Fréttatíminn - 03.02.2017, Page 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 3. febrúar 2017
Hælisleitendur Íranska hælisleit-
andanum Amir Shokrgozar var
vísað úr landi í gærmorgun en
hann var handtekinn fyrir utan
geðdeild Landspítalans þar sem
hann hafði dvalið í tvo daga
vegna þunglyndis. Þingmaður
Pírata, sem sjálfur hefur leitað sér
aðstoðar á geðdeild, segir þung
skref út af deildinni. Hann vill
skoða verklagsreglur varðandi
handtöku hælisleitenda.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
„Hann var búinn að vera á geðdeild
í tvo daga þegar þeir gripu hann,“
segir íslenskur unnusti Amir. Hann
segir Amir hafa verið orðinn mjög
þunglyndan og úr varð að honum
leist ekki á blikuna og þeir leituðu
aðstoðar upp á Landspítala.
„Læknirinn vildi þá hafa hann
yfir nótt, sem urðu svo að tveim-
ur dögum,“ segir unnustinn. Amir
og unnustinn voru á leiðinni út á
bílastæði á miðvikudaginn þegar
óeinkennisklæddir lögreglumenn
komu aðvífandi og handtóku Amir.
Unnustinn segir að skýringarnar
hafi verið þær að óttast hafi verið
að Amir myndi flýja eða fara í felur.
Nokkuð sem þeir höfðu ekki íhug-
að.
Eins og fram hefur komið var
Amir vísað úr landi á grund-
velli Dyflinnarreglugerðarinnar. Í
greinargerð til Útlendingastofnunar
kom fram að Amir mátti þola hrotta-
legt kynferðisofbeldi í flóttamanna-
búðum á Ítalíu árið 2010. Síðar átti
hann eftir að framfleyta sér með
vændi þar sem enga vinnu eða hús-
næði var að hafa.
Unnustinn segir að Amir hafi
brugðist harkalega við handtökunni
þegar komið var á lögreglustöðina
og úr varð að hann fékk ekki að
hitta neinn áður en honum var vís-
að úr landi snemma á fimmtudags-
morguninn.
Þingmaður Pírata, Gunnar Hrafn
Jónsson, segir málið tilefni til þess
að spyrja á hvaða forsendum hæl-
isleitendur eru handteknir og
vistaðir í fangageymslum áður en
þeim er vísað úr landi. Aðspurður
um að handtaka menn fyrir utan
geðdeild Landspítalans, svarar
Gunnar: „Ég hef farið inn á geð-
deild. Og það eru þung kref inn, og
þung skref út. Ég get ekki ímyndað
mér hvernig það er að vera handtek-
inn á planinu fyrir utan.“
Gunnar Hrafn segir raunveruleika
samkynhneigðra í Íran vera skelfi-
legan og ef það leiki minnsti vafi á
því að viðkomandi verði sendur aft-
ur til upprunalandsins, þá þurfi að
koma í veg fyrir það.
„En það er erfitt að tjá sig um
einstök mál, en ég vil skoða þessar
verklagsreglur og athuga hvort það
sé hægt að hafa þær mannlegri,“
segir Gunnar Hrafn. „Því þótt niður-
staðan hafi verið sú að það ætti að
vísa honum úr landi, þá myndi ég
halda að þessar aðgerðir séu ekki
til þess fallnar að bæta ímynd kerf-
isins,“ segir Gunnar Hrafn.
Amir hand tekinn
við geðdeildina
Gunnar Hrafn
Jónsson, þingmaður
Pírata, hefur sjálfur
leitað sér aðstoðar
á geðdeild Landspít-
alans. Hann segir
skrefin þung út af
deildinni.
Pétur Gunnlaugsson
hefur staðið í ströngu
undanfarið.
Amir Shokrgozar flúði Íran vegna kynhneigðar sinnar.
