Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Síða 50
Vikublað 12. janúar 2018
Da
gur
í l
ífi
Sigmundur Ernir Rúnarsson fæddist á Akureyri þann 6. mars 1961 og verður því 57
ára á þessu ári. Hann er sonur þeirra
Rúnars Heiðars Sigmundssonar
viðskiptafræðings og Helgu Sigfús-
dóttur, skrifstofumanns og húsmóð-
ur. Sigmundur á þrjú alsystkin, þau
Gunnar Örn (1956), Sigrúnu (1957)
og Guðrúnu Sigfríð (1967). Að
loknu menntaskólanámi á Akureyri
flutti hann til höfuðborgarinnar og
byrjaði að vinna sem blaðamaður
á Vísi sem síðar sameinaðist DV.
Þetta var árið 1981. Síðar hefur Sig-
mundur unnið á Helgarpóstinum
og hjá Ríkissjónvarpinu en lengst
af starfaði hann sem fréttamaður á
Stöð 2 eða í alls tvo áratugi. Hann
var þingmaður Samfylkingarinn-
ar frá 2009 til 2013 og þegar því
starfi lauk opnaði Sigmundur Ernir
sjónvarpsstöðina Hringbraut ásamt
fleiri fagmönnum. Sigmundur hefur
gefið út um tuttugu bækur á tæpum
fjörtíu árum. Sú fyrsta, Kringum-
stæður, kom út árið 1980 en síðasta
bók hans, Rúna, örlagasaga, kom
út fyrir síðustu jól. Sigmundur býr
á Laufásveginum ásamt eiginkonu
sinni Elínu Sveinsdóttur sjónvarps-
framleiðanda og tveimur börnum,
þeim Erni, 21 árs, og Auði, 13 ára,
en Birta 27 ára og Rúnar, 25 ára,
eru flogin að heiman. Fyrir átti Sig-
mundur tvö börn, þau Eydísi Eddu
(f. 1985–d. 2009) og Odd sem nú er
þrítugur.
07.00
Ég vakna yfirleitt klukkan sjö, tek
mig til í ró og næði og fæ mér
góðan morgunmat. Soðið egg, súr-
mjólk með púðursykri og kornflexi
og svo kaffi með pínulítilli mjólk.
Þá kem ég dóttur minni í Landa-
kotsskóla, ýmist gangandi, hjólandi
eða á bíl og því næst kem ég mér
sjálfum mér í vinnuna og er þá
mættur fyrstur manna.
08.00–09.00
Það fyrsta sem ég geri þegar
ég mæti til vinnu er að lesa öll
dagblöð upp til agna því ég hef
alltaf verið mikill öfgamaður í
blaðalestri. Upp úr níu fer ég svo
að huga að fyrstu upptöku dagsins.
Í morgun skoðaði ég til dæmis
leikmyndina að þætti mínum
Heimilið sem fjallar um rekstur
og viðhald heimilisins, valdi réttu
fötin fyrir þann þátt og fór svo í
smink. Ég er með fjóra fasta þætti
í viku á Hringbraut. Fyrir utan
Heimilið er einn þáttur sem fjallar
einn um ferðalög, svo er ég með
Ritstjórana, þar sem fjölmiðlafólk
ræðir viðburði vikunnar, og að
lokum Mannamál sem er meira á
persónulegum nótum.
11.00
Að loknum upptökum huga ég
að vefnum hringbraut.is og skrifa
þar inn fréttir en fyrir klukkan tólf
liggur leiðin í Laugardal þar sem
ég spila útifótbolta með vinum
mínum þrisvar í viku og þá gildir
einu hvernig viðrar. Í þessum hópi
eru til dæmis þeir Einar Kárason,
Friðrik Þór Friðriksson, Egill Örn
Jóhannson bókaútgefandi, Bjarni
Hafþór Helgason fjárfestir og fleiri
þjóðþekktir menn. Í raun er þetta
heill her af miðaldra, hvítum karl-
mönnum.
13.00
Eftir boltann mæti ég í vinnuna
aftur, skelli í mig bollasúpu og
tveimur hrökkbrauðum sem er
minn hefðbundni hádegismatur.
Þá er það upptaka á næsta þætti
og aftur eru það viðeigandi föt og
smink. Að þessu búnu, eða svona
um klukkan þrjú, sný ég mér aftur
að því að skrifa fréttir og svo nota
ég restina af deginum til að huga
að tilfallandi verkefnum sem eru
framundan. Til dæmis er ég að gera
fræðsluþætti um sjón og heyrn,
Alþýðusamband Íslands og sitthvað
fleira. Svo fer líka endalaus tími í að
svara tölvupósti.
17.00
Að vinnudeginum loknum, eða
upp úr klukkan fimm, tekur við
heilög stund í Vesturbæjarlauginni.
Þar á ég góðan tíma með sjálfum
mér og öðru fólki sem dólar fáklætt
í alls konar veðrum. Helst geng ég
eða hjóla í laugina og kem svo við
í Melabúðinni á heimleiðinni til
að kaupa eitthvað í kvöldmatinn.
Stundum kíki ég við á Dönsku
kránni og fæ mér smá hressingu
fyrir eldamennskuna framundan.
19.00
Upp úr sjö byrja ég að elda en ég
sé alltaf um matseldina heima hjá
mér. Það er allur gangur á því hvað
það eru margir í mat því konan
mín, sem starfar til dæmis hjá RÚV,
er svo oft að vinna fram eftir á
kvöldin. Hvað er í matinn? Ég elda
allan andskotann. Til dæmis ind-
verskan og taílenskan mat en aðal-
lega reyni ég að elda eins mikið af
íslenskum fiski og ég get og leggja
áherslu á fjölbreytni í mataræðinu.
21.00
Yfirleitt sest ég við tölvuna og fer
að skrifa bækurnar mínar eftir
kvöldmat. Núna er ég að vinna í
þremur, fjórum bókum samhliða.
Ein er ljósmyndabók með prósum
eftir mig, önnur er ævisaga sem
kemur út í haust og þriðja er minn-
ingabók. Svo er maður alltaf með
ljóðabók í vinnslu.
23.30–00.30
Oftast fer ég að sofa milli hálf tólf
og hálf eitt. Uppi í rúmi les ég eins
mikið af ljóðum og ég kemst yfir,
það er að segja áður en ég sný mér
að Elínu minni sem kemur stund-
um heim upp úr ellefu en um leið
og hún leggur höfuðið á koddann
þá slökkvum við ljósið.
Sigmundur Ernir rúnarSSon
Fótbolti með her af miðaldra hvítum körlum, ljóðalestur og taílensk matargerð
38
Besta ráð sem þér hefur
verið gefið?
Ég held að það hafi verið Böðvar
Guðmundsson sem sagði mér að
það væri ekkert jafn mannbætandi
og að lesa góða bók.
hvaða er Besta ráð sem
þú hefur gefið?
Að hætta að flýta sér. Maður græð-
ir ekkert á því. Það kemur oftast í
ljós að það hefur ekkert upp á sig
að flýta sér. Maður kemur bara fyrr
að næsta rauða ljósi.
hvað vildirðu að þú
hefðir vitað fyrr?
Ég vildi að ég hefði vitað hvaða
ánægju það gefur mér að ganga
á fjöll. Það eru svona fimmtán ár
síðan ég byrjaði þessa iðju og það
er fátt í lífinu sem veitir mér meiri
ánægju.
„Eftir boltann
mæti ég í
vinnuna aftur, skelli
í mig bollasúpu og
tveimur hrökkbrauðum.