Fréttatíminn - 03.02.2017, Síða 78
Ferskleiki og stuð á
Jacobsen Loftinu á RCW
Möndlusíróp og tabascosósa koma við sögu í ár
Unnið í samstarfi við
Jacobsen Loftið
Jacobsen Loftið tekur þátt í Reykjavík Cocktail Weekend líkt og fyrra og ætlar sannarlega ekki að
slá slöku við. Áherslan er eins og
vanalega þegar kemur að drykkj-
um á Loftinu.
Loftið tekur þátt í tveimur
keppnum af þremur í ár. Annars
vegar keppninni þar sem sá
kokkteill sem dómnenfd þykir
skara fram úr verður kjörinn RCW
drykkurinn. Í þeirri keppni mun
Jacobsen Loftið bera fram drykk
sem heitir My sweet fire sem
inniheldur brennivín, möndlu-
síróp, gojiberjasafa, ferskan
sítrónusafa og tabascosósu.
Heiðar segir My sweet fire þó
ekki valda logandi kverkum.
„Hann mjög ferskur og fínn
með sterku tvisti í endann.“
Hins vegar tekur Heið-
ar sjálfur þátt í íslands-
meistaramóti barþjóna
þar sem meðfæddir og
lærðir taktar skera úr
um það hvaða barþjónn
ber höfuð og herðar yfir
aðra þetta árið og þá verður öllu
til tjaldað. Heiðar þvertekur fyrir
að finna fyrir stressi og segist
komast í gírinn án fyrirhafnar,
keppnin sé ekki annað en til-
hlökkunarefni.
Klukkan 16 opna dyrnar
að Loftinu og opið er fram-
eftir bæði föstudags- og
laugardagskvöld eins
og endranær. Heiðar
lofar sama stuðinu og
allar aðrar helgar á
Jacobsen Loftinu.
Luidas kann
til verka á
barnum og
blandar hér
einn af þeim
kokteilum sem
hægt verður
að gæða sér á
um helgina.
Myndir | Hari
Unnið í samstarfi við Forréttabarinn
Forréttabarinn tekur nú þátt í Reykjavík Cocktail Weekend í annað sinn en viðtökurnar í fyrra fóru
fram úr björtustu vonum. Boðið
verður upp á fimm kokteila sem
allir eru mismunandi hvað varðar
áferð og bragð. Kokteillinn sem
mun freista þess að verða RCW
drykkurinn í ár er bragðmikill
og frískandi. „Í keppninni sjálfri
verður teflt fram kokteil sem
samanstendur af gini og contr-
eau, heimalöguðu hunangssírópi,
eggjahvítu, sítrónu og timían.
Einnig ætlum við að bjóða upp
á okkar útfærslur af klassískum
blöndum eins og Negroni og Whi-
skey Sour,“ segir Róbert Ólafs-
son, eigandi Forréttabarsins. „Við
höfum frá upphafi boðið upp á
metnaðarfullan kokteillista. Fáa
en góða drykki sem fastagestir
okkar eru farnir að þekkja og líkar
vel.“
Frábært snarl
með drykkjunum
Opnað verður á Forréttabarnum
klukkan 16 um helgina og því til-
valið að mæta snemma. „Við erum
með boltann á skjánum fyrri part
kvölds. Á kvöldin skapast síðan
notaleg stemning á barnum hjá
okkur,“ segir Róbert. Matseðillinn
á Forréttabarnum passar einstak-
lega vel við kokteillistann. Mikið
úrval er af smáréttum þannig að
allir ættu að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi til þess að snarla á
með gómsætan og frískandi kok-
teil á kantinum. Matur er fram
borinn til klukkan 22 og barinn
lokar klukkan 23.
Kokteilar sem
kitla bragðlaukana
Dásamlegir drykkir og gómsætt snarl.
Heiðar er til í
slaginn um helgina
6 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017REYKJAVÍKCOCKTAILWEEKEND