Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Qupperneq 16
16 Helgarblað 12. janúar 2018fréttir
K
aren Hrund var fimmtán ára
þegar hún varð ólétt. Í dag
er sonur hennar, Adrían,
fjögurra mánaða gamall.
Karen er í sambandi með barns-
föður sínum, Ómari Berg. Ómar
er 21 árs og hafa þau verið saman
síðan Karen var fjórtán ára. Karen
fann fyrir miklum fordómum þegar
hún varð ólétt vegna aldurs henn-
ar. Hún ákvað að byrja að snappa
til að ræða um fordóma. Nú fylgjast
yfir tíu þúsund manns með dag-
legu lífi Karenar sem ungrar móður
á Snapchat. En frægðin hefur sína
galla. Karen segir fullorðna konu
hafa staðið í hótunum við hana og
talað illa um hana við fyrirtæki og
aðra snappara.
„Ég hef talað við rosalega marga
sem hafa einnig lent í henni. Ég
þekki hana varla og veit ekki hvað ég
á að hafa gert henni. Hún er að eyði-
leggja mannorð mitt,“ segir Karen.
Í einlægu viðtali ræðir Karen
um hvernig er að vera ung móðir,
fordómana sem hún finnur fyrir
og deilur við annan snappara.
Fær mikinn stuðning
Hvernig hafa síðustu fjórir
mánuðir verið?
„Mjög upp og niður. Maður
getur aldrei ímyndað sér fyrir
fæðingu hvernig þetta verður.
Þetta hefur verið erfitt en Adrían
er mjög gott barn. Við erum mjög
heppin. Hann sefur á næturnar,
grætur lítið, tekur pela og snuð.
Það er ekkert að hjá honum.“
Karen Hrund og Adrían búa
hjá móður Karenar. Ómar býr rétt
fyrir utan Akureyri en er oft hjá
þeim og öfugt. „Ég hefði örugglega
aldrei búist við þessu fyrir rúm-
lega ári, en þetta gengur vel. Ég
er að standa mig betur í þessu en
ég myndi standa mig í námi ef ég
væri í skóla núna.“
Fáið þið mikinn stuðning frá
fjölskyldu ykkar?
„Já. Í byrjun þurfti ég sérstak-
lega á því að halda. Upp á síðkastið
hef ég verið mjög mikið með
Adrían og verið að bæta upp tím-
ann í byrjun, en þá fór ég mjög oft
út að hitta vini mína. Þar sem ég er
svona ung fann ég fyrir svo mikilli
þörf eftir fæðinguna að fara út og
skemmta mér. Líka til að jafna mig
eftir meðgönguna. Ómar var mik-
ið með hann, mamma mín eða
mamma Ómars. Það var mjög fínt
en núna er ég byrjuð að vera mik-
ið ein með Adrían og það gengur
mjög vel. Ég veit alveg að ég þurfti
á því að halda í byrjun að fara út og
hitta vini svo líðan mín væri góð.
Amma mín og afi hafa hjálpað
okkur mikið líka,“ segir Karen og
bætir við að Ómar hafi staðið sig
rosalega vel.
Fæðingarþunglyndi
Karen grunar að hún þjáist af
fæðingarþunglyndi. „Ég hef ekki
leitað mér hjálpar eða fengið
greiningu. En ég held ég sé með
fæðingarþunglyndi. Ég er undir
svo miklu áreiti.“
Áreitið segir Karen aðallega
koma frá samfélagsmiðlum eins
og Snapchat. Karen Hrund er mjög
vinsæl á Snapchat, undir nafninu
@KarenHrund, og fylgjast yfir tíu
þúsund manns með henni dag-
lega. Þegar hún var ólétt fylgdust
tæplega fimmtán þúsund manns
með henni daglega.
„Ég er ekki að snappa eins mik-
ið og ég gerði áður fyrr, enda hefur
fylgjendafjöldinn verið í takt við
það. Ég tek fleiri pásur núna og er
ekki allan daginn að snappa. Þetta
getur verið mjög erfið vinna. Það
þarf allt að vera svo skipulagt á
snappinu. Eins og ef ég segist ætla
að koma inn klukkan tíu þá þarf
ég að gera það þótt Adrían sé grát-
andi. Það er frekar böggandi. En
ég læt mig hafa þetta,“ segir Karen.
„Ég fæ oft ljót skilaboð frá fólki
en oftast er það frá gerviaðgöng-
um á Snapchat, frá fólki sem þor-
ir ekki að segja þessa hluti við mig
undir nafni. Ég tek lítið mark á
þeim skilaboðum.“
Byrjaði að snappa út af fordómum
„Ástæðan fyrir því að ég byrjaði að
snappa voru fordómar sem ég var
að finna fyrir,“ segir Karen og held-
ur áfram:
„Fordómarnir eru vegna þess að
ég er ung og á barn. Ég hef fengið
að heyra „oj, þú ert ógeðsleg að eiga
barn“ og fengið alls konar skilaboð
sem fólk myndi ekki senda til dæm-
is þrítugri móður. Fólk telur sig hafa
skotleyfi á mig og geta sagt hvað
sem er því ég er svo ung. Það passar
sig enginn á því hvað hann segir á
Snapchat. Fólk lætur allt vaða, það
er ótrúlegt. Mér myndi ekki detta í
hug að senda neinum þau skilaboð
sem ég fæ.“
Segir annan snappara hafa gert
sér lífið leitt
Rétt fyrir jól var mikið rætt um
meint rifrildi milli Karenar og
annars snappara á samfélagsmiðl-
um. Karen tjáði sig um málið á
Snapchat á þeim tíma. Karen vill
ekki nafngreina snapparann, sem
hún segir hafi hótað sér bæði of-
beldi og lögsókn.
