Fréttablaðið - 14.04.2018, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 14.04.2018, Blaðsíða 28
AÐALFUNDUR Spoex, Samtök psoriasis- og exemsjúklinga, boða til aðalfundar næstkomandi þriðjudag 17.apríl kl. 17:00. Fundurinn verður haldinn á Hótel Reykjavík Natura, Víkingasal 6, Nauthólsvegi 101 Reykjavík. Hefðbundin dagskrá aðalfundar skv. lögum Spoex: Skýrsla formanns Stjórnar- og formannskjör Samtal við stjórn kom með páskaegg handa okkur að narta í. Það hafði verið svo- lítið erfið stemning á æfingum. Sem skrifaðist á mig, ég var svo stressuð. Fannst ég ekki geta meðtekið þetta allt saman. Við opnuðum páskaeggið og lásum málsháttinn: Gott er að eiga góðan að. Við ákváðum á þeirri stundu að við skyldum hafa þetta að okkar mottói. Við erum hérna hver fyrir aðra. Það verður alltaf einhver sem leiðir ef eitthvað kemur upp á. Melkorka. Ég var svolítið yfirlýs- ingaglöð. Ég mætti bara með páska- eggið og sagði: Þessi málsháttur segir allt. Björg: Þetta er svo sérstakt sam- band sem er á milli okkar. Þetta er náið og langt samstarf. Þuríður: Mér finnst Björk hafa verið ótrúlega nösk. Að búa til þennan hóp. Áshildur: Hún gæti verið frábær mannauðsstjóri. Ef hún væri ekki fræg stjarna! Fram undan er nokkurra mánaða langt tónleikaferðalag um Evrópu. Þær hafa allar hliðrað til fyrir ævin- týrið. Steinunn Vala: Við vitum að við erum á ferðinni í maí, júní og júlí. Og svo eru tónleikar að bætast við. Við vitum að minnsta kosti að við verðum á tónleikum í átta borgum. Áshildur: Sinfóníuhljómsveitin var svo dýrleg að veita mér leyfi til að taka þátt. Nokkrar hér eru oft að spila með sveitinni en þeir höfðu það ekki í sér að neita þeim um frí. Það var liðkað fyrir til að við gætum allar farið í þetta verkefni. Ég er svo þakklát. Því þetta er svo óvenjuleg reynsla. Eins og að stíga inn í annan heim, framleiðslan er á öðrum skala og öðruvísi en allt sem ég veit að við hér í þessum hópi erum annars að gera. Berglind María: Mér finnst algjör- lega frábært að verða vitni að sköp- unarkrafti samstarfsfólks Bjarkar. Eins og Hungry sem sér um förðun- ina og James Merry sem sér um bún- inga. Þetta er svo fallega samstilltur hópur. Þuríður: Hún heldur verndar- hendi yfir þessu öllu og er magnaður stjórnandi. Björg: Sérstaklega vegna þess að hún stjórnar með því að gefa fólki pláss. Þuríður: Þetta er svo óvenjuleg reynsla, þetta er svo mikið ævintýri fyrir okkur. Eins og Áshildur sagði, þá er þetta eins að stíga inn í annan heim. Framkvæmdin er á öðrum skala og öðruvísi en við þekkjum. Gat ekki burstað tennurnar Allar hafa þær lagt stund á tónlistar- nám árum saman og lagt afar hart að sér. Sumar svo hart að sér að þær glímdu við álagsmeiðsli sem voru nánast óyfirstíganleg. Emilía: Ég fór í forskóla fjögurra ára gömul á Akureyri. Þar var haldin hljóðfærakynning og þar spilaði einhver á flautu. Það var mikill áhrifavaldur í lífi mínu. Þó að ég viti ekki enn hver það var sem hafði svona mikil áhrif á mig. Ég fór heim með blokk- flautuna og sagðist ætla að verða flautuleikari. Ég hef aldrei vikið frá þeirri hugmynd og stóð við það. Ég spilaði eftir það út á hlið