Fréttatíminn - 03.02.2017, Side 60
Unnið í samstarfi við VMA
Verkmenntaskólinn á Akureyri býður upp á fjölbreytt verknám með öfluga tengingu við at-
vinnulífið. Baldvin Ringsted er
sviðsstjóri verknáms í VMA. „Við
höfum verið að taka nýjar greinar
inn og taka aftur upp greinar sem
hurfu frá okkur,“ segir Baldvin og
nefnir í því samhengi bifvélavirkj-
un. „Það nám var tekið af okkur,
nánast með valdi á sínum tíma,
en með harðfylgi komum við því á
aftur. Það nám er skýrt dæmi um
samstarf við atvinnulífið því við
verðum að vera með bíla í náminu,
þá fáum við lánaða frá umboðun-
um auk sértæks búnaðar,“ segir
Baldvin.
Tekur 4 ár að búa til
iðnaðarmann
Þrátt fyrir fækkun menntaðra
iðnaðarmanna hefur ásóknin í
verknámið í VMA ávallt verið góð.
„Það fækkaði í byggingargreinun-
um hjá okkur eftir hrun en er að
ná sér á strik og er að verða nokk-
uð gott. Þetta spilast auðvitað
með atvinnulífinu, hvort það er
pláss þar. Við höfum reynt að láta
atvinnulífið bera ábyrgð með okk-
ur, ef það verður verkefnaskortur
mega þeir ekki hætta að taka
nema því þegar birtir aftur tekur
alltaf 4 ár að búa til iðnaðarmann.
Þeir verða að taka ábyrgð og taka
nema þó að það harðni í ári. Þetta
er sameiginlegt verkefni skóla og
atvinnulífs og við verðum að spila
saman, ekki bara þegar vel geng-
ur,“ segir Baldvin.
Esja gæðafæði framleiðir
mikið af nautahakki og
hamborgurum. „Við erum
stórir í hamborgurunum,
framleiðum mikið af þeim.
Ætli það séu ekki að rúlla
í gegn svona 6-7 tonn af
nautahakki í hverri viku
hjá okkur,“ segir Jón
framleiðslustjóri.
6-7 tonn af hakki og
hamborgurum á vikuStefnan að taka
sem flesta nema
á samning í kjötiðn
Esja Gæðafæði er eitt öflugasta fyrirtæki á markaðnum sem sinnir
mötuneytum, veitingahúsum og verslunum og rekur auk þess
glæsilega verslun, Sælkerabúðina
Unnið í samstarfi við Esju gæðafæði
Við erum að einbeita okkar að stóreldhúsamarkaði, mötuneytum, veitingastöð-um og fleiru slíku. Það er
okkar mál og við stefnum á að vera
valkostur nr. 1 á landinu fyrir stór-
eldhúsin,“ segir Jón Þorsteinsson,
framleiðslustjóri hjá Esju Gæðafæði.
Esja Gæðafæði er hefðbundið
kjötiðnaðarfyrirtæki. „Við erum með
lambakjöt, hrossakjöt, folaldakjöt,
svínakjöt og nautakjöt og fugla-
kjöt. Við vinnum úr þessu öllu eftir
óskum kaupandans. Við erum einnig
með mikið magn tilbúinna rétta sem
eru afgreiddir til viðskiptavina til-
búnir í ofninn eða á pönnuna í mötu-
neyti,“ segir Jón.
Um mitt sumar sameinuðust Esja
Gæðafæði og Kjötbankinn und-
ir nafninu Esja Gæðafæði og eftir
stendur eitt öflugasta fyrirtæki á
markaðnum sem sinnir mötuneyt-
um, veitingahúsum og verslunum.
Esja Gæðafæði er til húsa að Bitru-
hálsi 2 þar sem Osta og smjörsalan
var til húsa á árum áður.
„Kjötvinnslan stækkaði töluvert
við sameininguna. Núna vinna um
70 manns hjá fyrirtækinu þegar allt
er talið; skrifstofa, söludeild og kjöt-
vinnsla. Við erum með 12 kjötiðnað-
armenn og þar af 6 kjötiðnaðar-
meistara sem hafa áratuga reynslu
og þekkingu í faginu og stefna
okkar er að taka sem flesta nema
á samning í kjötiðn,“ segir Jón en
skortur hefur verið á kjötiðnaðar-
nemum hér á landi að undanförnu.
