Fréttatíminn - 03.02.2017, Qupperneq 79
Unnið í samstarfi við Kopar
Jónmundur Þorsteinsson og Emil Tumi Víglundsson standa vaktina um helgina á barnum á Kopar. Boðið
verður upp á keppniskokteil sem
Emil hefur verið vakinn og sofinn
yfir undanfarnar vikur og hlaut
nafnið Aðaldalur. „Við bjuggum til
okkar eigið skyr sem við blönd-
um við brennivín, svo erum við
með heimatilbúið bláberjasíróp,“
segir Jónmundur. Aðspurður
um aðferðina, hvort hún sé
hernaðarleyndarmál, segir
Jónmundur að Emil hafi
legið yfir henni dag og
nótt og sé raunar ofar
hans skilningi. „Þetta
er víst rosa flókið ferli
sem gaman er að fylgj-
ast með. Þú þarft að
vera með ákveðið hitastig
og búa til gerla. Við setjum
vanillustangir út í skyrið og búum
þannig til vanilluskyr með besta
mögulega hráefni sem völ er á. Svo
blöndum við því saman við brenni-
vínið og notum það í kokteilinn.
Venjulega notum við sítrónusafa
eða limesafa til að fá sýru en við
notum mysu í keppniskokteilinn,“
segir Jónmundur.
Rauðkálssíróp og gulrætur
Ekki var farin hefðbundin leið að
kokteilagerðinni þetta árið og seg-
ir Jónmundur að þeir Emil og fé-
lagar hafi reynt að gera sitt besta
til þess að finna
frumlegar sam-
setningar sem fólk
hefur jafnvel ekki heyrt
um áður. Þar má til dæmis
nefna annan kokteil sem er búinn
til úr vodka og rauðkálssírópi og
annar úr gulrótum og engifersírópi.
Jónmundur keppir síðan í
freestyle keppninni og ákvað að
leita í upprunann eftir innblæstri.
„Ég byrjaði sem keyrslubarþjónn
niður í bæ og vann þá mikið með
sambuca. Mig langaði að gera
eitthvað með það þannig að ég
er með sambuca sem er „infjús-
að“ með vanillu og svo er ég með
heimatilbúið ananassíróp,“ segir
Jónmundur.
Kokteilar með
íslensku yfirbragði
Mysa, skyr og rauðkál á Kopar.
Emil er
ákaflega
fær bar-
þjónn og
hefur legið
yfir keppn-
iskok-
teilnum
undanfarn-
ar vikur.
Myndir | Hari
Rauðrófusírópið
gerir þennan
kokteil dásamlega
skærbleikan að lit.
Aðaldalur – skyr,
bláber og brennivín;
íslenski draumurinn?
Emil og Jónmundur standa vaktina um helgina.
Allir
kokteilar
verða á 1700
krónur um
helgina á
Kopar.
Unnið í samstarfi við
Hard Rock Café
Þetta er helgi sem þú vilt ekki missa af,“ segir Bru-no Beleo, barþjónn á Hard Rock Café í Lækjargötu.
Um helgina fer fram Reykja-
vík Coctail Weekend í miðborg
Reykjavíkur og Hard Rock Café
lætur ekki sitt eftir liggja.
„Þessa helgina verðum við með
fimm kokteila í boði sem bar-
þjónar okkar hafa sett
saman í tilefni Reykja-
vík Coctail Weekend.
Þar á meðal kok-
teillinn sem keppir
fyrir okkar hönd,“
segir Bruno.
Það er barþjónn-
inn Davíð sem er
höfundur kokteils-
ins sem tekur þátt í
keppninni á Reykjavík
Coctail Weekend. Kok-
teillinn kallast The Governor og
inniheldur meðal annars Capta-
in Morgan romm sem „infjúsað“
er með reyktum kanil og Oreo
kexi. „Þetta er nýja tæknin maður,
þetta unga fólk er brjálað!“ segir
Bruno og hlær.
Bruno hefur vakið athygli fyrir
tilþrif sín á barnum á Hard Rock,
en hann leggur mikið upp úr því
að sveifla kokteilhristurunum og
öðrum bartólum. Þetta kallast
„flair bartending“ upp á ensku og
Bruno hefur margoft tekið þátt í
þess háttar keppnum.
„Þetta er öðruvísi leið til að
gera kokteila en um leið skemmt-
ir maður gestum. Ég hef tvisvar
keppt á heimsmeistaramótinu fyr-
ir Íslands hönd og náð ágætis ár-
angri. Mitt starf á Íslandi er að
kenna unga fólkinu þessa
takta. Nýja kynslóðin
þarf að erfa þetta
svo Ísland komist
á kortið í þessum
flair-keppnum.
Það er mitt mark-
mið,“ segir Bruno
en hann verður
einmitt með slíka
barkeppni á Hard
Rock í næsta mánuði.
„Þá verð ég bara dómari,“
segir hann.
Bruno fékk félaga sinn frá Ísr-
ael hingað til lands um helgina og
saman sýna þeir alla sína bestu
takta á barnum. Þeir voru með
sýningu í Gamla bíói í gærkvöld
og verða í miklu stuði á Hard
Rock Café um helgina.
Bruno barþjónn á Hard Rock
Café afgreiðir kokteilana
með miklum stæl og verður í
stuði um helgina. Mynd | Hari
Sýnir tilþrif
á barnum
Bruno barþjónn og félagar hans á Hard
Rock Café verða í miklu stuði um helgina.
Fimm girnilegir kokteilar verða í boði í tilefni
Reykjavík Coctail Weekend.
„Þetta er
öðruvísi leið t
il
að gera kokte
ila
en um leið
skemmtir mað
ur
gestum.“
7 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017 REYKJAVÍKCOCKTAILWEEKEND