Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Side 67
fólk - viðtal 55Helgarblað 12. janúar 2018
Gerður hjá Blush.is hannar
fyrsta íslenska kynlífstækið
G
erður Huld Arinbjarnar
dóttir, betur þekkt sem
Gerður í Blush stofnaði sitt
fyrsta fyrirtæki þegar hún
var einungis 21 árs. Gerður réðst
ekki á garðinn þar sem hann er
lægstur enda hefur hún alltaf ver
ið ævintýragjörn og dreymin, en
þegar kom að vali á fyrirtækja
rekstri ákvað hún að stofna kyn
lífstækjaverslun.
Blush.is, kynlífstækjaverslun
Gerðar, er nú orðin sjö ára og á
þeim stutta tíma sem liðið hefur
síðan fyrirtækið varð til hefur
mikið breyst hvað varðar viðhorf
Íslendinga til kynlífs. Umræðan
hefur aldrei verið opnari og ekki er
lengur feimnismál að ganga inn í
kynlífstækjaverslun og kaupa tæki.
Margt hefur gengið á í lífi Gerð
ar síðan hún hóf rekstur sinn á
fyrirtækinu og kom hún á fund
blaðakonu á kaffihúsi í Kringlunni
til þess að ræða um verslunina,
Snapchat, erfið sambandsslit
ásamt magabandsaðgerð sem hún
fór nýlega í.
Ung móðir og atvinnulaus eftir
fæðingarorlof
„Upphafið á Blush.is var þannig
að ég og vinkona mín, Rakel Ósk,
fengum þá hugmynd að stofna
fyrirtæki saman. Við vorum báð
ar búnar að vera í fæðingarorlofi,
vorum atvinnulausar og langaði
að prófa eitthvað nýtt. Við enduð
um svo í kynlífstækjunum, sem
er kannski svolítið sérstakt,“ segir
Gerður og hlær. Hún og Rakel Ósk
fengu þá hugmynd að bjóða upp á
ókeypis heimakynningar sem var
nýbreytni á þessum tíma.
„Þar sem ég var svo ung og átti
engan pening þá fór ég til pabba
og bað hann um hjálp. Ég man
enn þá eftir því hvað ég var ótrú
lega stressuð. Þetta er ekki beint
þægilegasta umræðan til þess að
eiga við pabba sinn, en ég spurði
hann hvort hann gæti lánað mér
pening og hann spurði mig auð
vitað til hvers. Ég sagði honum að
ég ætlaði mér að stofna fyrirtæki
og hann spurði mig þá um hvers
konar fyrir tæki væri að ræða og
ég sagði honum að mig langaði
til þess að opna kynlífstækjaversl
un. Hann horfði á mig og beið í
smá stund, svo sagði hann við mig
að það væri nú margt vitlausara í
heiminum heldur en það og lagði
bara inn á reikninginn minn.
Þannig að við getum þakkað
pabba mínum fyrir það að Blush.
is er til í dag,“ segir Gerður kímin.
Gerður segir að reksturinn hafi
að mestu gengið vel en af og til hafi
komið tímabil þar sem ekki áraði
vel.
„Þetta hefur verið ótrúlegur
skóli fyrir mig og ég hef aldrei séð
eftir þessari ákvörðun. Þetta er
skemmtilegasta vinna sem ég hef
verið í og ég segi stundum að ég sé
mjög fullnægð í starfi,“ segir Gerð
ur og hlær.
Elskar að fræða fólk um kynlíf
Gerður stofnaði opinn
Snapchataðgang undir nafninu
blush.is fyrir tveimur og hálfu
ári sem notið hefur mikilla vin
sælda. „Viðtökurnar voru eigin
lega ótrúlegar. Það vissi engin
hver Gerður í Blush var áður en
ég opnaði snappið en í dag þegar
ég er á almannafæri þá finn ég
alveg að fólk er að fylgjast með
mér.“
Gerður tók þá ákvörðun að vera
mjög persónuleg á snappinu sínu
og vera ekki eingöngu að kynna
vörurnar sem hún er að selja held
ur einnig leyfa fólki að kynnast
henni nánar.
„Ég ræði við fólk um mína upp
lifun og fræði það sömuleiðis um
ýmislegt tengt kynlífi eða kyn
lífstækjum. Ég reyni að hafa þetta
eins persónulegt og smekklegt
eins og ég get.“
Gerður segir að lítið hafi borið
á áreiti í gegnum Snapchat en hún
hafi þó lent í því einstaka sinnum.
