Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Blaðsíða 24
24 sport Helgarblað 12. janúar 2018
að gera í dag?
Hvað eru fyrrverandi
atvinnumenn
Heiðar Helguson
Málari
Ár í atvinnumennsku: 15
Landsleikir: 55
Eftir magnaðan feril í
atvinnumennsku flutti Heiðar
heim til Íslands. Þessi fyrr-
verandi sóknarmaður er ekki
týpan sem getur lengi setið
kyrr. Skömmu eftir að Heiðar
lauk farsælum ferli keypti
hann sér bát og kvóta, hann
var trillu karl og gerði bát sinn
út frá Hafnarfirði. Hann seldi
síðan bátinn og starfar í dag
sem málari. Heiðar var harður
í horn að taka sem leikmaður
og kallar ekki allt ömmu sína,
sama hvort það varði boltann
eða pensilinn.
Auðunn Helgason
Lögmaður
Ár í atvinnumennsku: 7
Landsleikir: 35
Auðunn á og rekur sína eigin
lögmannsstofu. Lögmannsstofa
Auðuns Helgasonar tók til starfa
1. september 2015 á Höfn í Horna-
firði. Auðunn lauk meistaraprófi
í lögfræði og fullnaðarprófi í
lögfræði frá lagadeild Háskólans
í Reykjavík í júní 2013 og fékk
réttindi til að vera héraðsdóms-
lögmaður í október 2014. Auðunn
hefur sérhæft sig á sviði stjórn-
sýsluréttar, skaðabótaréttar,
vátryggingaréttar, félagaréttar
og samninga- og kröfuréttar.
Lárus Orri Sigurðsson
Forstöðumaður Þelamarkar
Ár í atvinnumennsku: 10
Landsleikir: 42
Harðjaxlinn frá Akureyri átti flottan
feril á Englandi. Hann var öflugur
varnarmaður en hann lék með Stoke
og West Brom. Hann kom síðan heim
og lauk ferlinum með Þór á Akureyri
og ÍA. Skömmu eftir að Lárus kom
heim gerðist hann forstöðumaður
Þelamarkar sem er rétt fyrir utan
Akureyri þar sem hann sér um rekstur
á sundlaug og öllu því sem er í gangi á
svæðinu. Auk þess er Lárus Orri þjálfari
Þórs en hann stýrir liðinu í annað sinn.
Ríkharður
Daðason
Fjárfestir
Ár í atvinnumennsku: 6
Landsleikir: 44
Ríkharður Daðason er
líklega frægastur fyrir
mark sitt gegn Frakklandi
á Laugardalsvelli.
Heimsmeistarar Frakk-
lands komu í heimsókn
og Ríkharður skallaði
knöttinn af mikilli snilld
yfir Fabian Barthez. Eftir
að Ríkharður lauk ferli
sínum í knattspyrnu sneri
hann sér að viðskiptum og
starfaði lengi vel í banka.
Hann hefur síðan getið sér
gott orð sem fjárfestir.
Ívar Ingimarsson
Ferðamannageirinn
Ár í atvinnumennsku: 13 Landsleikir: 30
Varnarmaðurinn af Austurlandi átti góðan
feril í atvinnumennsku og hans bestu ár voru
með Reading frá 2003 til 2011 en þar var
hann stærstan hluta ferilsins. Ívar sneri heim
á æskuslóðirnar eftir að ferlinum lauk og
byggði upp ferðaþjónustu á Austfjörðum. Ívar
byggði upp gistihús í botni Stöðvarfjarðar og
þá fór hann í skógrækt og setti niður milljón
plöntur á jörð sinni sem vaxa og dafna.
Lítill
meðbyr
fyrir EM
í Króatíu
Handboltalandsliðið í
karlaflokki er að hefja leik á
Evrópumótinu í handbolta
en leikið er í Króatíu. Leikir
Íslands í riðlinum fara fram
í Split og hefur liðið leik í
dag, föstudag. Riðill Íslands
er sterkur og ljóst er að á
brattann verður að sækja.
