Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Qupperneq 67

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Qupperneq 67
fólk - viðtal 55Helgarblað 12. janúar 2018 Gerður hjá Blush.is hannar fyrsta íslenska kynlífstækið G erður Huld Arinbjarnar­ dóttir, betur þekkt sem Gerður í Blush stofnaði sitt fyrsta fyrirtæki þegar hún var einungis 21 árs. Gerður réðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur enda hefur hún alltaf ver­ ið ævintýragjörn og dreymin, en þegar kom að vali á fyrirtækja­ rekstri ákvað hún að stofna kyn­ lífstækjaverslun. Blush.is, kynlífstækjaverslun Gerðar, er nú orðin sjö ára og á þeim stutta tíma sem liðið hefur síðan fyrirtækið varð til hefur mikið breyst hvað varðar viðhorf Íslendinga til kynlífs. Umræðan hefur aldrei verið opnari og ekki er lengur feimnismál að ganga inn í kynlífstækjaverslun og kaupa tæki. Margt hefur gengið á í lífi Gerð­ ar síðan hún hóf rekstur sinn á fyrirtækinu og kom hún á fund blaðakonu á kaffihúsi í Kringlunni til þess að ræða um verslunina, Snapchat, erfið sambandsslit ásamt magabandsaðgerð sem hún fór nýlega í. Ung móðir og atvinnulaus eftir fæðingarorlof „Upphafið á Blush.is var þannig að ég og vinkona mín, Rakel Ósk, fengum þá hugmynd að stofna fyrirtæki saman. Við vorum báð­ ar búnar að vera í fæðingarorlofi, vorum atvinnulausar og langaði að prófa eitthvað nýtt. Við enduð­ um svo í kynlífstækjunum, sem er kannski svolítið sérstakt,“ segir Gerður og hlær. Hún og Rakel Ósk fengu þá hugmynd að bjóða upp á ókeypis heimakynningar sem var nýbreytni á þessum tíma. „Þar sem ég var svo ung og átti engan pening þá fór ég til pabba og bað hann um hjálp. Ég man enn þá eftir því hvað ég var ótrú­ lega stressuð. Þetta er ekki beint þægilegasta umræðan til þess að eiga við pabba sinn, en ég spurði hann hvort hann gæti lánað mér pening og hann spurði mig auð­ vitað til hvers. Ég sagði honum að ég ætlaði mér að stofna fyrirtæki og hann spurði mig þá um hvers konar fyrir tæki væri að ræða og ég sagði honum að mig langaði til þess að opna kynlífstækjaversl­ un. Hann horfði á mig og beið í smá stund, svo sagði hann við mig að það væri nú margt vitlausara í heiminum heldur en það og lagði bara inn á reikninginn minn. Þannig að við getum þakkað pabba mínum fyrir það að Blush. is er til í dag,“ segir Gerður kímin. Gerður segir að reksturinn hafi að mestu gengið vel en af og til hafi komið tímabil þar sem ekki áraði vel. „Þetta hefur verið ótrúlegur skóli fyrir mig og ég hef aldrei séð eftir þessari ákvörðun. Þetta er skemmtilegasta vinna sem ég hef verið í og ég segi stundum að ég sé mjög fullnægð í starfi,“ segir Gerð­ ur og hlær. Elskar að fræða fólk um kynlíf Gerður stofnaði opinn Snapchat­aðgang undir nafninu blush.is fyrir tveimur og hálfu ári sem notið hefur mikilla vin­ sælda. „Viðtökurnar voru eigin­ lega ótrúlegar. Það vissi engin hver Gerður í Blush var áður en ég opnaði snappið en í dag þegar ég er á almannafæri þá finn ég alveg að fólk er að fylgjast með mér.“ Gerður tók þá ákvörðun að vera mjög persónuleg á snappinu sínu og vera ekki eingöngu að kynna vörurnar sem hún er að selja held­ ur einnig leyfa fólki að kynnast henni nánar. „Ég ræði við fólk um mína upp­ lifun og fræði það sömuleiðis um ýmislegt tengt kynlífi eða kyn­ lífstækjum. Ég reyni að hafa þetta eins persónulegt og smekklegt eins og ég get.“ Gerður segir að lítið hafi borið á áreiti í gegnum Snapchat en hún hafi þó lent í því einstaka sinnum. „Ég hef fengið sendar typpamyndir og fæ stundum kannski einhver skilaboð sem eru óviðeigandi en það er mikill minnihluti sem sendir dónaleg eða leiðinleg skilaboð.