Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Page 43
fólk - viðtal 31Helgarblað 12. janúar 2018
hef þurft að fara og ef ég hef þurft
að fara eitthvert sérstaklega þá er
mér skutlað í bíl,“ segir Lalli.
Þótt Lalla hafi tekist að losa
sig alveg við vínið þá eru sígar-
etturnar snúnari andstæðing-
ur. „Maður er enn þá að dragast
með þessar helvítis sígarettur
en ég er að reyna að hætta. Ég er
kominn niður í fimm sígarettur á
dag. Mér hefur tekist að halda því
í föstum skorðum,“ segir Lalli.
Datt í það vegna tröppugangs
Á síðustu tíu árum hefur Lalli
misstigið sig í eitt skipti. „Þegar
ég var að koma mér fyrir á Héð-
insgötu þá var svolítil traffík, inn
og út. Svo ég datt í það þar, því
það var svo mikill tröppugang-
ur og óregla. En svo ákvað ég
að hlusta á ráðgjafana og fara á
fundi. Eftir að ég gerði það gekk
þetta nú betur. Svo leið tíminn.
Svo nú er ég búinn að vera edrú
í fjögur ár. Ég tók bara einn dag
í einu og allt í einu var liðið ár.
Ég er núna búinn að koma mér
ágætlega fyrir á Héðinsgötunni,“
segir Lalli.
Hann segir stóran hluta af því
að halda sér edrú vera að mæta
á AA-fundi. „Ég fer stíft á fundi.
Á Héðinsgötu, Draumasetrinu,
þar er fundur á mánudögum og
þriðjudögum, húsfundur á mið-
vikudögum, á fimmtudögum og
föstudögum eru morgunfundir.
Það er ekki skyldumæting, meira
til að vita hvað menn eru að gera,
hvernig málum er háttað. Ólaf-
ur Haukur og Elín eru húsráð-
endur í Draumasetrinu. Um jólin
núna gáfu þau öllum pakka og
þau eru með okkur í prógrammi.
Hann Ólafur Haukur hefur verið
okkur innan handar og hefur ver-
ið að hjálpa mönnum – leiða þá í
gegnum þetta. Ég hef það fínt hjá
þeim,“ segir Lalli.
„Betra að hafa reglu en óregluna“
Hann segir að félagsskapurinn
og regluverkið á Draumasetrinu
hjálpi við halda honum réttum
megin. „Það er betra að hafa reglu
en óregluna. Það er hentugra að
hafa fasta reglu á þessu. Þá veit
maður hvað maður á að gera
þennan dag, svo á maður frí á eftir.
Það er nú þannig í Draumasetrinu
að þeir láta aðra þrífa vissa hluta
hússins, en ég hef ekki þurft þess
þar sem ég er kominn á þennan
aldur. Það er ekki hægt að hafa
mig sem þjónustufulltrúa,“ seg-
ir Lalli og hlær en hann verður 67
ára á þessu ári, löggildur ellilífeyr-
isþegi.
Á milli þess að mæta á AA-
fundi aðstoðar Lalli félaga sína
í bílaviðgerðum og fer í göngu-
túra. Hann reynir líka að aðstoða
unga menn við edrúmennsku. „Ég
hef verið að lesa í Tólf spora-bók-
inni og stúdera AA-bókina. Þess
á milli hef ég verið að leiðbeina
mönnum. Það eru nokkrir ungir
á Héðinsgötu sem hafa verið að
spyrja mig hvernig maður hagi sér
í þessum málum. Það hefur gefist
vel og ég hef ekki verið iðjulaus.
Sumir hafa náð sér út úr sukki og
svínaríi. Þetta er lið sem hefur ver-
ið sprautufíklar og annað. Ég reyni
að gefa eins mikið og hægt er af
mér,“ segir Lalli.