„Við erum með sjö nema á sam-
ningi hjá okkur í dag. Og viljum að
þeim fjölgi til að viðhalda fagþekk-
ingu innan okkar starfsgreinar.“
Esja Gæðafæði rekur einnig
Sælkerabúðina sem er til húsa
að Bitruhálsi 2. Þar er að finna
allskonar góðgæti sem sælkerar
og matgæðingar kunna að meta.
„Þetta er mjög glæsileg verslun, þar
erum við með mikið af kjöti og ost-
um og stefnan er að gera verslun-
ina jafnvel enn glæsilegri en þegar
er. Þarna er hægt að nálgast allt
það besta sem við höfum upp á að
bjóða og hægt að gera sérpantanir
á heimsíðunni, www.saelkerabu-
din.is. Það er mikill metnaður hjá
starfsmönnum í Sælkerabúðinni.“
Jón Þorsteinsson, framleiðslustjóri hjá Esju
Gæðafæði, segir að mikill metnaður sé fyrir
því að taka á móti kjötniðnaðarnemum hjá
fyrirtækinu. Mynd | Hari
Fjölþætt
samvinna skóla
og atvinnulífs
Mikilvægt að atvinnulífið beri ábyrgð.
Útskriftarnemar í háriðn á sýningu á
Glerártorgi.
Hörður Óskarsson kennari sýnir grunnskólanemendum í námskynningu töfra málmsuðuhermisins.
Baldvin segir stærðina á bæjar-
félaginu hjálpa verulega til þegar
kemur að því að efla tengslin við
atvinnulífið. „Oft er það þannig að
það koma kennarar sem hafa ver-
ið að vinna í fyrirtækjum í bænum
og þannig höldum við tengsl-
um við fyrirtækið og mannskap-
inn. Þau á höfuðborgarsvæðinu
öfunda okkur dálítið af þessum
tengslum.“
Matartæknirinn
eftirsóknarverður
Þrjár greinar innan skólans eru
jafnan stöðugar, það eru vélstjórn,
rafvirkjun og húsasmíði. „Við erum
annar tveggja skóla hér á landi
sem kennir vélstjórn til fullnaðar-
réttinda. Þetta er fimm ára mjög
krefjandi nám, við útskrifum 10-15
vélstjóra á ári,“ segir Baldvin.
Kokkanám í VMA er nokkuð
eftirsóknarvert, þjónanám er ekki
í boði eins og er en það stendur
þó til að bæta úr því. Mikil að-
sókn er í matartækninn sem veitir
fólki réttindi til þess að vinna
á sjúkrahúsum og mötuneyt-
um, til dæmis. „Við útskrifuðum
15 um áramótin og erum með 18
manna hóp núna. Þetta er í lotu-
námi þannig að þetta er nám með
vinnu. Við höfum verið að bjóða
nokkrar námsleiðir í lotunámi
og það hefur gefið góða raun. Á
næstunni má búast við fleiri slík-
um,“ segir Baldvin.
Styrkir og samvinna skipta
sköpum
Að undanförnu hefur mikið ver-
ið talað um skort á fjármagni frá
ríkisvaldinu til þess að viðhalda
eðlilegu starfi í framhaldsskólum
og þar er VMA engin undantekn-
ing. „Við höfum svo sem kvart-
að og kveinað yfir ríkisvaldinu,
að við fáum ekki fjármagni til
tækjakaupa. En við höfum reynt
að bregðast við og höfum stofnað
fagráð í hinum ýmsu greinum til
að styrkja tengslin við atvinnulíf-
ið. Samherji, Slippurinn og Kæl-
ismiðjan Frost styrktu okkur til
dæmis um 20 milljónir til tækja-
kaupa sem skiptir sköpum til að
vera með móðins búnað. Einnig
má nefna að Slippurinn hefur
staðið sig einstaklega vel í því að
taka inn nema og er alltaf með
ákveðinn fjölda. Þegar einhver
tekur svo sveinspróf þá kemur
annar nemi inn í staðinn,“ segir
Baldvin.
12 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017IMFR 150 ÁRA