Möguleikar Íslands liggja
gegn Svíþjóð og Serbíu en
ljóst er að brekkan er brött
þegar liðið mætir heima
mönnum.
Oft hefur verið bjartara
yfir íslensku handbolta
áhugafólki á leið inn í stór
mót, liðið er að ganga í
gegnum kynslóðaskipti og
ljóst er að þau munu taka
tíma. Síðustu tveir æfinga
leikir liðsins fyrir mótið
fóru fram um síðustu helgi
þegar liðið mætti Þýska
landi í tvígang. Liðið fékk
rækilega á baukinn í þeim
leikjum og er dökkt ský yfir
liðinu.
Aron Pálmarsson, ann
ar af tveimur leikmönn
um liðsins sem eru í
heimsklassa, glímir við
meiðsli í baki. Hann hefur
æft með liðinu síðustu daga
en bakmeiðsli geta verið
erfið að eiga við.
Leiðtogi liðsins er svo
Guðjón Valur Sigurðsson,
sem er einn ótrúlegasti
íþróttamaður sem Ísland
hefur átt. Guðjón varð um
síðustu helgi markahæsti
leikmaður sögunnar með
landsliði. Guðjón lék fyrst
með landsliðinu árið 1999
og hefur síðan verið lykil
maður í liðinu.
Það var Ívar Bene dikts
son, blaðamaður Morg un
blaðsins, sem tók saman
upplýsingar um þetta
magnaða afrek Guðjóns en
upplýsingar um þetta höfðu
ekki legið fyrir. Leikir Ís
lands fara fram næstu daga
en ef úrslitin verða hagstæð
fer liðið áfram í milliriðla
þar sem allt getur gerst.
hoddi@433.is
Þórður Guðjónsson
Framkvæmdastjóri
Ár í atvinnumennsku: 13 Landsleikir: 58
Þórður var leikinn kantmaður sem átti meðal annars farsælan feril í Þýskalandi, Spáni
og á Englandi. Kantmaðurinn kom heim og lauk ferli sínum með uppeldisfélagi sínu, ÍA,
árið 2008. Hann hefur síðan þá starfað mikið í kringum félagið, bæði í þjálfun og síðan í
stjórnunarstörfum. Þórður var seint á síðasta ári ráðinn framkvæmda stjóri fyr ir tækja sviðs
Skelj ungs. Áður var hann for stöðumaður viðskipt a stýr ing ar og sölu hjá fyr ir tækjaþjón ustu
Sím ans frá ár inu 2014.
Marel Baldvinsson
Fjárfestir
Ár í atvinnumennsku: 7 Landsleikir: 17
Framherjinn stóri og stæðilegi átti nokkur
góð ár í atvinnumennsku en hann lauk
ferli sínum sem leikmaður árið 2010
með Val. Síðan þá hefur Marel getið sér
gott orð í fjárfestingum með hlutabréf
og fleira því tengdu. Hann bjó í Dan-
mörku og Portúgal í nokkur ár en er nú
kominn heim og býr á Álftanesi. Hann
tók einmitt við sem þjálfari meistara-
flokks karla hjá Álftanesi í haust.
F
erill atvinnumanns í
knattspyrnu getur verið
stuttur og þegar að honum
lýkur er lífið oft rétt að byrja.
Ísland hefur átt marga atvinnu
menn í fótbolta sem náð hafa frá
bærum árangri, þeir koma síðan
flestir heim. Margir fara í fjár
festingar og slíkt enda koma margir
heim sterkefnaðir, aðrir fara í önn
ur störf enda ekki fyrir alla að sitja
og slaka á heilu og hálfu dagana.
Þeir sem koma fram í þessari sam
antekt starfa meðal annars sem
iðnaðarmenn, lögmenn og fram
kvæmdastjórar svo dæmi séu
tekinn. Haft var að leiðarljósi að
menn væru ekki með hluti tengda
knattspyrnu sem aðalstarf. n
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is