Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.08.2017, Page 16
ÍÞRÓTTIR
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.8. 2017
Í
slendingar voru býsna bjartsýnir fyrir vin-
áttuleik í knattspyrnu við Dani í Kaup-
mannahöfn í ágúst 1967. Þetta var 300.
landsleikur Dana og mikið um dýrðir.
Þær raddir heyrðust hér heima að jafnvel
væri komið að fyrsta sigrinum á gömlu herra-
þjóðinni og þjálfarinn, Reynir Karlsson, tefldi
fram ungum og sókndjörfum leikmönnum, að
kröfu stjórnarmanna Knattspyrnusambands Ís-
lands. Þegar til kom reyndist það ekki vænlegt
til árangurs, svo ekki sé fastar að orðið kveðið;
14:2 er versta tap Íslands fyrr og síðar.
Jóhannes Atlason, síðar landsliðsþjálfari, lék
í vörninni á Idrætsparken. „Ég spilaði bara
annan hálfleikinn; ég veit svei mér ekki hvort
það var sá betri eða verri! Staðan í hálfleik var
6:0 en við gerðum þó tvö mörk í seinni hálf-
leiknum!“ segir Jóhannes þegar hann rifjar
leikinn upp nú, í samtali við Sunnudagsblað
Morgunblaðsins. Hann meiddist seint í fyrri
hálfeiknum og Keflvíkingurinn Sigurður Al-
bertsson kom í hans stað eftir hlé.
Maður gleymist ekki!
„Það fennir vissulega í sporin, en þessi leikur
gleymist þó aldrei. Mig grunar að margir vilji
helst ekki tala um hann en elskan mín, mér hef-
ur aldrei fundist það erfitt; þetta er frægur við-
burður sem ég tók þátt í og því verður ekki
breytt,“ segir Jóhannes. Hann hefur reglulega
rifjað leikinn upp. „Maður gleymist þá að
minnsta kosti ekki!“ segir hann og hlær. „Ég
hef verið í þessum helv … viðtölum hér og þar á
tíu ára fresti síðan leikurinn fór fram, en ætli
þetta fari ekki að verða gott!“
Jóhannes sá leikinn sem sagt frá tveimur
sjónarhornum og hann segir það hafa verið erf-
itt að horfa á ósköpin úr varamannaskýlinu í
seinni hálfleik. „Risið var skiljanlega ekki hátt á
mönnum inni í klefa í hálfleik og það var agalegt
að horfa á Reyni þjálfara því hann var alveg
miður sín. Samt var engu breytt, hvorki leik-
aðferðinni né skipt inn á nema vegna þess að ég
meiddist. Menn voru bara í sjokki.“
Sumarið 1967 mætti landslið 23 ára og yngri
Norðmönnum og Svíum í vináttuleikjum á
Melavellinum, í tilefni 20 ára afmælis KSÍ, og
stóð sig með mikilli prýði. Í kjölfarið var ákveðið
að kjarninn úr því liði spilaði gegn Dönum.
„Menn voru mjög bjartsýnir eftir þessa tvo leiki
23 ára liðsins. Fyrst unnum við Norðmenn mjög
örugglega, 3:0, og lentum svo í hasarleik við
Svía sem við að vísu töpuðum,“ segir Jóhannes.
Hann telur að ein ástæða þess að ákveðið var að
stilla upp ungu og mjög sókndjörfu liði hafi ver-
ið sú að þetta var fyrsti leikur landsliðsins sem
sýndur var í heild í Ríkissjónvarpinu. Ekki
beint – það gerðist ekki fyrr en löngu seinna –
heldur var leikurinn á dagskrá tveimur dögum
síðar, seint á föstudagskvöldi.
„Fyrst leikurinn var sýndur í sjónvarpinu held
ég að menn hafi alls ekki viljað bjóða upp á ein-
hvern varnarleik! Enda tíðkaðist það svo sem ekki
á þessum árum. Við notuðum leikkerfið 4-2-4; vor-
um með tvo tengiliði og fjóra í framlínunni.“
Nokkrum árum síðar, þegar Ríkharður Jóns-
son var landsliðsþjálfari, mættu Íslendingar
áhugamannalandsliði Frakklands. „Það var mjög
gott lið og Rikki ákvað að bæta manni við á miðj-
una; spila með djúpan miðjumann eins og það er
kallað núna, í hlutverki eins og Aron Einar skilar
svo vel. Leikurinn endaði 0:0 og Rikka var ekki
beinlínis hrósað í hástert fyrir leikaðferðina í
blöðunum. Menn vildu meiri sóknarleik!“
Aftur að leiknum í Kaupmannahöfn. „Það var
hugur í mönnum, en við vorum varla búnir að ná
andanum þegar staðan var orðin 4:0,“ segir Jó-
hannes. Helsti munurinn á liðunum var einmitt
sá, skv. umfjöllun á sínum tíma, hve fljótir Dan-
irnir voru og hve hratt þeir léku boltanum á
milli sín. Íslendingar áttu ekki slíku að venjast.
