Fréttablaðið - 14.04.2018, Blaðsíða 122

Fréttablaðið - 14.04.2018, Blaðsíða 122
Lokun framlengd í Reykjadal Umhverfisstofnun hefur framlengt lokun í Reykjadal í 4 vikur að höfðu samráði við sveitafélagið, landeiganda, hagsmunaaðila og með staðfestingu ráðherra samkvæmt 25. gr. a. laga um náttúruvernd. Svæðið verður opnað um leið og aðstæður leyfa eða eigi síðar en 12. maí næstkomandi. Umhverfisstofnun auglýsti lokun svæðis í Reykjadal í Ölfusi 31. mars síðast­ liðinn í tvær vikur. Umrætt svæði er nr. 752 á náttúruminjaskrá. Fram­ kvæmdir hófust fljótlega á um 600 metra kafla þar sem ástand svæðisins var hvað verst. Með tilliti til aðstæðna er talið óæskilegt út frá náttúruvernd að hleypa umferð um svæðið vegna bleytu að svo stöddu. Náttúruvín er nýjasta trendið í Reykjavík, að minnsta kosti eru allir helstu hip-sterarnir að þamba þessa tegund víns að því er virðist í hvert einasta mál og tala svo um það á internetinu. Nokkrir veitingastaðir eru farnir að bjóða upp á úrval náttúruvína og heyrst hefur sagt að munurinn á náttúruvíni og hefðbundnu víni sé eins og á appelsínusafa blönduðum úr þykkni og þeim sem er nýkreistur úr ferskum, vel þroskuðum appels- ínum. Tumi Ferrer, fræðslustjóri kaffi- húsa Te & Kaffi, er mikill sæl- keri sem kann að njóta matar og drykkjar og hefur miklar mætur á náttúruvínum. „Náttúruvín fyrir mér eru það sem ég myndi kalla þambvæn vín („chuggable“). Ég fór einu sinni í vín- smökkun hjá fyrrverandi vínþjóni á Noma sem lét okkur taka einn gúl- sopa af hefðbundnu víni og síðan annan af náttúruvíni. Síðan tókum við gúlsopa af verksmiðjufram- leiddum eplasafa og bárum saman við eplasafa með engu viðbættu og engu teknu úr. Náttúruvínið, alveg eins og náttúrulegi eplasafinn, rann ljúflega niður á meðan hitt næstum því stoppaði í hálsinum, eins og líkaminn væri að hafna því.“ Hvernig kynntistu þessum vínum? „Fyrsta náttúruvínið sem ég smakkaði, meðvitaður um hugtak- Náttúruvín – súrdeigsbrauð vínheimsins NáttúruvíN, hvað er það eigiNlega? „Hvað í ósköpunum er náttúru- vín?“ kunna margir að spyrja sig. Því höfum við fengið Axel Aage Schiöth, framreiðslumann á Grill- inu, Hótel Sögu, og sérfræðing í náttúruvínum til að svara þeirri spurningu: „Náttúruvín (fr. vin nature, e. natural wine) eru vín sem gerð eru úr lífrænt ræktuðum þrúgum og þar sem engu er við bætt og ekkert tekið úr í víngerðarferlinu. Grunnurinn er að vínræktunin sé lífræn, þ.e.a.s að enginn kemískur áburður eða eitur, svo sem skor- dýra-, jurta- eða sveppaeyðir, séu notaður við ræktun vínekrunnar. Margir náttúruvínsframleiðendur nota bíódýnamískar aðferðir (lífefldar aðferðir) þar sem litið er á ræktunarsvæðið sem heildrænt lífkerfi og notaðir eru hvatar til að viðhalda jafnvægi á vínekrunni. Þegar kemur að víngerðinni er náttúrulega gerinu sem þrífst á hýði þrúgnanna leyft að um- breyta safanum í vín, án þess að tilbúnu geri sé blandað við. Það má líkja því við súrdeigsbakstur í samanburði við gerbakstur. Margir framleiðendur átappa svo víninu án þess að sía það eða grugghreinsa og rotvarnarefnum, t.d. SO2 er ekki bætt í vínið. Nátt- úruvín eru sem sagt lífræn vín og engu er bætt við og ekkert tekið úr víninu í víngerðarferlinu.