Fréttatíminn - 03.02.2017, Qupperneq 66

Fréttatíminn - 03.02.2017, Qupperneq 66
Bakaranámið er skapandi og spennandi nám. Bakarinn sér um vort daglegt brauð, kökur og fleira. Myndir | Hari Þann 14. desember 2008 sameinuðust Trésmiðafélag Reykjavíkur og Félag byggingamanna Eyjafirði undir nafninu Fagfélagið og starfaði það undir því nafni í um 3 ár. Á aðalfundi félagsins 28. mars 2012 var samþykkt að breyta nafni félagsins í Byggiðn – félag byggingamanna. Tilgangur með samein- ingu þessara tveggja félaga var að stofna öflugan málsvara iðnaðarmanna í byggingariðnaði. Trésmiðafélag Reykjavíkur var stofnað 10. desember 1899. Frá því að Tré- smiðafélagið var stofnað og fram á miðjan sjötta áratuginn var það fremur fagfélag en eiginlegt stéttarfélag. Um miðjan sjötta áratuginn varð sérstakt meistarafélag til, meistarar gengu í Vinnuveitendasambandið og sveinar í Alþýðusambandið. Við þetta urðu mikil þáttaskil og Trésmiðafélag Reykja- víkur varð hreint stéttarfélag þar sem kjaramál eru efst á baugi. Félag byggingamanna Eyjafirði (áður Trésmiðafélag Akureyrar) var stofnað árið 1904. Upp úr miðri síðustu öld fór félagið að þróast í launamannafélag. Á fundi 20. janúar 1967 var samþykkt að félagið sækti um inngöngu í Sam- band byggingamanna og jafnframt gekk það þá úr Landssambandi iðnað- armanna og varð aðili að Alþýðusambandi Íslands. Félagið hefur í gegnum tíðina sett mark sitt á uppbyggingu Akureyrar. Það beitti sér fyrir stofnun Iðnaðarmannafélags Akureyrar haustið 1904, en Iðnaðarmannafélagið stofnaði og rak Iðnskólann í hálfa öld. Verk félags- manna sjást í byggingasögu bæjarins og ekki síður með beinni þátttöku í stefnumörkun þar sem nokkrir forystumenn félagsins hafa setið í bæjar- stjórn Akureyrar. Stærsta áskorunin að laða ungt fólk að iðnnámi Formaður Byggiðnar er ósáttur við að ófaglært fólk sé flutt hingað til lands í stað iðnmenntaðra þegar skortur er á iðnaðarmönnum. Unnið í samstarfi við Byggiðn Iðnmenntun í landinu er jafn-gömul Iðnaðarmannafélaginu enda var það stofnað að stórum hluta í kringum upphaf Iðn- skólans. Við fögnum afmæli þessa ágæta félags sem hefur aukið veg og virðingu iðnaðar í landinu,“ segir Finnbjörn A. Hermanns- son, formaður Byggiðnar – félags byggingamanna. „Aðsókn að iðnnámi hefur verið sveiflukennd þar sem tískusveifl- ur, atvinnuástand og fleiri þættir spila inn í hversu vinsælt það er að læra iðn. Í dag er staðan sú að það er mikið að gera í byggingafram- kvæmdum en ekki mikil ásókn í námið. Ástæðan er sú að hér varð hrun og þá þótti mönnum ekki fýsi- legur kostur að fara í iðnnám og strax á eftir kom mikil uppsveifla. Við erum að súpa af þessu seyðið núna og það vantar mannskap í nánast allar iðngreinar,“ segir Finn- björn. Hann telur að hluti af takmark- aðri aðsókn í iðnnám sé að iðn- menntun sé ekki gert nógu hátt undir höfði. Ófaglært fólk sé flutt hingað til lands í stað iðnmennt- aðra vegna þess að það sé ódýrara vinnuafl. „Í byggingariðnaði lýsir þetta sér í lélegri gæðum á húsnæði. Stærsta áskorun okkar er að laða ungt fólk að iðnnámi og síðan að fyrirtækin sýni neytendum þá virðingu að vanda til verka og byggja mannvirki af hámarksgæð- um. Sem betur fer eru enn fyrirtæki á markaði sem standa upp úr hvað þetta varðar, fyrirtæki sem byggja sína starfsemi á vel menntuðum iðnaðarmönnum. Þeirra íbúðir eru eftirsóttar vegna orðsporsins sem af þeim fer.