Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Blaðsíða 46
34 menning Helgarblað 12. janúar 2018 Þ egar ég var í denn að byrja að uppgötva heiminn í París, man ég , hvað ég var heilluð af hugmyndinni um leikhús alþýðunnar – Théatre Nationale Populaire. Hugmyndin um slíkt leikhús hafði kviknað á árunum eftir fyrri heimsstyrj­ öldina og Evrópa í rúst. Háir sem lágir, fátækir sem ríkir, skyldu eiga þess kost að sækja sér menntun og afþreyingu í leikhúsið fyrir hóf­ legt verð – og var þá tekið mið af verði gass og rafmagns, að sagt er – sem eru líka lífsnauðsynjar. Á sjöunda áratugnum stóð Théatre Nationale Populaire á hátindi frægðar sinnar, naut mikilla vin­ sælda, einkum meðal alþýðunnar og fátækra stúdenta, sem áttu þess kost að sækja leikhús fyrir andvirði eins kaffibolla. Þarna sá ég verk eftir Moliére, Ibsen og Brecht í fyrsta sinn. Ógleymanlegar stund­ ir – lærdómsríkar og upplyftandi. Théatre Nationale Populaire er að vísu ekki til lengur í upprunalegri mynd. Nýfrjálshyggjan ræður þar för sem víðar. Arðurinn skilar sér til hluthafa í lok hvers árs. Þetta rifjaðist upp fyrir mér, þegar ég leit augum aðgangseyri að Skúmaskoti, nýjasta verki Sölku Guðmundsdóttur, sem er ætlað börnum átta ára og eldri og var frumsýnt um seinustu helgi. Mið­ inn slagar upp í fimm þúsund kall­ inn – og mig sundlaði. Foreldrar og tvö börn, tuttugu þúsund krón­ ur! Þetta háa verð er beinlínis ávís­ un á stéttaskiptinguna umtöluðu, misskiptingu milli ríkra og fátækra. Milli þeirra sem hafa ekki efni á að kaupa sér miða og hinna, sem gera það án þess að spyrja um verð. Leikhúsin eru að hugsa til fram­ tíðar, gott og vel. Börn sem venj­ ast á það að fara í leikhús frá unga aldri, ánetjast leiklistinni og eru fastagestir framtíðarinnar – tekju­ lind leikhúsanna. En leikhúsin þurfa að gera meira. Þau þurfa líka að hugsa um þau, sem minna mega sín, þarfnast leiðsagnar, menntun­ ar, hjálpar. Eru varnarlaus í þessu stríði um krónur og aura og þegar komin út í afkima þjóðfélagsins. Þau eiga sér líka framtíð, sem þarf að huga að. Er ekki kominn tími til að endurvekja hugsjónina um leik­ hús alþýðunnar? Börnum er skylt að sækja skóla, og þess er ekki kraf­ ist, að þau borgi aðgöngumiðann – að minnsta kosti ekki framan af. Leikhúsið þjónar hliðstæðu hlut­ verki. Það opnar okkur sýn á okkur sjálf og samfélagið og víkkar sjón­ deildarhringinn. Það má ekki verða lokaður forréttindaklúbbur. Er það ekki verðugt samfélagsverkefni að opna dyr leikhússins fyrir barna­ fjölskyldum, rétt eins og dyr skól­ anna? Æsispennandi atburðir Alla vega – ég er mikill aðdá­ andi Sölku Guðmundsdóttur og er búin að hlakka lengi til að sjá annað verk eftir hana. Hið fyrra var Súldarsker, sem ég tel meðal allra bestu verka, sem ég hef séð í íslensku leikhúsi. Tvær aðkomu­ stúlkur í litlu þorpi fyrir vestan og gera allt vitlaust – í orðins fyllstu merkingu. Alger snilld! Nema hvað, sýningin í Borgar­ leikhúsinu hefst með skemmti­ legri innkomu Halldórs Gylfasonar, kaupmanns í Skeifunni, sem án fyrirhafnar slær á létta strengi og kemur okkur öllum í gott skap – er reyndar mjög léttur í hreyfingum líka – svo að eftir er tekið. Sýningin lofar góðu, og augljóst að Salka er í essinu sínu. Við erum öll strax far­ in að hlæja, jafnvel þótt við séum sum ekki einu sinni orðin átta ára og höfum aldrei farið í leikhús áður. Skömmu seinna birtast tvær systur,sem eru hvor annarri skrýtnari og mælskari. Það eru þær Þórunn Arna Kristjánsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir, sem eiga eftir að koma okkur á óvart aftur og aftur með orðgnótt, fimi, leikbrellum og