Fréttablaðið - 14.04.2018, Blaðsíða 60
JARÐVINNUVERKSTJÓRI
ÍAV hf. | Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | s. 530 4200 | www.iav.is
Verkefni ÍAV eru á öllum sviðum
byggingariðnaðar hvort sem um er að
ræða íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði,
opinberar byggingar eða aðra mann-
virkjagerð sem og jarðgangagerð og
jarðvinnuframkvæmdir bæði hérlendis
og erlendis.
Við leggjum mikla áherslu á að ráða
til okkar kraftmikla og framsækna
einstaklinga, með góða hæfni í
mannlegum samskiptum.
Við bjóðum upp á góða starfsaðstöðu
og erum stolt af starfsandanum og
þeim metnaði sem hjá okkur ríkir.
ÍAV er eina verktakafyrirtækið á
Íslandi sem hefur bæði ISO 9001
gæðavottun og OSHAS 18001
öryggisvottun.
Nánari upplýsingar veitir Árni Valur Garðarsson í síma
660 8158. Umsóknir óskast lagðar inn í gegnum heima-
síðu ÍAV, www.iav.is
Jarðvinnuverkstjóri sinnir eftirfarandi þáttum:
- Stjórnar framkvæmdum á verkstað og sér um skipulagningu
vinnusvæðis, aðstöðusköpun o.fl.
- Hann ber ábyrgð á að framkvæmd sé í samræmi við
uppdrætti, lög og reglugerðir ásamt því að hafa ábyrgð á
öryggis-, heilbrigðis- og umhverfisáætlun.
- Áætlanagerð og samskipti við undirverktaka.
- Skráning tækja og útfylla dagskýrslur o.fl.
- Ásamt fleiri atriðum sem snúa að rekstri vinnustaða.
Hæfnikröfur og reynsla:
- Reynsla af stjórnun jarðvinnuframkvæmda
- Þekking á vélum og tækjum í mannvirkjagerð
- Hæfni í mannlegum samskiptum og reynsla af mannaforráði
- Menntun sem nýtist í starfi
- Frumkvæði og sjálfstæði
- Þekking á tölvuforritunum Word og Excel
ÍAV leitar að stundvísum og metnaðarfullum starfsmanni. Við
höfum uppá að bjóða fyrsta flokks vinnuaðstöðu, hvetjandi
vinnuumhverfi og góðan hóp starfsmanna með mikla reynslu.
Vegna aukinna umsvifa og góðrar verkefnastöðu óskar ÍAV
eftir að ráða jarðvinnuverkstjóra til starfa. Um er að ræða
framtíðarstaf.
OHSAS
18001
Occupational
Health and Safety
Management
OHS 606809
ISO
9001
Quality
Management
FM 512106Við breytum vilja í verk
rektor
við landbúnaðarháskóla
Íslands
Landbúnaðarháskóli Íslands er leiðandi afl í rannsóknum,
kennslu og nýsköpun á sviði auðlinda- og umhverfisfræða,
heildstæðrar landnýtingar, landslagshönnunar og skipulags.
Skólinn leggur áherslu á fjölbreyttar rannsóknir og nám sem
mæta þörfum atvinnulífs, í samvinnu við fyrirtæki, stofnanir og
félagasamtök.
Landbúnaðarháskólinn starfar í tveimur deildum: Starfsmenntadeild á framhaldsskólastigi
í búfræði og garðyrkju og háskóladeild auðlinda og umhverfis sem býður upp á BS, MS og
PhD nám í búvísindum, náttúru- og umhverfisfræði, skógfræði og landgræðslu, BS nám í
umhverfisskipulagi og MS nám í skipulagsfræði. Skráður nemendafjöldi er um 300 árið 2018
og starfsmenn eru um 85.
Starfsstöðvar skólans eru þrjár, að Hvanneyri í Borgarfirði, Reykjum í Ölfusi og Keldnaholti í
Reykjavík. Höfuðstöðvar skólans eru á Hvanneyri.
Nánari upplýsingar um skólann er að finna á www.lbhi.is.
Mikilvæg verkefni eru framundan hjá skólanum, meðal annars að endurskoða hlutverk og
stefnu skólans, styrkja umgjörð um nám og nemendur, auka tengsl við atvinnulífið og efla
gæðamál og rannsóknir.
Rektor er æðsti stjórnandi Landbúnaðarháskólans, annast rekstur og stjórnun
í umboði háskólaráðs og ber ábyrgð gagnvart því.