“ Finnbjörn segir eitt af baráttu- málum Byggiðnar að bæta iðn- menntun og fjölga iðnnemum í skólunum. „Við eigum mjög góða iðnskóla, þó þeir mættu vera betur tækjum búnir, og góða kennara. Allur grundvöllur er fyrir hendi, það þarf bara að laða unga fólkið að. Þá er mikil umræða að stofna fagháskólastig, sem byggir ofan á iðnnám. Það yrði atvinnulífinu mikil lyftistöng og myndi einnig gera iðnnám eftirsóknarverðara fyrir ungt fólk. Þessi hugmynd er komin á framkvæmdastig svo ég tel allar líkur á að við getum farið að bjóða upp á fjölbreytt fagháskólanám áður en langt um líður. Síðan þurfum við að taka gæða- málin fastari tökum svo fyrir- tæki komist ekki upp með að nota starfsfólk sem ekki kann til verka. Ábyrgð byggingaraðila þarf að vera töluverð þegar fólk er að leggja aleigu sína í húsnæði og íbúðir á að meta eftir gæðum. Tvær jafnstórar íbúðir eru ekki sami hlutur þó þær standi í sama hverfi. Það þarf að taka upp sem reglu að fagaðilar ástandsskoði íbúðir áður en þær fara í sölu. Það verður að vanda til verka og ég vona að þeir sem eru að byggja fari að hugsa sinn gang.“ Hann segir að áhugavert sé að skoða söguna sem virðist endur- taka sig reglulega. „Trésmiðafé- lag Reykjavíkur er stofnað 1899 og á 100 ára afmælinu gáfum við út sögu þess. Þegar maður les hana sér maður þessar sveiflur í atvinnuástandinu, það virðist vera gegnumgangandi í sögunni. Okkur gengur illa að læra af reynslunni. Með minni sveiflum yrðu iðnaðar- störf í byggingariðnaði eftirsóknar- verðari kostur,“ sagði Finnbjörn að lokum. Unnið í samstarfi við MK og MATVÍS Kökugerðarmaður (Konditorí): Kökugerð er löggilt iðngrein sem er fjögurra ára samningsbundið iðnnám og fer mestur hluti námsins fram á vinnustað. Skólaþáttur námsins fer fram í Danmörku. Starf kökugerðarmana er nátengt störfum bakara nema hvað þeir eru meira í konfekt- gerð, sykurskreytingum og vinna í bakarí- um, konditoríum, veitingahúsum, við sölu- mennsku til dæmis. Bakaraiðn Bakaraiðn er löggilt iðngrein. Bakaranámið er fjögurra ára samningsbundið iðnnám, mestur hluti námsins fer fram á vinnustað með námssamningi. Þetta er ein af eldri iðngreinum sem við eigum og elsta starfsstéttin innan MATVÍS. Árið 1934 gáfu bakarar út 100 ára sögu brauðgerðar á Íslandi. Bakarastarfið er fjölbreytt starf og unnið við skapandi og spennandi viðfangsefni svo sem brauð, kökur og tertuskreytingar, svo eitthvað sé nefnt. Þeir sem hafa menntað sig til bakarastarfs- ins hafa auk þess ýmsa starfsmöguleika. Bakar- ar starfa í bakaríum, á veitingahúsum, við sölu- mennsku og víðar. Bakarastarfið er fjölbreytt og spennandi Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Byggiðnar – félags byggingamanna, segir að Iðnað- armannafélag Reykjavíkur hafi aukið veg og virðingu iðnaðar í landinu. Mynd | Hari 18 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017IMFR 150 ÁRA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.