Fréttablaðið - 14.04.2018, Page 60

Fréttablaðið - 14.04.2018, Page 60
JARÐVINNUVERKSTJÓRI ÍAV hf. | Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | s. 530 4200 | www.iav.is Verkefni ÍAV eru á öllum sviðum byggingariðnaðar hvort sem um er að ræða íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði, opinberar byggingar eða aðra mann- virkjagerð sem og jarðgangagerð og jarðvinnuframkvæmdir bæði hérlendis og erlendis. Við leggjum mikla áherslu á að ráða til okkar kraftmikla og framsækna einstaklinga, með góða hæfni í mannlegum samskiptum. Við bjóðum upp á góða starfsaðstöðu og erum stolt af starfsandanum og þeim metnaði sem hjá okkur ríkir. ÍAV er eina verktakafyrirtækið á Íslandi sem hefur bæði ISO 9001 gæðavottun og OSHAS 18001 öryggisvottun. Nánari upplýsingar veitir Árni Valur Garðarsson í síma 660 8158. Umsóknir óskast lagðar inn í gegnum heima- síðu ÍAV, www.iav.is Jarðvinnuverkstjóri sinnir eftirfarandi þáttum: - Stjórnar framkvæmdum á verkstað og sér um skipulagningu vinnusvæðis, aðstöðusköpun o.fl. - Hann ber ábyrgð á að framkvæmd sé í samræmi við uppdrætti, lög og reglugerðir ásamt því að hafa ábyrgð á öryggis-, heilbrigðis- og umhverfisáætlun. - Áætlanagerð og samskipti við undirverktaka. - Skráning tækja og útfylla dagskýrslur o.fl. - Ásamt fleiri atriðum sem snúa að rekstri vinnustaða. Hæfnikröfur og reynsla: - Reynsla af stjórnun jarðvinnuframkvæmda - Þekking á vélum og tækjum í mannvirkjagerð - Hæfni í mannlegum samskiptum og reynsla af mannaforráði - Menntun sem nýtist í starfi - Frumkvæði og sjálfstæði - Þekking á tölvuforritunum Word og Excel ÍAV leitar að stundvísum og metnaðarfullum starfsmanni. Við höfum uppá að bjóða fyrsta flokks vinnuaðstöðu, hvetjandi vinnuumhverfi og góðan hóp starfsmanna með mikla reynslu. Vegna aukinna umsvifa og góðrar verkefnastöðu óskar ÍAV eftir að ráða jarðvinnuverkstjóra til starfa. Um er að ræða framtíðarstaf. OHSAS 18001 Occupational Health and Safety Management OHS 606809 ISO 9001 Quality Management FM 512106Við breytum vilja í verk rektor við landbúnaðarháskóla Íslands Landbúnaðarháskóli Íslands er leiðandi afl í rannsóknum, kennslu og nýsköpun á sviði auðlinda- og umhverfisfræða, heildstæðrar landnýtingar, landslagshönnunar og skipulags. Skólinn leggur áherslu á fjölbreyttar rannsóknir og nám sem mæta þörfum atvinnulífs, í samvinnu við fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök. Landbúnaðarháskólinn starfar í tveimur deildum: Starfsmenntadeild á framhaldsskólastigi í búfræði og garðyrkju og háskóladeild auðlinda og umhverfis sem býður upp á BS, MS og PhD nám í búvísindum, náttúru- og umhverfisfræði, skógfræði og landgræðslu, BS nám í umhverfisskipulagi og MS nám í skipulagsfræði. Skráður nemendafjöldi er um 300 árið 2018 og starfsmenn eru um 85. Starfsstöðvar skólans eru þrjár, að Hvanneyri í Borgarfirði, Reykjum í Ölfusi og Keldnaholti í Reykjavík. Höfuðstöðvar skólans eru á Hvanneyri. Nánari upplýsingar um skólann er að finna á www.lbhi.is. Mikilvæg verkefni eru framundan hjá skólanum, meðal annars að endurskoða hlutverk og stefnu skólans, styrkja umgjörð um nám og nemendur, auka tengsl við atvinnulífið og efla gæðamál og rannsóknir. Rektor er æðsti stjórnandi Landbúnaðarháskólans, annast rekstur og stjórnun í umboði háskólaráðs og ber ábyrgð gagnvart því. Menntunar- og hæfniSkröfur: Akademískt hæfi sem og þekking á. og reynsla af rannsóknum og starfi háskóla