Menntunar- og hæfniSkröfur:
Akademískt hæfi sem og þekking á. og
reynsla af rannsóknum og starfi háskóla
Víðtæk stjórnunarhæfni og -reynsla
Ríkir leiðtoga- og samskiptahæfileikar
Reynsla af fjármálum og stefnumótun
uMSókn SkaL fyLgja:
Ítarleg greinargerð um náms- og starfsferil.
Staðfest eintök af öllum viðeigandi
prófskírteinum.
Upplýsingar um þrjá meðmælendur.
umsóknarfrestur er til 13. maí nk. Umsóknir berist Landbúnaðarháskóla Íslands merktar:
Umsókn um stöðu rektors við Landbúnaðarháskóla Íslands. Ekki er notað staðlað umsóknar-
eyðublað. Umsóknir og fylgigögn skal einnig senda á rafrænu formi eftir því sem unnt er á
netfangið arnag@lbhi.is.
Hæfni umsækjenda um embætti rektors verður skoðuð í ljósi heildarmats, m.a. með tilliti til
rekstrar- og stjórnunarreynslu, vísindastarfa og hvernig menntun og reynsla viðkomandi muni
nýtast í starfi rektors.
Gert er ráð fyrir að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í embætti rektors til fimm ára frá
og með 1. október 2018 samkvæmt tilnefningu háskólaráðs. Háskólaráð tilnefnir þrjá menn
í valnefnd til að meta hæfni umsækjenda skv. 1. mgr. 18. gr. laga um háskóla, nr. 63/2006.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Arna Garðarsdóttir, mannauðsstjóri,
í síma 843-5310 og á netfanginu arnag@lbhi.is
Landbúnaðarháskóli Íslands stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur konur jafnt sem karla til
að sækja um laus störf.
Rekstraraðili óskast
Skeljungur hf. auglýsir eftir aðila til að taka við rekstri verslunar
fyrirtækisins við bensínstöð Orkunnar á Fáskrúðsfirði.
Um er að ræða sjálfstæðan rekstur og umsjón með bensínstöð.
Hér er á ferðinni spennandi tækifæri fyrir traustan aðila með
áhuga á fjölbreyttu starfi í beinum samskiptum við viðskiptavini.
Reynsla af rekstri æskileg.
Nánari upplýsingar veitir
Logi L. Hilmarsson í síma 444 3000 eða
á netfangið llh@skeljungur.is
Meiriháttar góð
sumarvinna!
Rauði krossinn á Íslandi leitar að
góðu fólki á aldrinum 20–30 ára til
að starfa með félaginu í sumar. Um
er að ræða vinnu hálfan daginn sem
felur í sér söfnun MANNVINA – sem
eru styrktarfélagar Rauða krossins.
Viðkomandi þarf að hafa áhuga á
mannúðarmálum, hafa góða fram-
komu, vera jákvæð(ur) og geta unnið
sjálfstætt. Þekking og reynsla af
störfum Rauða krossins er kostur.
Vinsamlega sendið umsókn
með ferilskrá og meðmælum á
johannagud@redcross.is fyrir
24. apríl. Fyrirspurnir sendist
á sama netfang.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Húsavík
auglýsir þrjár stöður yfirhjúkrunar-
fræðinga lausar til umsóknar.
Leitað er eftir metnaðarfullum
og áhugasömum stjórnendum.
HSN Húsavík - Yfirhjúkrunarfræðingur á sjúkradeild
HSN Húsavík - Yfirhjúkrunarfræðingur í Hvammi heimili
aldraðra á Húsavík
HSN Húsavík - yfirhjúkrunarfræðingur á hjúkrunardeild
Störfin veitast frá 1. ágúst 2018 eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar er að finna á www.starfatorg.is og
heimasíðu HSN www.hsn.is/laus störf
Umsóknarfrestur er til 23. apríl 2018.
Nánari upplýsingar:
Áslaug Halldórsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur svæðis í síma
464 0514/860 7736, netfang aslaug.halldorsdottir@hsn.is
Guðný Friðriksdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar í síma
860 7750, netfang gudnyf@hsn.is
1
4
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
7
5
-D
E
2
4
1
F
7
5
-D
C
E
8
1
F
7
5
-D
B
A
C
1
F
7
5
-D
A
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
8
s
_
1
3
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K