrædd- umst ekki neitt en við virtum þess- ar reglur um sóttvarnir.“ Umgang- ur um holdsveikradeildina átti ekki að vera mikill og Margrét og Jósefína fengu ávallt matinn sinn sendan. Það fór ágætlega um þær á spítalanum og þær höfðu hvor sína stofuna. Orgel var á staðnum og þar voru haldnar messur. Mar- grét lést árið 1974 sem mögulega síðasti holdsveikisjúklingur Ís- landssögunnar. Þá var Jósefína orðin ein á deildinni en hún flutti skömmu síðar á öldrunardeild Landspítalans við Hátún þar sem hún lést árið 1979. Áður en hún yfir gaf Kópavogshæli gaf hún Hall- grímskirkju messuklæði, altaris- dúka, silfurstaup og fleiri gripi sem höfðu verið eign sjúklinganna á holdsveikradeildinni. Hallgríms- kirkja er einmitt nefnd eftir Hall- grími Péturssyni, höfundi Passíu- sálmanna, sem lést af holdsveiki árið 1674. n „Áfall að vera komin með þennan stimpil“ Síðustu sjúklingarnir á holdsveikradeildinni: n Önnur sögð ranglega greind n Gerði við föt fyrir spítalann Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Kópavogshæli Vísir, desember 1977. Jósefína Guðmundsdóttir Gaf Hallgrímskirkju muni af holdsveikradeildinni. Íslenskir holdsveikisjúklingar Morgunblaðið, desember 1984.„Ég vissi ekkert af þessu fyrr en hún var látin. Gamla auglýsingin Morgunblaðið, 18. sept. 1963 1992 Múgur gerði aðsúg að Sophiu Hansen Forræðisdeila Sophiu Hansen og hins tyrkneska Halim Al yfir tveim dætrum þeirra var eitt af stærstu fréttamálum tí- unda áratugarins. Þegar mál- ið var dómtekið í Istanbúl 24. september árið 1992 gerðu um 200 manns aðsúg að Sophiu og fylgdarfólki hennar. Ókvæðis- orðum rigndi, hrækt var á þau og Sophia sjálf slegin í and- litið, og 50 lögreglumenn þurfti til að hafa hemil á reið- um mannfjöldanum. Gunnar Guðmundsson lögfræðingur Sophiu sagði við DV: „Við átt- um fótum okkar fjör að launa og vorum heppin að sleppa lif- andi.“ Margir blaðamenn voru á staðnum en málinu var frestað um mánuð vegna þess að ný gögn höfðu verið lögð fram.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.