Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Blaðsíða 64
52 Helgarblað 12. janúar 2018
Banvæn
afbrýðisemi
Þann 26. júlí, 2003, upphófst
rifrildi franska tónlistar-
mannsins Bertrands Cantat
og kærustu hans, Marie
Trintignant, á hótelherbergi
í Vilníus, höfuðborg Litháen.
Rifrildið snerist um meinta
ótryggð Marie. Bertrand,
sem á sínum tíma var stórt
nafn í heimi franskrar tón-
listar, réðst með hnúum
og hnefum á Marie og lét
hana síðan liggja meðvit-
undarlausa í rúminu. Hún
andaðist nokkrum dögum
síðar vegna bólgu í heila.
Bertrand fékk átta ára dóm
árið 2004 og síðan reynslu-
lausn í október 2007.
13 13 manns féllu fyrir hendi Le Than Van, víetnamskrar konu frá Ho Chi Minh-borg. Fólkinu banaði hún, árin 1998–2001, með því að byrla því blásýru. Fyrir vikið fékk var hún dæmd til dauða árið 2004.
Eiginmaður hennar, Dinh Danh Quang, fékk 21 árs dóm fyrir að hlaupa undir
bagga með henni.
Móðir
myrðir
Mary Beth Tinning, frá
Schenectady í New York-
fylki í Bandaríkjunum, fékk
20 ára dóm árið 1987. Þá
hafði hún verið sakfelld fyr-
ir að myrða eitt barna sinna,
þriggja og hálfs mánaða
dóttur, árið 1985. Mary Beth
viðurkenndi einnig að hafa
banað tveimur sona sinna.
Ekki er talið loku fyrir það
skotið að Mary Beth hafi
myrt öll sín börn, átta tals-
ins, en ekkert þeirra náði
fimm ára aldri. Ástæða
voðaverkanna var sú að
Mary Beth vildi öðlast sam-
úð annarra.
Sakamál
vitale vegin
n Var myrt af 16 ára dreng n Sennilega tilviljun ein
M
aður er nefndur Daniel
Horowitz og er banda-
rískur lögfræðingur og
var um tíma ágætlega
þekktur sjónvarpsráðgjafi í Banda-
ríkjunum. Árið 2005 varð hann
á nánast allra vörum vestan Atl-
antsála er hann sá um vörn Scotts
Peterson, áburðarsölumanns sem
hafði myrt barnshafandi eigin-
konu sína. Scott var síðar sakfelld-
ur fyrir vikið. Horowitz var einkum
þekktur fyrir að taka að sér vörn í
áberandi málum og haft var á orði
að meðal skjólstæðinga hans hefði
verið misjafn sauður í mörgu fé. Á
það verður ekki lagt mat enda allt
önnur saga.
„H“ skorið í bakið
Þungamiðja málsins sem fjallað
verður um hér hverfist um eigin-
konu Horowitz og Scott nokkurn
Dyleski. Þannig var mál með vexti
að þann 15. október, 2005, gekk
Horowitz fram á líkið af eigin-
konu sinni, Pamelu Vitale, í
anddyri hreyfanlegs heimil-
is þeirra, en draumaaðsetur
hjónanna var þegar þar var
komið sögu í smíðum fyrir
utan San Francisco.
Aðkoman hefur ekki
verið geðsleg því morðingi
Pamelu hafði skorið „H“ í
bakið á henni og rist upp
kvið hennar.
Ungur morðingi
Í fyrstu taldi lögregla
nokkuð augljóst að
morðið tengdist með
einum eða öðrum hætti
skipulagðri glæpastarf-
semi, og kannski ekki
undarlegt í ljósi starfa
Horowitz.
Ekki leið á löngu þar til
þeirri kenningu var kastað
fyrir róða, enda mun vænlegri
möguleiki til staðar. Þar var um
að ræða 16 ára gutta, fyrrnefnd-
an Scott Dyleski, og í ljós koma
að hann hafði stigið á öxl Pamelu
og skilið þar eftir skófar. Einnig
fannst lífsýni úr Pamelu Vitale á
ýmsum fatnaði Scotts og lífsýni
úr honum við líkið af henni.
Áhugi á dauða og ofbeldi
Við réttarhöldin, síðar meir,
gekk sækjandi út frá því
að Scott hefði ruglast á
Pamelu og einhverjum
öðrum nágranna; rann-
sókn leiddi í ljós að
hann hafði stolið
kreditkortaupp-
lýsingum til að
kaupa á netinu ljós til marijúana-
ræktunar.
Scott var sagður hafa breyst
mikið eftir að systir hans lét líf-
ið í bílslysi. Að sögn þeirra sem
til þekktu breyttist Scott úr dæmi-
gerðum dreng og fékk óeðlilega
mikinn áhuga á dauða og ofbeldi.
Gátlisti Scotts
Frekar óhugnanlegur gátlisti
fannst í fórum Scotts og eng-
um vafa undirorp-
ið að hann hafði
skrifað hann:
„Rota/
ræna, spyrja spurninga, halda í
prísund meðan kannað er hvort
PIN-númer sé rétt, skítaverk, losna
við sönnunargögn (skera í stykki
og grafa).“
Þegar upp var staðið slapp
Scott við dauðadóm, enda 16 ára
þegar hann framdi morðið. Hann
fékk hins vegar lífstíðardóm án
möguleika á reynslulausn. n
„ Breyttist
Scott úr
dæmigerðum
dreng og fékk
óeðlilega mikinn
áhuga á dauða og
ofbeldi
Scott Dyleski Risti „H“ í bak fórnarlambsins.