með blokkflautuna. Þetta var aldrei spurning! Ég flutti svo til Reykjavík- ur og hélt áfram námi hér. Ég barðist með kjafti og klóm fyrir því að verða flautuleikari. Ég gekk í gegnum mikil veikindi og álagsmeiðsli þegar ég var í menntaskóla. Allir læknar og sjúkraþjálfarar sem skoð- uðu mig sögðu mér að ég myndi aldrei spila aftur. Ég gat ekki tannburstað mig eða borðað mat í nokkra mánuði vegna sársauka. Ég ofgerði mér svo mikið í æfingum. Ég gat svo ekki spilað almenni- lega í tvö ár. Foreldrar mínir fóru með mig til Bandaríkj- anna og borguðu örugglega margar milljónir fyrir að hafa mig þar í alls konar meðferð- um. Það er persónulegur sigur fyrir mig að ég hafi getað orðið flautuleikari. Byrjaði tólf ára Berglind María: Ég var orðin tólf ára þegar ég byrjaði að læra á flautu. Ég held að það hafi verið vegna áhrifa af tónlist Manuelu Wiesler. Við hérna í eldri deildinni tengjum líklega við það því hún var mögnuð tónlistarkona. Eldri bróðir minn átti plötu með henni. Hún gaf út æðislegar plötur. Ég átti sjálf þá ákvörðun að æfa á flautu. Ég var ekki sett í tónlistar- nám. En svo hætti ég og byrjaði aftur, áhrifamiklir og góðir kenn- arar og fyrirmyndir héldu mér við efnið. Til dæmis Bernharð Wilkinson. Í dag er ég fyrst og fremst í tilraunakenndri tónlist, lifi og hrærist í þeirri senu og er að semja sjálf. Ég fæ mikið út úr því að vera í þessum hóp. Þó að við séum að gera alls kyns, þá erum við líka að spila hefðbundnar útsetningar, Mér finnst svo- lítið skemmtilegt að koma inn í það. Heillaðist af dreng í hvítum jakkafötum Björg: Ég var fjögurra ára gömul og sá strák í stundinni okkar sem spil- aði á flautu í hvítum jakkafötum. Ég lýsi hér með eftir honum því ég varð algjörlega heilluð. Emilía: Gæti þetta verið Ari Eld- járn? Hann var að æfa með mér? Björg: Ég veit það ekki. Ég vona að hann gefi sig fram. Því ég man eftir þessu augnabliki þó að ég hafi bara verið fjögurra ára. En ég mátti ekki fá þverflautu strax og var á blokk- flautu í tvö ár sem mér fannst ekkert sérlega skemmtilegt. Svo fékk ég að byrja á þverflautu sjö ára. Eins og margir flautuleikarar gekk ég líka í gegnum tíma þar sem ég glímdi við álagsmeiðsli. Þegar ég byrjaði í háskólanámi þurfti ég að læra líkamsbeitingu. Ég fór á námskeið í líkamsbeitingu sem gjörbreytti minni líðan. Ég ákvað að læra það og tók kenn- aranám í því líka. Ég er núna að leið- beina fólki. Þetta skiptir máli. Glímir enn við feimni Steinunn Vala: Ég byrjaði sjö ára gömul. Ég held að ég hafi valið flautu því að mér fannst allar konur sem spila á flautu svo ógeðslega sætar. Mér fannst þær svo þokka- fullar og flottar, svo þetta var mjög hégómleg ákvörðun. Ég var brjál- æðislega feimin, ég veit ekki hvort þið hinar munið eftir því, en ég átti mjög erfitt með að tala við kennara mína. Ég var lítil og mikil mús. Átti alltaf mjög erfitt með að spila á tón- leikum vegna feimninnar. Frammi- staðan var alltaf góð en það þurfti alltaf að peppa mig upp í marga daga áður til að hleypa í mig kjarki. Feimnin fer aldrei en mér finnst þægilegra að spila núna. Ég stressast ekki upp úr öllu valdi. Grét af leiðindum