sannfærandi leik. Þær eru svona dæmigerðir ung­ lingar, sem hanga yfir appinu og lifa í ímyndaðri veröld. Vildu helst vera lausar við afdankaða foreldra, sem eru alltaf að rífast og leyfa þeim ekki einu sinni að stunda partý um nætur. Partý, partý, þær hugsa ekki um annað. Og þeim verður að ósk sinni. En partýstað­ urinn er í undirheimunum, og þá flækjast málin óhjákvæmilega. Undirheimarnir eru í afkimum holræsa borgarinnar – líklega í nágrenni við Skeifuna. Þar gerast æsispennandi atburðir, sem mað­ ur þarf að leggja sig allan fram um að fylgjast með – ég tala nú ekki um, ef maður er bara átta ára og í fyrsta skipti í leikhúsi. Hall­ dór, í gervi kaupmannsins, dettur um tíma út úr sögunni (sem er ósanngjarnt, því að hann er svo skemmtilegur og fyndinn), en í staðinn er kominn sami Halldór í gervi húsvarðar holræsanna. Ger­ samlega óþekkjanlegur, auk þess sem hann segir ekki orð. En léttar hreyfingar koma upp um hann. Fyrirferðarmikil umgerð Svo er þarna sú sem öllu ræður í holræsunum, Maríanna Klara Lúthersdóttir. Hún er svo skörug­ leg að maður bara beygir sig í duft­ ið. Mér til mikillar gleði sá ég, að þarna er komin ein af mínum uppáhaldsleikkonum – sú sem sló í gegn um árið í Súldarskeri. Og ekki hefur krafturinn dvínað – ég sæi hana alveg fyrir mér í hlut­ verki lafði Macbeth. Hún mundi rúlla henni upp með glæsibrag. Um tíma eru systurnar í lífsháska. Þeim tekst þó að lokum að ryðja sér braut út úr holræsunum og komast aftur til manna. Og bjarga lífi húsvarðarins, sem er reynd­ ar tvíburabróðir kaupmannsins í Skeifunni, sem þess vegna datt um tíma út úr sögunni. Já, Halldór er sem sagt í tveimur hlutverkum og fer létt með það. Það mætti næstum halda, að sýningarstjórinn, ásamt leik­ myndasmiði, ljósameistara og tónlistarfólki, hafi fengið frjálsar hendur og flippað út. Á einhvern óskiljanlegan hátt tekst þeim í þessu litla rými að tengja saman tvo heima, ofanjarðar og neð­ an, eins og ekkert sé eðlilegra. Og holræsin eru svo óttavekjandi, að ungir áhorfendur varpa öndinni heyranlega, þegar systurnar tvær með húsvörðinn og nýju vinkonu sína í eftirdragi snúa til mann­ heima – aftur komin til kaup­ mannsins í búðinni, þar sem bara fást lífrænt ræktaðar baunir. En hvað er þá að segja um þetta leikhúsverk, ætlað börnum eldri en átta ára? Salka hefur frjóa hugs­ un og kann vel til verka. Samtölin eru leikandi létt, og henni lætur vel að túlka hugsun barna og ung­ linga. Það hefur hún fyrir löngu sýnt og sannað. En einhvern veg­ inn er eins og umgerðin að verk­ inu sé of fyrirferðarmikil. Tækni­ brellurnar draga athyglina frá textanum – boðskapnum. Hann týnist í öllum hamaganginum. Það hefði verið til bóta að stytta verkið, þétta það, gera það einfaldara og auðskiljanlegra – og leyfa Sölku að hafa orðið. n Partý, Partý, Partý Bryndís Schram ritstjorn@dv.is Leikhús Skúmaskot Höfundur: Salka Guðmundsdóttir Leikstjórn: Gréta Kristín Ómarsdóttir Leikarar: Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Vala Kristín Eiríksdóttir, Halldór Gylfason og Maríanna Klara Lúthersdóttir. Leikmynd og búningar: Eva Signý Berger Leikgervi: Elín S. Gísladóttir Lýsing: Juliette Louste Tónlist: Axel Ingi Árnason Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen Sýningarstjórn: Þórey Selma Sverrisdóttir. Sýnt í Borgarleikhúsinu „Við erum öll strax farin að hlæja, jafnvel þótt við séum sum ekki einu sinni orðin átta ára og höfum aldrei farið í leikhús áður. Stuð á litla sviðinu Bryndís Schram skemmti sér vel yfir Skúmaskoti, nýju barnaleikriti eftir Sölku Guðmundsdóttur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.