“ Hvar má finna þessi vín á Ís- landi? „Skál á Hlemmi, Port9, Coo- coo's Nest, Sandholt, Flatey og fleiri eru með vín í glasa- og flöskuvís. Líka margir af veitinga- stöðunum t.d. Grillið, Dill og Messinn.“ Einnig má sérpanta náttúruvín á vefsíðu ÁTVR en þar var nýlega settur upp sérstakur sérpönt- unarvefur. Vínbóndinn og Berja- mór eru þau fyrirtæki sem leggja sérstaka áherslu á innflutning náttúruvína. Náttúruvín virðist vera á vörum allra helstu sælkera lands- ins um þessar mund- ir og flestir veitinga- staðir í Reykjavík keppast um að bjóða upp á þessa tegund víns. En hvað er náttúruvín og hvers vegna þessi mikla hrifning? ið, var sumarið 2014 í Kaupmanna- höfn á veitingastað sem heitir Relæ. Síðan þá hefur Kaupmanna- höfn verið ein af uppáhaldsborg- unum mínum. Kaupmannahöfn er morandi í náttúruvíni og mikið af Tumi Ferrer, vínáhugamaður vínbúðum þar sem selja einungis þannig vín. Enda fer manifestó nýnorrænnar matargerðar, eins og Relæ vinnur eftir, mjög vel saman við hugmyndafræði náttúruvíns, að mínu mati. Ég hafði kynnst hugtakinu þegar ég vann á Dilli 2011-2013 en þá var ekkert til á Íslandi sem kallaðist náttúruvín, þannig að þegar gestir spurðu hvort við ættum þannig vín gátum við bara mælt með lífrænum eða bíódýnamískum vínum í stað- inn. Með tímanum fór ég að kynnast fólki sem gat sagt mér meira frá þessu fyrirbæri og það sköpuðust tækifæri til að smakka vínin í stórum hópi, jafnvel pöruð saman með góðum mat.“ Hver finnst þér vera munurinn á náttúruvíni og hefðbundnu víni? „Ef ég á að vera virkilega neikvæð- ur þá eru náttúruvín fyrir mér eins og alvöru súrdeigsbrauð á meðan hefðbundin vín eru sjaldan meira en „glorified“ heimilisbrauð. En það eru auðvitað til undantekningar. Sum af mínum uppáhaldsvínum sem ég hef smakkað yfir ævina hafa verið „hefðbundin“. Hvað telurðu ástæðu þess að nátt- úruvín eru svona vinsæl núna? „Ég veit hreinlega ekki af hverju náttúruvín er að ná svona miklum skriðþunga núna. Ég hræðist mest að stemningin fari saman með góð- ærinu sem er í gangi núna og það verði litið niður á náttúruvín þegar kemur kreppa. En ég held samt að náttúruvín eigi soldið móment núna vegna þess að það hafa verið manneskjur með ástríðu fyrir þessum vínum á Íslandi sem hafa verið duglegar við að gauka þeim að okkur í þeirri von að fleira og fleira fólk verði forvitið og sé tilbúið að stíga út fyrir þægindarammann og smakka eitthvað skrýtið. Skrýtið er skemmtilegra.“ stefanthor@frettabladid.is Stefán Þór Hjartarson stefanthor@frettabladid.is NáttúruvíN fyrir mér [eru] eiNs og alvöru súrdeigsbrauð á meðaN hefðbuNdiN víN eru sjaldaN meira eN „glori- fied“ heimilisbrauð. 1 4 . a p r í l 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r66 l í f i ð ∙ f r É T T a B l a ð i ð 1 4 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :4 1 F B 1 2 8 s _ P 1 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 7 5 -9 9 0 4 1 F 7 5 -9 7 C 8 1 F 7 5 -9 6 8 C 1 F 7 5 -9 5 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 2 8 s _ 1 3 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.