í píanónámi Þuríður: Ég byrjaði í forskóla sex ára og byrjaði að læra á píanó. Mér fannst það bæði erfitt og leiðinlegt. Ég grét yfir því og hætti í því námi. Systkini mín voru að læra á píanó. Systir mín var að æfa með Þórunni Guðmundsdóttur á píanó og flautu. Mér fannst það agalega smart. Þá var ég ellefu ára og bað um að fá að læra á flautu. Þá fór ég til Benna (Bern- harðs Wilkinson), hins margum- talaða flautupabba, sem hefur kennt mörgum hér. Mér fannst rosalega skemmtilegt að læra hjá honum, hann var léttur og kátur og sagði brandara og svona. Berglind María: Þú ert rokk- stjörnutónskáld. Þú hefur fyrst og fremst verið að semja. Þuríður: Fyrst þegar bréfið kom frá Björk þá hugsaði ég með mér, æi þetta er liðin tíð. Ég get ekki verið með. En sem betur fer er ég alltof forvitin til að geta hafnað svona tilboði. Og það hefur verið algjört ævintýri að fá að vera með, sjá hvernig hlutirnir funkera. Ég sé alls ekki eftir því. Æfði á blokkflautu með Björk Áshildur: Ég fór hefðbundna leið. Það er mikil hefð fyrir tónlistar- námi í minni fjölskyldu. Ég lærði reyndar á blokkflautu með Björk þegar ég var lítil. Við vorum með frábæran kennara sem kom alla leið frá Þýskalandi. Hann lét okkur strax spila saman á mismunandi blokk- flautur og það var mikill metnaður í starfi hans. Við lærðum yfir sumar- tímann og þetta var svo frábærlega skemmtilegt og hvetjandi. Þegar það kom að því að velja annað hljóð- færi þá vildi ég bara vera áfram með flautu. Var bara með æði fyrir þessu. Þetta er mikil vinna, þetta er ekki auðvelt og ekki alltaf blússandi rómantík. Og það getur verið hund- leiðinlegt sem maður þarf að gera til að æfa sig og komast á þann stað þar sem maður vill vera. En svo uppsker maður og getur spilað allt sem hægt er að hugsa sér. Og það er dásamlegt. Að fá að vera með í þessu verkefni er tækifæri sem kemur bara til manns einu sinni á ævinni. Þetta er líka tækifæri til að breyta til, stíga inn í annan heim, áður en maður snýr aftur í hversdagsleikann. Ég held að ég hafi gott af þessu. Eins og að missa vin Melkorka: Það kom fljótt í ljós að ég var tónelsk. Ég var svolítið skrýtið barn. Mitt uppáhaldssjón- varpsefni voru óperurnar Carmen og Töfraflautan. Ég horfði aftur og aftur á spólurnar. Þetta var þegar ég var þriggja til sex ára gömul. Ég man svo eftir tónleikum með Manu- elu Wiesler sem ég fór á. Hún ætti sko að vera í þessum hópi okkar! En hún kom þarna svífandi inn á sviðið í glitrandi litríkum skóm. Ég var alveg heilluð og fannst hún vera töfrakona. En í mínu námi og ferli hef ég samt alltaf átt í togstreitu við þetta hljóðfæri. Ég hef alltaf átt erfitt með þessa væmnu tengingu, það er bara minn karakter. Ég hef líka verið tví- stígandi gagnvart því að vera flautu- leikari. Oft hætt og farið að gera eitt- hvað annað. Á tímabili var ég komin í læknisfræði í Kaupmannahöfn. En svo togar tónlistin alltaf í mig. Ég ætlaði að hætta með rosa drama fyrir nokkrum árum og fékk vinnu í Hörpu. En svo kemst ég bara ekki upp með það því þetta er orðinn svo stór hluti af mér. Þegar ég byrjaði að vinna í Hörpu þá fór ég bara í gegnum sorgarferli, það