Manndráp Rannsókn á máli Birnu
Brjánsdóttur hefur meðal annars
beinst að því hvort hún hafi verið
látin áður en henni var komið fyr-
ir í sjó eða hvort ummerki séu um
drukknun. Niðurstöður krufn-
ingar gætu gefið vísbendingu um
hvernig líki hennar var komið
fyrir í sjó. Nikolaj Olsen hefur
verið sleppt en farið var fram á
áframhaldandi tveggja vikna
gæsluvarðhald yfir Thomasi
Möller- Olsen í gær.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Nikolaj Olsen hefur enn réttarstöðu
grunaðs þótt hann sé laus úr haldi.
Ekki þótti ástæða til að fara fram á
farbann. Talið er að Thomas Möller
Olsen sé höfuðpaurinn í málinu en
Nikolaj hefur jafnan borið við minnis-
leysi vegna mikillar ölvunar.
Réttarmeinarannsóknir í málinu
hafa meðal annars beinst að því hvort
Birna hafi verið látin þegar henni var
komið fyrir í sjó. Þá er kannað hvort
vökvi hafi verið í líffærum hennar,
en slíkt myndi benda til drukknunar
og gæti jafnvel gefið vísbendingu um
hvernig henni var komið fyrir í sjó.
Ferskvatn í líffærum myndi benda
til að henni hafi verið hent í á, það-
an sem lík hennar hefur borist út á
sjó. Saltvatn segði aðra sögu. Endan-
legar niðurstöður krufningar liggja
ekki fyrir.
Ekki voru sjáanleg beinbrot á lík-
inu, sem gæti bent til þess að henni
hafi verið kastað á dýpi. Til dæmis
fram af bjargi eða brú.
Ein tilgáta sem lögregla vinnur
eftir er hvort Birnu hafi verið hent
fram af Óseyrarbrú. Brúin kemur
til greina vegna þess að þaðan hefði
morðinginn ekki þurft að fara með
hana langa leið frá bílnum. Krýsu-
víkurbjarg hefur einnig verið nefnt
sem mögulegur staður en ýmislegt
útilokar það.
Fyrir fáeinum árum fyrirfór karl-
maður sér með því að kasta sér fram
af Óseyrarbrú. Lík hans rak á fjöru
aðeins nokkur hundruð metrum
vestar við brúna. Lík Birnu Brjáns-
dóttur fannst hinsvegar rúmum 25
kílómetrum vestan við Óseyrarbrú.
Að mati sérfræðinga, sem Frétta-
tíminn hefur rætt við, er nær ómögu-
legt að gera prófanir á því hvernig lík
berst í sjó. Ef slíkar prófanir ættu að
fara fram yrðu þær að vera gerðar við
nákvæmlega eins veður og vindskil-
yrði og voru þegar lík Birnu var kom-
ið fyrir í sjónum. Vindur hefur meira
að segja en hafstraumur um hvernig
líkið berst.
Krufningin dregur fram atburðarásina
Ragnar Jónasson með
fjögurra bóka samning
í Bandaríkjunum
Bókmenntir Snjóblinda endur-
prentuð tvisvar áður en hún
kom út.
Spennusagnahöfundurinn Ragn-
ar Jónasson hefur gert fjögurra
bóka samning við
bandaríska út-
gáfurisann St.
Martin’s Press.
Samningur-
inn er gerður
í kjölfarið á því
að Bandaríkja-
menn hafa
tek-
ið
Snjóblindu Ragnars opnum örmum.
Bókin kom út vestanhafs á dögun-
um og var endurprentuð tvíveg-
is áður en formlegur útgáfudagur
rann upp.
St. Martin’s Press kaupir fyrstu
tvær bækurnar í nýrri seríu Ragnars
um lögreglukonuna Huldu, Dimmu
og Drunga, en einnig tvær bæk-
ur hans um lögreglumanninn Ara
Þór, Myrknætti og Rof. Áður hafði
forlagið tryggt sér Náttblindu en
hún var einmitt valin besta þýdda
glæpasagan í Bretlandi á liðnu ári.
