Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Blaðsíða 60
Vikublað 12. janúar 2018
Vel mælt
Orðabanki Birtu: Epalhommi
epalhommi - eða bara hommi?
Orðið Epalhommi var valið orð ársins 2017 af RÚV, Árnastofnun og
félagi íslenskunema í háskólan-
um. Eins og flestir vita er orðið
samansett úr orðinu Epal, sem er
sérverslun með hönnunarvörur,
og orðinu hommi, sem er það orð
sem við nútímafólk notum yfir
samkynhneigða karlmenn í dag.
Hommar hafa ekki alltaf átt
sjö dagana sæla hér á landi.
Fram undir lok síðustu aldar
voru hin ýmsu uppnefni höfð
um samkynhneigða karla, flest
niðrandi og mörg í kynferðisleg-
um tón. Orðið hommi er hins
vegar laust við slíkar tengingar
þar sem það er stytting og
einföldun á alþjóðlega orðinu
„homosexual“. Homo er myndað
af gríska orðinu „homós“ sem
þýðir sami eða sjálfur og latneska
orðinu „sexus“ sem notað er um
kynferði. Með öðrum orðum
sam-kyn-hneigð.
Kynvillingur var algengt orð
hér áður fyrr og samkynhneigðir
sjaldan kallaðir annað. Á árabil-
inu 1980–1989 kemur orðið
120 upp í leit, 83 sinnum frá
1970–1979 og 22 frá 1950–
1959 en aðeins sex sinnum
frá 2010– 2018. Þá er gam-
an að geta þess að orðið
trúvillingur kom upp 29
sinnum frá 1960–1969
en aðeins tvisvar sinnum
frá 2010–2018.
Úr íslensku orðabókinni
Samheiti
HOMMI attaníoss, kynvillingur, samkynhneigður maður, öfuguggi, samkyn-
hneigður, argur, hinsegin, hinum megin við stakketið, hómósexúal, hýr,
kynhverfur, kynvilltur, sódómískur, öfugur.
Vefarinn mikli fá Kasmír - 54. kafli
Salvatore hafði numið sér land í öryggi og hneigði sig kurteislega fyrir
ríngulreið hégómans, í svartliðaskyrtu, með eingleri. Hann lagði stund á
íkónógrafíu. Slíkt gerir einginn nema hann kunni alla veröldina utanbókar.
Bambara Salvatore hafði dvalist í Róm meðal preláta, í Monte Cassino
meðal kanúka, á Bretlandi meðal lávarða, í París meðal listamanna, í Berlín
meðal kynvillínga, í New York meðal auðmærínga, í Kaliforníu meðal
kvikmyndaleikara, í Indíá meðal jógína, í Moskvu meðal taflmanna. Meðan
evrópumenn drógu um barkann hver á öðrum fyrir frelsið og föðurlandið
dvaldist Bambara Salvatore til skiftis í Austurlöndum og Vesturheimi og dró
dár að þessum apaköttum.
Verk Halldórs Laxness (Snara.is)
42
ára
39
ára
48
ára
DaVíð oDDsson
Fæddur: 17. janúar 1948
Starf: Lögfræðingur, fjöl-
miðla- og stjórnmálamaður
inga linD karlsDóttir
Fædd 15. janúar 1976
Starf: Sjónvarpskona
helgi seljan
Fæddur: 18.
janúar 1979
Starf: Fjölmiðla-
maður
margrét hrafnsDóttir
Fædd: 16. janúar 1970
Starf: Athafnakona
70
ára
„Konur eru aldrei
ungar í anda.
Þær fæðast þrjú
þúsund ára gamlar.
- Shelagh Delaney
Afmælisbörn vikunnar
60