Fréttatíminn - 03.02.2017, Síða 67
Unnið í samstarfi við FIT
Hilmar Harðarson, for-maður Félags iðn- og tæknigreina, hefur áhyggjur af aukningu
kennitöluflakks sem áður hafði
náðst ágætis árangur við að
stemma stigu við. Hann seg-
ir flest benda til þess að kenni-
töluflakk og svört atvinnustarf-
semi sé aftur að færast í aukana
á ákveðnum sviðum á íslensk-
um vinnumarkaði. „Enn fær það
að viðgangast að einstaklingar,
sem hafa orðið uppvísir að refsi-
verðri starfsemi í atvinnurekstri,
setji félög í þrot, vísi launakröf-
um á Ábyrgðarsjóð launa, standi
hvorki skil á gjöldum til verka-
lýðsfélaga né lífeyrissjóða. Kaupi
svo nýtt félag með nýrri kenni-
tölu á næstu lögfræðiskrifstofu
og byrji leikinn upp á nýtt,“ segir
Hilmar sem bindur vonir sínar við
að nýir ráðherrar skeri upp herör
gegn þessari meinsemd. „Það
vantar ekki fleiri nefndir, bara
efndir.“
Ógn við stéttina
Félagsleg undirboð eru einnig
stórt vandamál að sögn Hilm-
ars en þá er átt við þegar verið
er að setja ófaglærða í störf sem
krefjast fagþekkingar í þeim
tilgangi að lækka launakostn-
að. Oft sé verið að leita út fyrir
landsteinana að slíku starfsfólki
og fordæmir FIT slíkt þar sem
það setur stéttina niður og gerir
samningaviðræður og kjarabæt-
ur erfiðari. „Starfsmannaleig-
ur flytja inn erlenda verkamenn
sem eiga að fá lágmarkslaun á
íslenskum vinnumarkaði og fá
sumir greidd þau laun en aðrir
ekki. Þessir erlendu verkamenn
vinna flest eða öll störf sem unn-
in eru við byggingu fjölmargra
mannvirkja á Íslandi um þessar
mundir, líka þau störf sem iðnað-
armenn með löggilt starfsréttindi
eiga að vinna samkvæmt lögum
og samningum sem eiga að gilda
á íslenskum vinnumarkaði,“ seg-
ir Hilmar og bætir við að þessi
undirboð séu raunveruleg ógn
við heila stétt fagfólks.
Frábært framtak
Íslandsmeistaramót iðngreina
hefur verið haldið undanfarin en
tekið var upp á þeirri nýbreytni í
fyrra að aka grunnskólanemend-
um á mótið. Hilmar segir að FIT
hafi fagnað mjög þessu framtaki.
„Við fáum ekki nægilega marga í
greinarnar að okkar mati. Þetta er
vel til þess fallið að vekja áhuga
ungmenna á iðngreinum, við fáum
ekki nægilega marga í greinarnar
að okkar mati,“ segir Hilmar.
Hilmar óskar að lokum Iðnað-
armannamannafélagi Reykjavíkur
til hamingju með 150 ára afmælið
fyrir hönd Félags iðn- og tækni-
greina.
Evrópumót iðngreina EuroSkills
var haldið dagana 1. til 3. des-
ember sl. í Gautaborg. Alls tóku
500 keppendur frá 28 Evrópu-
löndum þátt í keppninni. Á
EuroSkills mæta keppendur alls
staðar að úr Evrópu en þetta
var í fyrsta sinn sem keppn-
in var haldin í Skandinavíu.
EuroSkills er stærsta iðngreina-
keppni í Evrópu og meginmark-
mið hennar er að bæta gæði og
stöðu iðngreina og kynna iðn-
og verkgreinar fyrir ungu fólki
sem er að velja sér framtíðar-
nám. Keppendur fengu ákveðn-
ar hugmyndir um hver verkefn-
in yrðu fyrir keppnina. Gestir
og keppendur geta tekið þátt
í ýmsum viðburðum tengdum
keppninni svo sem sýningum
og fyrirlestrum.
Frá Íslandi voru keppendur í sjö
iðngreinum. Keppendur voru
Anton Örn Gunnarsson sem
keppti í húsasmíði, Axel Fannar
Friðriksson í grafískri miðlun,
Bjarki Rúnar Steinsson í málm-
suðu, Bjarni Freyr Þórðarson í
rafvirkjun, Iðunn Sigurðardóttir
í matreiðslu, Reynir Óskarsson
í pípulagningum og Sara Anita
Scime í hárgreiðslu. Liðsstjóri
íslensku keppendanna var
Svanborg Hilmarsdóttir raf-
magnstæknifræðingur. Áætlað
er að gestir á keppninni hafi
verið um 70.000 manns og þar
af um 45.000 nemendur frá ná-
grannabyggðum Gautaborgar.
Íslensku keppendurnir stóðu
sig afar vel. Þrír keppendur
voru með yfir 500 stig og hefur
það ekki tekist áður í þessari
keppni. Bjarni Freyr, sem keppti
í rafvirkjun, var aðeins hárs-
breidd frá því að komast á verð-
launapall. Íslandsmót iðngreina
verður svo haldið í Laugardals-
höll dagana 16.-18. mars nk.
Næsta EuroSkills keppni verður
haldin í Búdapest árið 2018.
FIT sinnir öflugu vinnustaðaeftirliti.
Vantar fleiri efndir – ekki nefndir
Kennitöluflakk og félagsleg undirboð raunveruleg ógn við stéttina.
Hilmar Harðarson, formaður Félags iðn- og tæknigreina.
Reynir Óskarsson, félagsmaður í FIT
sem keppti í pípulögnum að stilla upp
sínu verkefni.
19 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017 IMFR 150 ÁRA