Víðtæk stjórnunarhæfni og -reynsla Ríkir leiðtoga- og samskiptahæfileikar Reynsla af fjármálum og stefnumótun uMSókn SkaL fyLgja: Ítarleg greinargerð um náms- og starfsferil. Staðfest eintök af öllum viðeigandi prófskírteinum. Upplýsingar um þrjá meðmælendur. umsóknarfrestur er til 13. maí nk. Umsóknir berist Landbúnaðarháskóla Íslands merktar: Umsókn um stöðu rektors við Landbúnaðarháskóla Íslands. Ekki er notað staðlað umsóknar- eyðublað. Umsóknir og fylgigögn skal einnig senda á rafrænu formi eftir því sem unnt er á netfangið arnag@lbhi.is. Hæfni umsækjenda um embætti rektors verður skoðuð í ljósi heildarmats, m.a. með tilliti til rekstrar- og stjórnunarreynslu, vísindastarfa og hvernig menntun og reynsla viðkomandi muni nýtast í starfi rektors. Gert er ráð fyrir að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í embætti rektors til fimm ára frá og með 1. október 2018 samkvæmt tilnefningu háskólaráðs. Háskólaráð tilnefnir þrjá menn í valnefnd til að meta hæfni umsækjenda skv. 1. mgr. 18. gr. laga um háskóla, nr. 63/2006. Nánari upplýsingar um starfið veitir Arna Garðarsdóttir, mannauðsstjóri, í síma 843-5310 og á netfanginu arnag@lbhi.is Landbúnaðarháskóli Íslands stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um laus störf. Rekstraraðili óskast Skeljungur hf. auglýsir eftir aðila til að taka við rekstri verslunar fyrirtækisins við bensínstöð Orkunnar á Fáskrúðsfirði. Um er að ræða sjálfstæðan rekstur og umsjón með bensínstöð. Hér er á ferðinni spennandi tækifæri fyrir traustan aðila með áhuga á fjölbreyttu starfi í beinum samskiptum við viðskiptavini. Reynsla af rekstri æskileg. Nánari upplýsingar veitir Logi L. Hilmarsson í síma 444 3000 eða á netfangið llh@skeljungur.is Meiriháttar góð sumarvinna! Rauði krossinn á Íslandi leitar að góðu fólki á aldrinum 20–30 ára til að starfa með félaginu í sumar. Um er að ræða vinnu hálfan daginn sem felur í sér söfnun MANNVINA – sem eru styrktarfélagar Rauða krossins. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á mannúðarmálum, hafa góða fram- komu, vera jákvæð(ur) og geta unnið sjálfstætt. Þekking og reynsla af störfum Rauða krossins er kostur. Vinsamlega sendið umsókn með ferilskrá og meðmælum á johannagud@redcross.is fyrir 24. apríl. Fyrirspurnir sendist á sama netfang. Heilbrigðisstofnun Norðurlands Húsavík auglýsir þrjár stöður yfirhjúkrunar- fræðinga lausar til umsóknar. Leitað er eftir metnaðarfullum og áhugasömum stjórnendum. HSN Húsavík - Yfirhjúkrunarfræðingur á sjúkradeild HSN Húsavík - Yfirhjúkrunarfræðingur í Hvammi heimili aldraðra á Húsavík HSN Húsavík - yfirhjúkrunarfræðingur á hjúkrunardeild Störfin veitast frá 1. ágúst 2018 eða eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar er að finna á www.starfatorg.is og heimasíðu HSN www.hsn.is/laus störf Umsóknarfrestur er til 23. apríl 2018. Nánari upplýsingar: Áslaug Halldórsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur svæðis í síma 464 0514/860 7736, netfang aslaug.halldorsdottir@hsn.is Guðný Friðriksdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar í síma 860 7750, netfang gudnyf@hsn.is 1 4 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :4 1 F B 1 2 8 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 7 5 -D E 2 4 1 F 7 5 -D C E 8 1 F 7 5 -D B A C 1 F 7 5 -D A 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 2 8 s _ 1 3 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.