Draumasetrið sem Lalli nefn-
ir er áfangaheimili rekið af hjón-
unum Elínu Örnu Arnardóttur
og Ólafi Hauki Ólafssyni. Í sam-
tali við DV segir Ólafur Haukur
óvíst með framtíð heimilisins því
engir styrkir fást frá hinu opinbera
og setrið rekið alfarið í sjálfboða-
vinnu. Undanfarin ár hefur fjöldi
fíkla sagt opinberlega að heimil-
ið hafi bjargað lífi þeirra. Markmið
þess er draga úr þeirri neyð sem
sumir fyrrverandi fíklar búa við,
enda margir á götunni. „Ég myndi
sjá eftir því. En ég held að þessu
verði ekki lokað,“ segir Lalli.
Íhugar nám
Lalli segist oft hugsa um liðna
tíð burt séð frá draumunum sem
sækja á hann reglulega. „Mér
finnst nú, ef ég segi eins og er,
að þetta séu betri tímar í dag. Ég
sakna sums – „góðu tímanna“ – en
ekki alls. Sums. Mér hefur ekkert
langað í vín eða svoleiðis. Maður
fer að rifja upp staði sem maður
hefur verið á áður. Það hefur verið
jákvætt að vera á Draumasetrinu,
að hugsa um það liðna og hvað
maður hefur farið á mis við,“ seg-
ir Lalli.
Í því samhengi nefnir hann
menntun. „Ég hef hugsað sem
svo, kannski ætti ég að fara í skóla.
Hvaða skóla á maður að fara í eða
hvort maður eigi að taka heima-
nám? Jafnvel bréfaskóla. Þá myndi
ég læra félagsfræði og reikning.
Taka stúdentsprófið í leiðinni,“
segir Lalli og hlær.
Aldrei dæmdur í
ljóðabókarmálinu
Lalli varð landsþekktur eftir að
heimildamynd Þorfinns Guðna-
sonar um hann kom út árið 2001.
Hann segir því hafi fylgt blendnar
tilfinningar að vera svo þekktur á
þessum tíma. „Það var um tíma
sem fólk var að spyrja mig hvern-
ig ég færi að þessu. Ég er enn að
hitta fólk sem hefur séð myndina
og spyr hvort það verði ekki fram-
hald,“ segir Lalli.
Ein frægasta sagan af Lalla er
þegar hann í einu af sínum inn-
brotum gleymdi sér um stund við
lestur ljóðabókar eftir Stein Stein-
ar. Þegar lögregla mætti á vettvang
var hann uppi í rúmi í miðjum
ljóðalestri. „Ég var aldrei dæmdur
í þessu máli vegna þess að dóm-
arinn spurði hvar þetta hefði ver-
ið og ég sagði: „Þetta var í Ráð-
herrabústaðnum.“ Hann sagði
seinna að ég hefði verið dæmdur
fyrir þetta hefði þetta verið eitt-
hvert hús annað en Ráðherra-
bústaðurinn. Það átti ekki að vera
hægt að komast óboðinn inn í
Ráðherrabústaðinn og sitja þar og
lesa bók eftir Stein Steinar,“ segir
Lalli og hlær dátt.
Flestir sem hafa kynnst Lalla
vita að þrátt fyrir allt þá hefur hann
alltaf verið frekar jákvæður að upp-
lagi. Hann segir þó að brennivínið
hafi stundum gert hann þunglynd-
an. „Þegar ég var á þessu fylleríi þá
fann ég að það komu lélegir tímar.
Annaðhvort reyndi ég að drekka til
að gleyma þessum verstu tímum
eða þá að hætta að drekka. Það
reyndist erfiðara. Ég var aldrei
lengi edrú í einu. Það hefur tekið
svolítinn tíma að byggja upp þetta
góðæri núna. Það hefur gerst að
maður hefur ekki fengið það sem
maður vildi en þá er bara að vinna
úr því. Þá er maður bara ánægð-
ur þegar vel gengur. Maður hefur
fylgt því eftir. Ég hef alltaf haft það
sem reglu, að hafa þetta á jákvæðu
nótunum og ekki flækja þetta neitt
mikið,“ segir Lalli. n
„Það er
betra að
hafa reglu en
óregluna
Hress Lalli segist hafa
jákvæðnina að leiðar-
ljósi. MynD Sigtryggur Ari