John Steen Olsen gerði fyrsta markið á 4.
mínútu, Finn Laudrup bætti marki við þremur
mín. síðar, Kresten Bjerre skoraði úr víti á 13.
mín. og þegar stundarfjórðungur var liðinn
gerði Tom Søndergaard fjórða markið.
„Þetta byrjaði sem sagt mjög skrautlega og
leikurinn var reyndar ekki einu sinni hafinn
þegar fyrsta óhappið varð. Ég átti langa send-
ingu í upphituninni, varð fyrir því óláni að skjóta
í hnakkann á Elmari Geirssyni sem vankaðist
og gat ekki verið með. Kári Árnason kom á
vinstri kantinn í staðinn, en Elmar hefur senni-
lega verið mér mjög þakklátur eftirá!“
Miðjumennirnir tveir gegn Dönum voru fyr-
irliðinn, Eyleifur Hafsteinsson, sem var aðeins
tvítugur, og Guðni Jónsson, 24 ára. „Hvorugur
var þekktur sem sérstakur varnarmaður enda
átti að leggja áherslu á að sækja og því má ekki
gleyma að við skoruðum tvö mörk …“
Danska liðið var mjög gott á þessum tíma „og
í þessum leik gekk hreinlega allt upp hjá þeim,
það var sláin inn og stöngin inn. Gummi mark-
maður hefði kannski getað varið tvö af þessum
skotum en átti enga sök á neinu af hinum mörk-
unum“, segir Jóhannes.
Fæstir þeirra sem léku á Idrætsparken áttu
mikla framtíð í landsliðinu. „Einhverjir spiluðu
aðeins meira en við vorum bara nokkrir sem
lifðum þetta af, ef svo má segja. Þetta var fyrsta
árið mitt í liðinu, þriðji landsleikurinn, og ég var
svo fastamaður í liðinu í sex ár.“
Öll mörkin og fáein önnur atriði úr leiknum
má sjá á netinu, á youtube.com með því að slá
inn „1967 Danmark - Island 14 - 2“ í leitar-
glugga síðunnar.
Nordfoto
John Steen Olsen, fyrir miðri mynd, gerir sjötta mark Dana á 40. mín. eftir frábæran undirbúning
Finns Laudrups. Guðmundur Pétursson markmaður og Jóhannes Atlason eru bjargarlausir.
Hálf öld frá 14:2-
martröðinni
Miðvikudagurinn 23. ágúst árið 1967 er sem meitlaður í stein í
íslenskri knattspyrnusögu. Þá gjörsigruðu Danir ungt landslið
Íslands í vináttuleik á Idrætsparken í Kaupmannahöfn, 14:2.
Næsta miðvikudag verður hálf öld liðin frá leiknum sögufræga
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Guðmundur Pétursson markvörður
horfir á eftir knettinum í netið. Tom
Søndergaard skorar þarna fjórða
mark leiksins á 15. mínútu án þess að
varnarmennirnir Jón Stefánsson og
Jóhannes Atlason fái rönd við reist.
Fyrirsögn íþróttasíðu Tímans daginn eftir leik.
KR-ingurinn Guðmundur Pétursson
stóð í markinu. Í vörninni voru Jóhann-
es Atlason úr Fram, Jón Stefánsson,
leikmaður ÍBA á Akureyri, Framarinn
Anton Bjarnson og Guðni Kjartansson
úr Keflavík. Tveir leikmenn voru á
miðjunni, Skagamaðurinn Eyleifur
Hafsteinson fyrirliði og Akureyring-
urinn Guðni Jónsson en fjórir í fremstu
víglínu; Skagamaðurinn Björn Lár-
usson á hægri kantinum, miðherjarnir
voru Valsarinn Hermann Gunnarsson
og Helgi Númason úr Fram og á vinstri
kantinum lék Kári Árnason frá Ak-
ureyri, sem kom inn í byrjunarliðið eft-
ir að Framarinn Elmar Geirsson vank-
aðist í upphitun þegar Jóhannes
Atlason spyrnti boltanum í höfuð hans.
Lið Íslands