Fréttatíminn - 17.03.2017, Page 46
2 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017BÍLAR
Útgefandi: Morgundagur ehf. Ábyrgðarmaður: Valdimar Birgisson. Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300
Íslenski bílaflotinn telur um 240.000 bíla, rétt um 1% af bílaflotanum eru rafbílar. Stefnt er að því að þessi tala verði komin upp í 10% árið
2020. En til þess að svo megi verða
verður ýmislegt að breytast hjá
ríki og sveitarfélögum og hugafars-
breyting hjá landsmönnum.
Stjórnvöld hafa undanfarið lagt
aukna áherslu á að rafbílavæða
bílaflotann eða í það minnsta að
reyna að hraða þróuninni. Það
hefur verið gert með því að fella
niður innflutningsgjöld og virð-
isaukaskatt á rafbílum. Auk þess
greiðir þú engin bifreiðagjöld af
rafbílum og ókeypis rafmagn er á
hraðhleðslustöðvum um sinn að
minnsta kosti en líklega á þetta
eftir að breytast þegar fleiri taka
skrefið og fá sér rafbíl.
Reykjavíkurborg hefur líka ýtt
undir það að borgarbúar raf-
bílavæðist og stefnir borgin að því
að setja upp 58 hleðslustöðvar
á 13 stöðum í borginni. Það sem
þyrfti að gera líka er að setja inn í
byggingareglugerðir að þegar ný-
byggingar rísa sé gert ráð fyrir því
að tengi fyrir rafbíla séu aðgengi-
leg og að það sé einhvers konar
staðall sem hægt sé að fara eftir.
Eitt af því sem þarf að bæta, er
að fjölga hleðslustöðvum á og við
þjóðveg 1, þannig að rafbílar séu
ekki bara hugsaðir til innanbæj-
araksturs heldur sé hægt að nota
þá til lengri ferðalaga.
Íslendingar eru í dauðafæri, ef
svo má að orði komast, til að raf-
bílavæða bílaflotann. Við búum
hér við mikla græna, endurnýj-
anlega orku sem gæti auðveldlega
staðið undir því að rafbíll verði
álitlegur kostur næst þegar stend-
ur til að endurnýja bílinn. Frænd-
ur okkar Norðmenn eru komnir
töluvert lengra en við í þessum
efnum og við gætum vafalaust lært
ýmislegt af reynslu þeirra í þess-
um efnum.
Hverju sem öðru líður þá hljót-
um við að fara velta því alvarlega
fyrir okkur næst þegar kemur að
því að endurnýja bílinn að við
skoðum þann kost gaumgæfilega
að rafbíll verði fyrir valinu.
CHEVROLET CAPTIVA 2
2TDI nýskr. 06/2013, ekinn 108 Þ.km,
diesel, sjálfskiptur, 7manna.
Verð 3.490.000 kr. Tilboð 3.090.000 kr.
Lág útborgun. Raðnr. 256109
Sími 567 4840
Rafbílavæðing flotans
Rafbílavæðing hefur verið mikið í umræðunni undanfarin misseri.
Rétt um 1% af bílaflotanum eru rafbílar en stefnt er að því að þeir verði um 10% árið
2020. Mynd | Hari