Fréttablaðið - 14.04.2018, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 14.04.2018, Blaðsíða 40
Árlega má rekja um 1.400 beinbrot og 250 mjaðma­aðgerðir á Íslandi til bein­ þynningar en ætla má að þriðja hver kona og áttundi hver karl á Íslandi megi eiga von á broti af völdum beinþynningar. Bein­ þynning (e. osteoporosis) er sjúk­ dómur sem ber að taka alvarlega en beinbrot verða þá við lítið álag og vegna áverka sem nægja að öllu jöfnu ekki til að brjóta heilbrigð bein,“ segir Hrönn Hjálmarsdóttir, næringar­ og heilsumarkþjálfi hjá Artasan. Hvað er beinþéttni? „Beinþéttni segir til um hversu sterk beinin okkar eru. Fyrstu tvo áratugi ævinnar eru beinin að þéttast og þá, eins og alltaf, skiptir næringin öllu máli. Við verðum bæði að fá nægilegt magn af kalki, helst úr fæðunni, og D­vítamíni til byggja upp sterk bein. Upp úr 30 ára aldri fer að draga úr bein­ þéttninni og þá getur skipt máli hversu góð uppbyggingin hefur verið.“ Áhættuþættir Um 60­70% af beinþéttni ræðst af erfðaþáttum. Hversu þétt beinin eru á yngri árum ræður líka miklu um hvenær þau ná brotastigi. Beinþynning hefst oft hjá konum við tíðahvörf en aðrir þættir sem við getum ekki haft áhrif á eru aldur, kyn og kynstofn. Við getum þó eitthvað gert í málunum því það eru nokkrir þættir sem hægt er að hafa áhrif á: l Holdafar (vannæring) l Kalk- og/eða D-vítamínskortur l Reykingar l Hreyfing l Lífshættir l Einnig hafa ákveðin lyf, eins og sykursterar áhrif l Næring og þungaberandi æfingar „Þrátt fyrir að við höfum ekki fulla stjórn á því hversu mikil eða lítil beinþynningin verður þegar við eldumst, getum við haft tölu­ verð áhrif á það og með réttum ákvörðunum jafnvel komið í veg fyrir beinbrot á efri árum,“ segir Hrönn. „Nægileg prótein, kalk­ og D­vítamínneysla ásamt reglu­ legum líkamsæfingum er nauð­ synleg til að fyrirbyggja beinþynn­ ingu. D­vítamín þurfum við alltaf að taka inn á bætiefnaformi alla ævi en það sér um að líkaminn frásogi kalk úr fæðunni. K2­víta­ mín er ekki síður mikilvægt þar sem það sér um að binda kalkið í beinunum. Svo eigum við að hreyfa okkur alla daga en til að styrkja beinin þá eru þungaberandi æfingar bestar. Það eru æfingar þar sem við berum okkar eigin líkams­ þyngd (göngur og skokk) og einnig er mjög gott að lyfta lóðum.“ Osteo Advance – fullkomin beinablanda Fjöldi rannsókna gegnum tíðina hefur sýnt fram á að dagleg inn­ taka á kalki og D­vítamíni getur dregið verulega úr líkum á bein­ brotum vegna beinþynningar. Prótein, fleiri vítamín og steinefni eru þó nauðsynleg til að viðhalda sterkum beinum en þetta er t.d. magnesíum, K­vítamín og sink. Osteo Advance frá Natures Aid inniheldur allt það nauðsynleg­ asta til að viðhalda heilbrigðum beinum og tönnum en þar er magnesíum og kalk í réttum hlut­ föllum ásamt D­ og K2­vítamíni og sinki. Magnesíum fyrir beinfrumurnar „Eins mikilvægt og það er að við fáum nægilegt magn af kalki og D­vítamíni er magnesíum ekki síður mikilvægt. Um 60% af magnesíumbirgðum líkamans eru í beinunum. Eitt af hlutverkum þess er að halda kalki uppleystu í blóðinu sem er nauðsynlegt til að kalk safnist ekki fyrir á stöðum eins og í nýrum, æðum eða liðamótum. Magnesíum er nauðsynlegt fyrir starfsemi allra frumna og þ.m.t. beinfrumna og beinátfrumna og er undirstöðuefni fyrir ATP sem er nokkurs konar orkustöð hverrar frumu. Bara þessi staðreynd segir okkur að það dregur mjög úr áhrifum kalks á styrk beina og hindrun beinþynningar ef ekki er nægilegt magn af magnesíum í líkamanum,“ segir Hrönn. Sterk bein fyrir góða daga Beinþynning er sjúkdómur sem ber að taka alvarlega en beinbrot verða þá við lítið álag og vegna áverka sem nægja að öllu jöfnu ekki til að brjóta heilbrigð bein. Huga þarf að beinvernd alla ævi. Nægileg prótein, kalk- og D-vítamínneysla ásamt reglulegum líkamsæfingum er nauðsynleg til að fyrirbyggja beinþynningu. Beinvernd er mikilvæg alla ævi hvort sem einstaklingur hefur beinþynningu eða ekki. Góð bætiefni ásamt reglulegum líkamsæf- ingum eru nauðsynleg til að fyrirbyggja beinþynn- ingu. Hrönn Hjálmarsdóttir, næringar- og heilsumarkþjálfi Fullkomin blanda fyrir beinin Upp úr 30 ára aldri fer að draga úr bein- þéttninni og þá getur skipt máli hversu góð upp- byggingin hefur verið. 40 ára 60 ára 70 ára Ólík stig að beinþynningu Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. Krill Oil - öflugustu Omega 3 fitusýrurnar Kristófer Fannar Stefánsson „Eftir að ég fór að taka Krill olíuna finn ég mjög mikinn mun á mér og þá sérstaklega húðinni“ Krill olía er omega 3 í sinni hreinustu og öflugustu mynd, sótt í Suðurskautshafið sem er hreinasta hafsvæði veraldar. Líkaminn á mjög auðvelt með að nýta sér fitukeðjurnar í krillinu og ekkert eftirbragð er eftir inntöku. Krill_Oil_5x10_20170825 copy.pdf 1 28/08/2017 09:58 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . A p R í L 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 1 4 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :4 1 F B 1 2 8 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 7 5 -E C F 4 1 F 7 5 -E B B 8 1 F 7 5 -E A 7 C 1 F 7 5 -E 9 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 2 8 s _ 1 3 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.