Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Blaðsíða 62
Vikublað 12. janúar 2018
Birta mælir með
50
UPPSKRIFT
Í
dýfur undir mexíkóskum áhrif-
um eru alltaf sérlega vinsælar,
ekki síst meðal unga fólksins
sem hreinlega elskar allt sem
mexíkóskt er í matargerðinni.
Þessi girnilega uppskrift kemur
úr smiðju Rósu Guðbjartsdóttur
sem hefur gefið út fjölda upp-
skriftabóka á síðustu árum en
rétturinn er alveg tilvalinn til að
bera fram á kósíkvöldi.
INNKAUPALISTINN
n 100 g guacamole
n 1 dós nýrnabaunir, niðursoðnar
n 1 lítill rauðlaukur, smátt saxaður
n 150 g sýrður rjómi eða grísk
n jógúrt
n 180 g salsasósa
n 1 dl blaðlaukur eða vorlaukur,
saxaður
n handfylli ferskt kóríander
n tortillaflögur eða nachos
Útbúið guacamole samkvæmt
uppskrift hér að neðan. Setjið í
botninn á fallegri glerskál. Maukið
síðan nýrnabaunirnar (fást líka
maukaðar) og blandið saman við
saxaðan rauðlauk. Dreifið því yfir
guacamole. Setjið því næst sýrðan
rjóma ofan á og salsasósu. Stráið
blaðlauk og kóríander þar ofan á og
berið fram með tortillaflögum eða
nachos eins og sumir kalla það.
Guacamole
n 2 avókadó, vel þroskuð
n ½ rauðlaukur, smátt saxaður (má
nota annan lauk)
n 1 grænt chili, saxað örsmátt
n 2–4 hvítlauksrif, marin (magnið fer
eftir smekk)
n 2 tómatar, fræ- og kjarnhreinsaðir,
saxaðir smátt
n ferskt kóríander, að smekk (má
sleppa)
n 3 msk. límónu- eða sítrónusafi
n salt á hnífsoddi
Maukið avókadóið og blandið öðru
hráefni saman við. Berið fram strax.
Njótið með fjölskyldunni eða í góðra
vina hópi á föstudags- eða laugar-
dagskvöldi!
Girnileg mexíkósk
ídýfa fyrir kósíkvöldið
DARK
Spennandi þættir sem gerast í
litlu afskekktu þorpi í Þýska-
landi. Börn hverfa og þegar
lögreglan fer að rannsaka hvörfin
kemur í ljós að nákvæmlega sömu
atburðir gerðust fyrir 33 árum. Þess-
ir þættir láta þig missa svefn.
HIMNARÍKI
OG HELVÍTI
Uppsetning Borgarleik-
hússins á þríleik Jóns Kalmans var
frumsýnt í Borgarleikhúsinu í gær en
BIRTA fékk að kíkja á forsýningu og
varð fyrir miklum áhrifum. Stórbrotin
leikmynd og frábærir leikarar túlka
þessa merkilegu sögu eftir einn af
okkar fremstu rithöfundum.
BLÁI BJÓRINN
FRÁ BECKS
Nú eru margir í árlegu jan-
úarbindindi með tilheyrandi
hreinsunar-
kúrum. Ef þú
ert þeirra
á meðal,
en langar samt að
smakka eitthvað sem í
það minnsta líkist bjór,
þá er þessi afbragðs
drykkur frá BECKS lík-
legast sá besti sinnar
tegundar. Fæst meðal
annars í Fjarðarkaup-
um og 10-11 en ekki í
Vínbúðum.
TEYGJUR
Að viðhalda góðri heilsu
þarf ekki að kosta krónu og
sama hvað þú gerir, ekki gera
ekki neitt. Byrjaðu til dæmis bara á
því að teygja þig á morgnana og
svo nokkrum sinnum yfir daginn.
Áhrifin munu fljótlega skila sér í
meiri liðleika og betri líðan.
WHATS APP
Flest erum við mjög háð
Messenger-forritinu sem
fylgir Facebook en vissir þú
að Whats App er bæði öruggara
og betra samskiptaforrit? Það er
öryggiskóðað svo skilaboðin munu
aldrei leka út og að auki getur þú
eytt öllu sem þú sérð eftir að hafa
skrifað, ekki bara í þínu eigin appi
heldur hverfur það líka hjá þeim sem
fengu skeytið! Hentugt.