“ Ástarlífið eftir erfið sambandsslit Fyrir rúmlega hálfu ári hættu Gerður og þáverandi kærasti hennar Niels saman eftir fjögurra ára fjarsamband. „Við vorum í sama geiranum, hann er líka að selja kynlífstæki og við erum bæði með netverslun. Við kynntumst á ráðstefnu úti í Þýskalandi og hann bjó í Hollandi og ég á Íslandi. Fjarsambandið var erfitt en jafnframt ótrúlega lær­ dómsríkt og jákvætt á marga vegu. Þetta var ótrúlega gott og fallegt samband á meðan það varði. Það var sameiginleg ákvörðun okk­ ar að binda endi á sambandið og var hún ótrúlega erfið. Mér leið í marga mánuði eins og ég hefði misst ástvin þar sem við þurft­ um að slíta öllum samskiptum til þess að geta endað sambandið. Þannig að ég veit til dæmis ekk­ ert hvað hann er að gera í dag og hef ekkert heyrt í honum síð­ an ákvörðunin var tekin. En ég sé ekki eftir henni og ég sakna hans ekki sem kærasta, en að sjálfsögðu eru minningar sem maður sakn­ ar,“ segir Gerður sem kveðst ham­ ingjusöm í dag. Á svipuðum tíma og Gerður sleit sambandi sínu við Niels fór að bera á töluverðu þyngdartapi hjá henni. „Ég hafði verið að þyngjast hægt og rólega síðustu árin. Alltaf að bæta á mig einu og einu auka kílói og ég fann ýmsar heilsufars­ breytingar hjá mér. Ég var orðin aum í hnjánum og mjöðmun­ um og bara almennt – svona eins og fylgir því þegar maður er orðinn of þungur – þannig að ég tók ákvörðun um að fara í maga­ bandsaðgerð sem gekk ótrúlega vel.“ Gerður segir marga spyrja hana hvort hún mæli með aðgerðinni fyrir þá en hún segist eiga erfitt með að svara þeirri spurningu. „Ég er ánægð með að hafa farið í þetta sjálf en ég hef heyrt alls konar sögur, bæði já­ kvæðar og nei­ kvæðar, og það sem virkar vel fyrir mig virkar ekki endilega vel fyrir aðra og því er þetta virkilega persónuleg ákvörðun fyrir hvern og einn til þess að taka.“ Gerð­ ur segir að hugsun henn­ ar gagnvart mataræði hafi gjörbreyst eft­ ir aðgerðina og að hún sé mik­ ið meðvitaðri um það hvaða næringu hún setji ofan í sig. Kynlíf er svo stór hluti af lífinu Miklar breytingar hafa orðið á um­ ræðu og umfjöll­ un um kynlíf og kyn­ Aníta Estíva Harðardóttir anita@pressan.is n Opnar sig á Snapchat n Ræðir erfið sambandsslit og magabandsaðgerð lífstæki síðustu ár og telur Gerður að þakka megi fjölmiðlum og sam­ félagsmiðlum um hversu jákvæð breytingin hefur verið. „Það eru ekkert mörg ár síðan það fóru að koma greinar á vef­ miðlum um kynlíf og þess háttar, þetta var svo mikið tabú. En í dag er mikið skrifað um þetta og þetta er orðið svo miklu miklu eðli­ legra.“ En hver er framtíðin hjá Gerði? „Ég hef verið að hanna mína eigin vöru sem er að koma á markað, vonandi á fyrsta ársfjórðungi. Stefnan er svo bara að halda áfram að auka við mig þekkingu og halda áfram að fræða fólk í gegnum snappið. Það skiptir mig ótrú­ lega miklu máli að halda áfram að fræða fólk og auka þekk­ inguna og umræðuna enn frekar.“ Blaðamaður forvitnast örlítið meira út í nýju vöruna sem Gerð­ ur hannaði og spyr hana hvort hún hafi prófað hana sjálf. „Já, þetta er vara fyrir konur, en ég er ekki að finna upp hjólið. Það eru til sambærilegar vörur á markaðnum en þrátt fyrir það er þetta fyrsta íslenska kynlífstæk­ ið og það er alltaf skemmtilegt. Ég hef prófað það og þetta er nýja uppáhaldstækið mitt. Ég vona að öðrum muni líka það einnig.“ n
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.