Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.08.2017, Síða 37
20.8. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
TÓNLIST Priscilla Presley, eiginkona Elvis Presley til 6 ára,
segir heiminn heppinn að hafa átt Elvis Presley. Priscilla
heimsótti Graceland á dánardegi goðsins, 16. ágúst, í tilefni
þess að 40 ár voru liðin frá láti hans. Í viðtali við
Entertainment Tonight sagði hún að í heimsókninni hafi
henni verið hugsað til að þrátt fyrir allt sem Elvis Presley
hafi afrekað, og alla fræðgina, hafi hann aldrei tapað sjálfum
sér. „Hann var alltaf guðhræddur, hann naut þess alla tíð að
koma fram. Hann var afar, afar örlátur. Hann var algjörlega
falslaus.“ Priscilla sagði einnig að þegar hann lést, 1977, hafi
það verið henni mikið reiðarslag, henni hefði aldrei dottið í
hug að hann færi svo skjótt. Lisa Marie, dóttir Elvis tók líka
þátt í minningarathöfnini á Graceland ásamt börnum sínum.
Var algjörlega falslaus
Priscilla Presley segist enn
eiga erfitt með að trúa því
að Elvis Presley sé farinn.
KVIKMYNDIR David Lowery, leikstjóri
nýrrar kvikmyndar um Pétur Pan, segir sitt
nýjasta verkefni mikla áskorun en myndin
er lifandi leikin útfærsla á teiknimyndinni
ástsælu. Í viðtali við Den of Geek sagði Lo-
wery að ábyrgðin væri sérstaklega mikil
þar sem hann væri með krúnudjásn Disney í
höndunum. Framleiðendur væru því sér-
staklega varkárir í að ofbjóða ekki aðdáend-
um sögunnar, passa sig að halda sig vel við
atburðarás en koma áhorfendum samt á
óvart, það væri vandmeðfarinn meðalvegur
en handritið er langt á veg komið.
Með krúnudjásn í höndunum
David Lowery gerði lifandi leikna útfærslu af
annarri Disney-kvikmynd, Peter the Dragon,
sem sýnd var á síðasta ári.
Plötusnúðurinn Silja Glømmimun þeyta skífum í anddyrihótelsins Hlemmur Square í
dag, laugardag, á milli kl. 14 og 16.
„Ég spila mikið diskó, fönk og
sækadelískt rokk og popp og yfirleitt
eldri lög en þó í bland ný lög sem ég
hef verið að uppgötva. Ég spinn þetta
yfirleitt á staðnum en er alltaf búin að
búa til nokkra lagalista. Í dag mun ég
spila frekar fjölskylduvæna tónlist
þannig að ég verð minnst í dansvænni
klúbbatónlist. Ég er að fara að spila
eitthvað allt annað,“ segir Silja.
Að tala saman og dilla sér
„Ég er alltaf með fjölbreytta tónlist
með mér til að bregðast við stemning-
unni á staðnum og ég gref upp tónlist
sem er ekki endilega á topp-tíu-listum
útvarpsstöðvanna. Ég spila t.d. mikið
af afrískri tónlist frá árunum 1960-70
og allskonar evrópska sækadelíu. Ég
hef farið að grúska meira með ár-
unum og út frá nýrri tónlist kynnist
maður oft eldri áhrifavöldum,“ segir
Silja sem hefur verið á kafi í tónlist
síðan hún var níu ára og eignaðist sitt
fyrsta útvarps- og kassettutæki og fór
að taka upp lög úr útvarpinu.
„Ég á eldri bróður sem kynnti mig
fyrir hip-hop-tónlist sem hefur haft
mjög mikil áhrif á mig.
Þaðan koma eiginlega þessi diskó-,
fönk- og djassáhrif því sú tónlist hef-
ur haft mikil áhrif á hip hop. Minn
stíll gengur út á að búa til notalega
stemningu, svo fólk geti talað saman
en samt líka dillað sér. Millivegur á
milli kaffihústónlistar og dansgólf-
stónlistar.“
Silja hefur verið plötusnúður í
bráðum 15 ár.
„Þetta hefur alltaf verið hliðarstarf
hjá mér en það hefur verið ótrúlega
mikið að gera undanfarin ár. Ég fór
m.a. til Kosice í Slóvakíu í mars að
spila á listahátíð. Það var glimrandi
góð stemning, Slóvakarnir á svæðinu
ótrúlega opnir fyrir tónlistinni, mjög
vinalegir og áhugasamir, sérstaklega
þegar ég spilaði eitthvað íslenskt.“
Vínyllinn meira lifandi
– Hvað færðu út úr því að vera plötu-
snúður?
„Ánægjuna. Gleðina. Það að sjá
fólk komast í fíling. Þetta er svo
skemmtilegt og ég elska tónlist, hún
er mitt helsta áhugamál. Ég safna
plötum og reyni að spila mest af vínyl,
en það er tímafrekara og krefst meiri
undirbúnings, plötur eru þungar og
fyrirferðarmiklar. Það er mjög auð-
velt að vera bara með tölvuna í bak-
poka svo það kemur fyrir að ég geri
það.“
– Af hverju kýstu vínylinn?
„Plötur eru áþreifanlegri, ég hef
eitthvað í höndunum, mér finnst ég
hafa meira að gera og allt verða
meira lifandi. Það kemur þéttari
hljómur frá plötum, en hitt er líka
gott ef hljómgæðin eru í lagi. Ég
blanda þessu alltaf saman því ég á
bara einn plötuspilara sjálf.“
Þeir sem missa af Silju í kvöld geta
reynt að hitta á hana á sunnudags-
kvöldum á Kaffibarnum, en hún leik-
ur líka oft á Barananas, Húrra, Bravó
og á pítsustaðnum á Hverfisgötu 12
og hún svíkur engan.
„Ég elska að sjá fólk lifna við og að
búa til góða stemningu. Ég fer ekki
sátt heim nema mér hafi tekist það.“
hilo@mbl.is
„Ég spinn á
staðnum“
Silja Glømmi hefur meira en nóg að gera
við að þeyta skífum um alla borg
„Minn stíll gengur út á að
búa til þægilega og nota-
lega stemningu,“ Silja.
LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR
* Til að DHA skili jákvæðum áhrifum
þarf að neyta 250 mg á dag.
OMEGA-3
FYRIR SJÓN
OG AUGU
Omega-3 augu er ný vara frá Lýsi
sem er einkumætlað að viðhalda
eðlilegri sjón.
Omega-3 augu inniheldur lútein,
zeaxanþín og bláberjaþykkni. Ásamt
omega-3 fitusýrunni DHA*, sinki og
ríblóflavíni (B2 vítamín) sem stuðla
að viðhaldi eðlilegrar sjónar.
Fæst í öllum helstu apótekum landsins.
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Í blaðinu verður kynnt fullt
af þeim möguleikum sem
í boði eru fyrir þá sem
stefna á heilsuátak og
bættan lífsstíl.
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 16 mánudaginn 21. ágúst
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 25. ágúst 2017
Heilsa& lífsstíll
SÉRBLAÐ