Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Blaðsíða 20
KYNNING
Sveitarfélagið Fjalla-byggð varð til við sameiningu Ólafs-
fjarðar og Siglufarðar árið
2006. Í Fjallabyggð búa um
2.100 manns sem taka ætíð
einstaklega vel á móti ferða-
mönnum og útivistarfólki.
Í Fjallabyggð er fjölbreytt
menningarlíf og upplífgandi
andrúmsloft. Það skiptir ekki
máli á hvaða árstíma ferðast
er til Fjallabyggðar, þar er
alltaf margt skemmtilegt að
skoða og gera.
Fagurt umhverfi allt árið
Fjallabyggð býr að stórbrot-
inni náttúrufegurð í „faðmi
fjalla blárra“, eins og skáldið
sagði, þar sem möguleikar á
sviði útivistar og tómstunda
eru hreint óþrjótandi. Nátt-
úran er ávallt innan seil-
ingar, hvort heldur haldið er í
gönguferðir, skellt sér á skíði
eða veitt í vötnum, ám eða sjó,
ásamt fjölþættum gönguleið-
um um fjöll og dali. Við slíkar
aðstæður hefur nær ósnortið
og friðsælt náttúrufar Héð-
insfjarðarins notið mikillar hylli
hjá ferðafólki. Gönguleiðakort
eru fyrirliggjandi á heimasíð-
unni; fjallabyggd.is.
Fallega Fjallabyggð að vetri
Í Fjallabyggð er nægur snjór í
fjöllunum og allsstaðar hægt
að finna tækifæri og að-
stöðu til útiveru. Á veturna
er staðurinn skíðaparadís
og draumur útivistar-
mannsins. Hægt er að fara
á svigskíði, gönguskíði,
skauta, þeytast um á snjó-
sleða eða á vélsleða og
hinir friðsælu geta dorgað
í Ólafsfjarðarvatni. Svo er
ætíð tilvalið að skella sér
í sund í rómuðum sund-
laugum Fjallabyggðar.
Um páskana verður svo
fjölbreytt menningar- og
afþreyingardagskrá á
boðstólnum í Fjallabyggð.
Skíðasvæðin
Í Fjallabyggð eru tvö
skíðasvæði: Skíðasvæðið
í Skarðsdal á Siglufirði
og Skíðasvæðið í Tindaöxl í
Ólafsfirði. Heimamenn hafa
verið töluvert heppnari með
skíðaveður en borgarbúar
og hafa því getað mundað
skíðin sín og brettin síðan í
desember. Það er allaf gleði í
fjöllunum í Fjallabyggð.
Skíðasvæðið í Skarðsdal
Skíðasvæðið í Skarðsdal
má tvímælalaust telja með
bestu skíðasvæðum landsins.
Þar er oftast svo mikill snjór
að hægt er að skíða langt
fram á vor. Á svæðinu eru nú
þrjár lyftur, tvær samfelldar:
diskalyfta og T-lyfta, sam-
tals um það bil 1.500 metrar
að lengd. Þriðja og efsta
lyftan er 530 metra löng
með um 180 metra fallhæð
og afkastar hún um 550
manns á klukkustund. Efri
endi lyftunnar er í rúmlega
650 metra hæð yfir sjó. Í
Skarðsdal er að finna ein-
hverjar bestu alhliða brekkur
landsins. Nýlega var reistur
glæsilegur skíðaskáli þar sem
aðstaða fyrir gesti er öll til
fyrirmyndar. Hópum eru gerð
hagstæð tilboð um lyftukort
og þess háttar. Góð flóðlýs-
ing er einnig á skíðasvæðinu
svo skammdegið ætti ekki að
aftra för skíðamannsins.
Vetraríþróttir í Ólafsfirði
Í Ólafsfirði eru kjöraðstæð-
ur til vetraríþrótta. Hægt er
að fara í vélsleðaferðir um
fjöll og dali í nágrenninu og
er aðstaða til skíðaiðkunar
óvíða betri. Göngubrautir
eru troðnar alla daga þegar
veður leyfir. Á skíðasvæðinu
í Tindaöxl eru skíðalyfta og
góðar svigbrautir. Bretta-
menn fá stór ótroðin svæði
og nota gjarnan hryggina
í brekkunni til að sýna list-
ir sínar. Í glæsilegum skála
Skíðafélagsins er boðið upp
á ýmiss konar veitingar. Í
skálanum er svefnloft þar
sem um 25 manns geta gist
í svefnpokum. Hópum eru
gerð hagstæð tilboð um
lyftukort og þess háttar.
Vélsleðaferðir
Svæðið í kringum Fjallabyggð
er einstaklega hentugt til
vélsleðaferða. Dalir með snjó
langt fram eftir vori gera
svæðið að einstakri útivistar-
paradís fyrir vélsleðafólk.
Gönguleiðir og fjallgöngur
Fátt jafnast á við góðan
dag á fjöllum og að skíða
niður ósnortnar brekkur
í stórfenglegu umhverfi.
Tröllaskagi er án efa besta
fjallaskíðasvæði landsins,
með sín háu fjöll og mikla
snjó. Fjöllin á Tröllaskaga
eru á heimsmælikvarða og
bjóða uppá brekkur við allra
hæfi hvort sem þú ert að
byrja eða í leit að verulegum
áskonunum. Hér er hægt að
ganga á fjöll og skíða niður
frá mars og fram í júní. Þegar
daginn fer að lengja verður
snjórinn enn betri og þegar
kemur fram í júní er hægt að
skíða í miðnætur sólinni eins
og um miðjan dag.
Fjöllin á Tröllaskaga geyma
hæstu fjöll Norðurlands. Á
utanverðum Tröllaskaga má
nefna Dýjafjallshnjúk 1445
m, Kvarnárdalshnjúk 1424m
og Heiðingja 1402m. Meðal-
hæð fjalla er um 930m eða
3000ft.
Svæðið er því kjörlendi
fyrir göngufólk og má finna
gönguleiðir fyrir alla, hvort
sem menn vilja ganga á
láglendi um Friðland Svarf-
dæla, klífa fjöll eða fornar
þjóðleiðir á milli byggðarlaga.
Í Fjallabyggð eru tvö ferða-
félög sem bjóða upp á ýmis
konar gönguferðir: Ferða-
félagið Trölli, Ólafsvegi 42 í
Ólafsfirði og Top Mountaineer-
ing, Hverfisgötu 18 á Siglu-
firði, standa fyrir nokkrum
skipulögðum gönguferðum
á hverju ári, jafnt um sumar
sem vetur. Átak hefur verið
gert í merkingum gönguleiða
á Tröllaskaga og eru margar
skemmtilegar merktar og
stikaðar gönguleiðir í Fjalla-
byggð. Þær eru mislangar og
misjafnlega krefjandi, svo allir
ættu að finna eitthvað við sitt
hæfi. Hægt er að hafa sam-
band við Top Mountaineering
Hin fallega byggð, Fjallabyggð
Við TöKUM allTaF VEl Á MÓTi FErðaFÓlKi