„Þetta byrjaði allt á því að þessi
kona hafði samband við mig þegar
ég var ólétt og komin með ágætis
fylgjendahóp á Snapchat. Konan
er yfir þrítugt og er sjálf að snappa.
Hún sagðist vilja gefa mér pakka
og spurði hvort ég væri til í að hitta
hana. Ég svaraði því játandi, alltaf
gaman að hitta aðra snappara,“
segir Karen og heldur áfram: „Hún
virkaði mjög vel á mig í byrjun. Ég
tók samt eftir því að það var eitt-
hvað bogið við hana, en pældi ekk-
ert meira í því.“
Rifrildið sjálft
Karen segir að rekja megi upp-
haf deilna þeirra til færslu á
Beauty Tips sem Karen hafði skrif-
að athugasemd við. Karen segir
konuna hafi talið Karen vera tala
um sig og allt hafi farið í háaloft.
Nokkrum mánuðum síðar bað
konan Karen afsökunar að sögn
Karenar.
„Ég komst síðan að því að hún
hafði sagst ætla að senda fólk
að berja mig og Ómar. Ég komst
einnig að því að hún segði við fólk
að Ómar væri ekki faðir Adríans,
að við værum í dópi og alls konar
bull. Mér var einnig sagt að hún
væri stöðugt að tala um mig, við
aðra snappara og fyrirtæki. Ég hef
mjög öruggar heimildir fyrir því
að hún hafi farið til fyrirtækja til að
hvetja þau að vera ekki í samstarfi
með mér. Hún er enn þá að þessu.
Ég þekki þessa konu varla og ég skil
ekkert hvaðan allt þetta kemur.“
Karen segist ekki vilja standa
í deilum við konuna og hafi fyrst
um sinn ekki ætlað að gera neitt í
málinu. Hún hafi þó ákveðið að tjá
sig um málið til að bjarga mann-
orði sínu. „Ég er bara sextán ára,
ég skil ekki af hverju þessi þrítuga
kona er að gera mér þetta. Ég vil
að ég, Ómar og sonur minn séum
látin í friði.“
Bjóst ekki við viðbrögðunum
„Ég bjóst ekki við því að fá svona
marga fylgjendur þegar ég byrjaði
að snappa. Ég hef fengið alls kon-
ar skilaboð frá fylgjendum mín-
um, um hvað ég sé dugleg og hug-
rökk. Ég hef líka fengið skilaboð frá
stelpu sem sagðist hafa verið ólétt
en farið í fóstureyðingu því hún
þorði ekki að eiga barnið út af for-
dómum. Þá vissi ég hvað ég væri
að opna á mikilvæga umræðu.
Aftur á móti hef ég einnig feng-
ið skilaboð frá ungum stúlkum sem
segjast ætla að verða óléttar alveg
eins og ég. Ég er alls ekki að hvetja til
þess að unglingsstúlkur verði ólétt-
ar. Í mínu tilviki varð ég óvart ólétt og
við unnum úr aðstæðunum á þenn-
an hátt. Fjölskylda mín og vinir hafa
verið mikið til staðar og hefur stuðn-
ingur þeirra verið ómetanlegur.“ n
Lesa má viðtal DV við Karen
Hrund í heild sinni á dv.is
Karen er 16 ára móðir
n Vinsæl á Snapchat n Segist áreitt af þrítugri konu n Finnur fyrir fordómum
Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
„
Við
erum
mjög
heppin
Karen Hrund Var
fimmtán ára þegar hún
varð ólétt að syni sínum
Adrían. Hún fann fyrir
miklum fordómum. Hún
byrjaði að snappa til að
ræða um fordómana.
Fjölskyldan Karen Hrund, Ómar Berg og son-
ur þeirra Adrían. Karen segir Adrían vera mjög
gott barn og þau séu mjög heppin með hann.
Alhliða veisluþjónusta
Kökulist | Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar | Sími: 555 6655 og 662 5552 | kokulist@kokulist.is
Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 | Reykjanesbæ | Sími: 421 2630 | kokulist@kokulist.is
Eingöngu fyrsta flokks hráefni
Tertur – Tapas snittur – Spjót – Súrdeigsbrauð
Konfekt – Kransakökur – Súpur – Brauðréttir
Gerðu daginn eftirminnilegan
l li veisl j st
Kökulist | Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar | Sími: 555 6655 og 662 5552 | kokulist@kokulist.is
Eingöngu fyrsta flokks hráefni
Tertur – Tapas snittur – Spjót – Súrdeigsbrauð
Konfekt – Kransakökur – Súpur – Brauðréttir
i fti i il
Útskrift · Brúðkaup · Skírn · Ferming Útskrift · Brúðkaup · Skírn · Ferming