var eins og ég hefði misst vin. Það er kannski ekkert skrýtið. Ég æfði í fjóra til fimm tíma á dag og komst langt. Var í toppformi. En gafst upp á strögglinu því það er meira en að segja það að hafa flautuleikinn að atvinnu. Ég ætlaði mér að segja skilið við þennan vin. En það er ekki hægt. Sem betur fer koma alltaf einhverjir englar og toga í mig, biðja mig um að spila. Eins og Björk. Guðni forseti kom á tónleikana og spurði hvort þetta verkefni hefði verið óvænt fyrir mig. Ég svaraði: Já, hver hefði trúað því að ég yrði poppstjarna á fertugsaldri? Hann hló og sagði: Já, ég kannast við þessa tilfinningu, mér líður oft eins og ég hafi óvænt gengið inn í uppáhalds- bíómyndina mína! Eins og versta dóp Þuríður: Ég var líka komin á þetta þegar ég var að koma aftur heim til Íslands. Að lífið væri orðið alltof flókið. Ég var komin með þrjú börn og að semja. Ég nennti ekki að starta öllu upp á nýtt, stofna band og búa mér til starfsvettvang. En það er ekki hægt að skilja við þennan vin. Þá kemur þessi sorg yfir mann. Og það er skiljanlegt, ég hef eytt hálfri ævinni í að spila. Það er það skemmtilegasta sem ég geri. Það er geðveiki að hætta því. Emilía: Að spila á flautu er eins og ástarsamband. Eða eitthvað verra. Amma sagði við mig einu sinni: Þetta er eins og versta dóp, klassíska tónlistin. Og það er að vissu leyti rétt. Hún lætur mig aldrei í friði. Áshildur: Þegar maður er að spila, túlka tilfinningar, fer hugurinn út um allt, þú upplifir tilfinningar svo sterkt, þetta er svo gefandi. Berglind María: Þetta er mjög dularfullt ferli. Og persónulegt. Melkorka: Tónlistin tekur við þar sem orðunum sleppir. Mér finnst svo fallegt það sem Sigurður Páls- son sagði um listina og hlutverk listamannsins sem með því að vera trúr samvisku sinni stækkar heim annarra. Ég tengi við það. Það þarf úthald og maður þarf að vera fylginn sér. Eiga þær ráð til ungra tónlistar- manna sem vilja ná langt á sínu sviði? Berglind María: Það er nauðsyn- legt að minna á þetta því það er of lítið um skapandi nálgun í þessu hefðbundna, klassíska tónlistar- námi. Það er þess vegna sem margir skapandi einstaklingar finna sér aðrar leiðir. Eins og Björk. Áshildur: Ungt fólk ætti ekki að vera með öll eggin í sömu körfunni. Sjá aðeins til. Þuríður: Vera rosalega forvitin og prófa alls kyns hluti. Gefa sér tæki- færi. Melkorka: Vera fylgin sér og sínum draumum. Það er pláss fyrir alla einhvers staðar og það er ekkert alltaf þar sem maður heldur sjálfur. ↣ GUÐNI FORSETI KOM Á TÓNLEIKANA OG SPURÐI HVORT ÞETTA VERKEFNI HEFÐI VERIÐ ÓVÆNT FYRIR MIG. ÉG SVARAÐI: JÁ, HVER HEFÐI TRÚAÐ ÞVÍ AÐ ÉG YRÐI POPP STJARNA Á FERTUGS- ALDRI? Melkorka Fram undan er nokkurra mánaða langt tónleikaferðalag um Evrópu. MYND/SANTIAGO FELIPE 1 4 . A P R Í L 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 4 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :4 1 F B 1 2 8 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 7 5 -8 F 2 4 1 F 7 5 -8 D E 8 1 F 7 5 -8 C A C 1 F 7 5 -8 B 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 2 8 s _ 1 3 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.