Aðalritstjóri St. Martin’s Press,
Marcia Markland, segir: „Við erum
himinlifandi með að kynna þenn-
an stórkostlega glæpasagnahöfund
fyrir bandarískum lesendum. Hann
er ótrúlega hæfileikaríkur.“ | hdm
Ragnar Jónasson er óðum að ná fót-
festu á bókamarkaði vestanhafs. Hann
hefur gert fjögurra bóka samning við
St. Martin’s Press. Mynd | Hari
Viðskipti Mark aðsvirði Icelandair
lækkaði um 24 prósent, fór úr 189
millj örðum króna í 83 millj arða,
eftir sögulegt hrap bréfa félagsins.
Þetta gerðist eftir að afkomutil-
kynn ing var send til Kaup hallar á
þriðjudag og greint þar frá versn-
andi afkomu rekstr ar ins.
Fleiri gamalgróin flugfélög eiga í
erfiðleikum, þannig hrapaði virði
norræna flugfélagsins SAS um 48
prósent í fyrra.
Þar áforma stjórnendur að skera
niður rekstrarkostnaði um átján
milljarða íslenskra króna á næstu
þremur árum til að bregðast við
aukinni samkeppni frá lággjaldafé-
lögum. Þá hefur verið í skoðun hjá
SAS að flytja reksturinn að nokkru
leyti til annarra landa þar sem
kostnaður er lægri en á Norður-
löndum.
Aukin samkeppni í flugi til
Bandaríkjanna á hlut að máli og
hærra olíuverð og sterkt gengi
krónunnar hefur einnig áhrif, að
sögn stjórnenda Icelandair Group.
Stærsti einstaki hluthafi
Icelandair er Lífeyrissjóður verzl-
unarmanna, með 14,7 prósent
hlut, en vegna fréttanna sendi
hann frá sér tilkynningu í gær þar
sem kemur fram að 65 prósent af
hlutafé sjóðsins í Icelandair Group
hafi verið keypt árið 2010 á gengi
sem var mun lægra en lokagengi
hlutabréfa flugfélagsins í gær.
Verðmæti bréfanna sé því fjórfalt
kaupvirði þeirra. | þká
Sögulegt hrap bréfa í Icelandair
Lífeyrissjóður verslunarmanna segir
bréfin fjórfalt verðmætari en kaup-
verðið.
Dómsmál „Það stendur til að
áfrýja þessu, þarna er um tilhæfu-
lausa ærumeiðingu gegn mér að
ræða og ég sætti mig ekki við það
að vera úrskurðaður nánast æru-
laus,“ segir Pétur Gunnlaugsson,
útvarpsmaður og lögfræðingur.
Hann hefur ákveðið að áfrýja meið-
yrðamáli sem hann sótti gegn Þor-
björgu Lind Finnsdóttur, sem deildi
hlekk á Facebook síðu sinni þar sem
sagði að Pétur væri „kúkur mánað-
arins“ og átti rætur að rekja til vef-
síðunnar Sandkassinn.com.
Var Pétri að auki gert að greiða
henni 800 þúsund krónur í
málskostnað. Meðal forsenda í mál-
inu var að Þorbjörg mætti hafa ríku-
legt svigrúm til þess að tjá skoðan-
ir sínar um Pétur. Tvö mál eru nú
á leið til Hæstaréttar tengd Pétri,
en hitt er ákæra vegna hatursorð-
ræðu sem var vísað frá Héraðsdómi
Reykjavíkur.
„Ég er bjartsýnn á að frávísun-
in verði staðfest,“ sagði Pétur um
seinna málið.
Talið er að Thomas Möller-Olsen sé
höfuðpaurinn í málinu en hinum
hefur verið sleppt.
Hatursorðræða og „kúkur
mánaðarins“ fyrir Hæstarétt
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r. H
eim
sfe
rð
ir á
ski
lja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra.
SKÍÐI
11. febrúar í 7 nætur
Netverð á mann frá kr. 96.995 m.v. 2 fullorðna og
1 barn í herb. Netverð á mann frá kr. 99.995 m.v. 2
fullorðna í herbergi.
Stökktu
Stökktu
Frá kr.
96.995
m/hálfu fæði
Frá kr.
121.495
m/hálfu fæði
Hotel Speiereck
Á SPOTTPRÍS
Flugsæti
Frá kr.
59.900
m/tösku og
skíðum