„Ég hef fengið sendar
typpamyndir og fæ stundum
kannski einhver skilaboð sem
eru óviðeigandi en það er mikill
minnihluti sem sendir dónaleg
eða leiðinleg skilaboð.“
Ástarlífið eftir erfið
sambandsslit
Fyrir rúmlega hálfu ári hættu
Gerður og þáverandi kærasti
hennar Niels saman eftir fjögurra
ára fjarsamband.
„Við vorum í sama geiranum,
hann er líka að selja kynlífstæki
og við erum bæði með netverslun.
Við kynntumst á ráðstefnu úti í
Þýskalandi og hann bjó í Hollandi
og ég á Íslandi. Fjarsambandið var
erfitt en jafnframt ótrúlega lær
dómsríkt og jákvætt á marga vegu.
Þetta var ótrúlega gott og fallegt
samband á meðan það varði. Það
var sameiginleg ákvörðun okk
ar að binda endi á sambandið og
var hún ótrúlega erfið. Mér leið í
marga mánuði eins og ég hefði
misst ástvin þar sem við þurft
um að slíta öllum samskiptum til
þess að geta endað sambandið.
Þannig að ég veit til dæmis ekk
ert hvað hann er að gera í dag
og hef ekkert heyrt í honum síð
an ákvörðunin var tekin. En ég sé
ekki eftir henni og ég sakna hans
ekki sem kærasta, en að sjálfsögðu
eru minningar sem maður sakn
ar,“ segir Gerður sem kveðst ham
ingjusöm í dag.
Á svipuðum tíma og Gerður
sleit sambandi sínu við Niels fór
að bera á töluverðu þyngdartapi
hjá henni.
„Ég hafði verið að þyngjast
hægt og rólega síðustu árin. Alltaf
að bæta á mig einu og einu auka
kílói og ég fann ýmsar heilsufars
breytingar hjá mér. Ég var orðin
aum í hnjánum og mjöðmun
um og bara almennt – svona
eins og fylgir því þegar maður er
orðinn of þungur – þannig að ég
tók ákvörðun um að fara í maga
bandsaðgerð sem gekk ótrúlega
vel.“
Gerður segir marga
spyrja hana hvort hún mæli
með aðgerðinni fyrir þá en
hún segist eiga erfitt með að
svara þeirri spurningu.
„Ég er ánægð með
að hafa farið í þetta
sjálf en ég hef
heyrt alls konar
sögur, bæði já
kvæðar og nei
kvæðar, og það
sem virkar
vel fyrir mig
virkar ekki
endilega vel
fyrir aðra og
því er þetta
virkilega
persónuleg
ákvörðun
fyrir hvern
og einn til
þess að taka.“
Gerð
ur segir að
hugsun henn
ar gagnvart
mataræði hafi
gjörbreyst eft
ir aðgerðina og
að hún sé mik
ið meðvitaðri um
það hvaða næringu
hún setji ofan í sig.
Kynlíf er svo stór
hluti af lífinu
Miklar breytingar
hafa orðið á um
ræðu og umfjöll
un um kynlíf og kyn
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@pressan.is
n Opnar sig á Snapchat n Ræðir erfið
sambandsslit og magabandsaðgerð
lífstæki síðustu ár og telur Gerður
að þakka megi fjölmiðlum og sam
félagsmiðlum um hversu jákvæð
breytingin hefur verið.
„Það eru ekkert mörg ár síðan
það fóru að koma greinar á vef
miðlum um kynlíf og þess háttar,
þetta var svo mikið tabú. En í dag
er mikið skrifað um þetta og þetta
er orðið svo miklu miklu eðli
legra.“
En hver er framtíðin hjá Gerði?
„Ég hef verið að hanna mína
eigin vöru sem er að koma
á markað, vonandi á fyrsta
ársfjórðungi. Stefnan
er svo bara að halda
áfram að auka við
mig þekkingu og
halda áfram
að fræða fólk
í gegnum
snappið.
Það skiptir
mig ótrú
lega miklu
máli að halda
áfram að fræða
fólk og auka þekk
inguna og umræðuna
enn frekar.“
Blaðamaður forvitnast örlítið
meira út í nýju vöruna sem Gerð
ur hannaði og spyr hana hvort hún
hafi prófað hana sjálf.
„Já, þetta er vara fyrir konur,
en ég er ekki að finna upp hjólið.
Það eru til sambærilegar vörur á
markaðnum en þrátt fyrir það er
þetta fyrsta íslenska kynlífstæk
ið og það er alltaf skemmtilegt.
Ég hef prófað það og þetta er
nýja uppáhaldstækið mitt. Ég
vona að öðrum muni líka það
einnig.“ n