Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.08.2017, Page 28
FERÐALÖG Rijksmuseum er stærsta safn Hollands og meðal flott-ustu listasafna í heimi. Þar má finna þúsundir heims-
frægra verka og er heimsókn þangað alveg ómissandi.
List í Amsterdam
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.8. 2017
www.solning.is
Nína
Á heitum dögum er tilvalið að fá sér ís. Ís-
búðin Banketbakkerij van der
Linde er þekkt fyrir sinn einfalda ís.
Ísinn er dúnmjúkur en hann er
blanda af rjóma og vanilluís, aðeins
ein bragðtegund.
Það er næstum alltaf röð út úr búð-
inni en þótt röðin sé löng þá gengur
hún hratt fyrir sig vegna þess hve skil-
virk þjónustan er. Velja þarf á milli
þriggja stærða og hægt að velja um
að fá hann í formi, boxi eða í sam-
loku. Athugið að einungis er hægt
að borga með peningum.
Meira en kynlíf og kannabis
Gömlu húsin og göturnar í miðbæ Amsterdam eru
einkar sjarmerandi. Þar eru til að mynda allir staðirnir
sem bent er á í þessari grein og hægt að eyða mörg-
um dögum í að ráfa milli forvitnilegra áfangastaða.
Miðbær Amsterdam samanstendur af 90 litlum
eyjum sem tengdar eru saman með rúmlega 400
brúm. Auðvelt er að ferðast um bæinn og þá sér-
staklega á hjóli. Margar götur líta þó eins út og
því er gott að hafa kort með sér til að villast ekki.
Þó að Amsterdam sé þekkt fyrir löglega vændis-
sölu og grasreykingar þá er margt annað sem
borgin býður upp á, má þar nefna sögufræg söfn
og góða veitingastaði. Að öðru leyti er
Amsterdam fögur og
skemmtileg borg.
Texti og ljósmyndir
Nína Ingólfsdóttir nina@mbl.is