Fréttablaðið - 14.04.2018, Síða 28
AÐALFUNDUR
Spoex, Samtök psoriasis- og exemsjúklinga,
boða til aðalfundar næstkomandi þriðjudag
17.apríl kl. 17:00.
Fundurinn verður haldinn á
Hótel Reykjavík Natura, Víkingasal 6,
Nauthólsvegi 101 Reykjavík.
Hefðbundin dagskrá
aðalfundar skv. lögum Spoex:
Skýrsla formanns
Stjórnar- og formannskjör
Samtal við stjórn
kom með páskaegg handa okkur
að narta í. Það hafði verið svo-
lítið erfið stemning á æfingum. Sem
skrifaðist á mig, ég var svo stressuð.
Fannst ég ekki geta meðtekið þetta
allt saman.
Við opnuðum páskaeggið og
lásum málsháttinn: Gott er að eiga
góðan að. Við ákváðum á þeirri
stundu að við skyldum hafa þetta að
okkar mottói. Við erum hérna hver
fyrir aðra. Það verður alltaf einhver
sem leiðir ef eitthvað kemur upp á.
Melkorka. Ég var svolítið yfirlýs-
ingaglöð. Ég mætti bara með páska-
eggið og sagði: Þessi málsháttur
segir allt.
Björg: Þetta er svo sérstakt sam-
band sem er á milli okkar. Þetta er
náið og langt samstarf.
Þuríður: Mér finnst Björk hafa
verið ótrúlega nösk. Að búa til
þennan hóp.
Áshildur: Hún gæti verið frábær
mannauðsstjóri. Ef hún væri ekki
fræg stjarna!
Fram undan er nokkurra mánaða
langt tónleikaferðalag um Evrópu.
Þær hafa allar hliðrað til fyrir ævin-
týrið.
Steinunn Vala: Við vitum að við
erum á ferðinni í maí, júní og júlí.
Og svo eru tónleikar að bætast við.
Við vitum að minnsta kosti að við
verðum á tónleikum í átta borgum.
Áshildur: Sinfóníuhljómsveitin
var svo dýrleg að veita mér leyfi til
að taka þátt. Nokkrar hér eru oft að
spila með sveitinni en þeir höfðu
það ekki í sér að neita þeim um frí.
Það var liðkað fyrir til að við gætum
allar farið í þetta verkefni. Ég er svo
þakklát. Því þetta er svo óvenjuleg
reynsla. Eins og að stíga inn í annan
heim, framleiðslan er á öðrum skala
og öðruvísi en allt sem ég veit að við
hér í þessum hópi erum annars að
gera.
Berglind María: Mér finnst algjör-
lega frábært að verða vitni að sköp-
unarkrafti samstarfsfólks Bjarkar.
Eins og Hungry sem sér um förðun-
ina og James Merry sem sér um bún-
inga. Þetta er svo fallega samstilltur
hópur.
Þuríður: Hún heldur verndar-
hendi yfir þessu öllu og er magnaður
stjórnandi.
Björg: Sérstaklega vegna þess að
hún stjórnar með því að gefa fólki
pláss.
Þuríður: Þetta er svo óvenjuleg
reynsla, þetta er svo mikið ævintýri
fyrir okkur. Eins og Áshildur sagði,
þá er þetta eins að stíga inn í annan
heim. Framkvæmdin er á öðrum
skala og öðruvísi en við þekkjum.
Gat ekki burstað tennurnar
Allar hafa þær lagt stund á tónlistar-
nám árum saman og lagt afar hart
að sér. Sumar svo hart að sér að þær
glímdu við álagsmeiðsli sem voru
nánast óyfirstíganleg.
Emilía: Ég fór í forskóla fjögurra
ára gömul á Akureyri. Þar var haldin
hljóðfærakynning og þar spilaði
einhver á flautu. Það var mikill
áhrifavaldur í lífi mínu. Þó að ég
viti ekki enn hver það var sem hafði
svona mikil áhrif á mig.
Ég fór heim með blokk-
flautuna og sagðist ætla
að verða flautuleikari. Ég
hef aldrei vikið frá þeirri
hugmynd og stóð við það.
Ég spilaði eftir það út á
hlið með blokkflautuna.
Þetta var aldrei spurning!
Ég flutti svo til Reykjavík-
ur og hélt áfram námi hér.
Ég barðist með kjafti
og klóm fyrir því að verða
flautuleikari. Ég gekk í
gegnum mikil veikindi og
álagsmeiðsli þegar ég var í
menntaskóla. Allir læknar
og sjúkraþjálfarar sem skoð-
uðu mig sögðu mér að ég
myndi aldrei spila aftur. Ég
gat ekki tannburstað mig eða
borðað mat í nokkra mánuði
vegna sársauka. Ég ofgerði
mér svo mikið í æfingum. Ég
gat svo ekki spilað almenni-
lega í tvö ár. Foreldrar mínir
fóru með mig til Bandaríkj-
anna og borguðu örugglega
margar milljónir fyrir að hafa
mig þar í alls konar meðferð-
um. Það er persónulegur sigur
fyrir mig að ég hafi getað orðið
flautuleikari.
Byrjaði tólf ára
Berglind María: Ég var orðin tólf
ára þegar ég byrjaði að læra á
flautu. Ég held að það hafi verið
vegna áhrifa af tónlist Manuelu
Wiesler. Við hérna í eldri deildinni
tengjum líklega við það því hún var
mögnuð tónlistarkona.
Eldri bróðir minn átti plötu með
henni. Hún gaf út æðislegar plötur.
Ég átti sjálf þá ákvörðun að æfa
á flautu. Ég var ekki sett í tónlistar-
nám. En svo hætti ég og byrjaði
aftur, áhrifamiklir og góðir kenn-
arar og fyrirmyndir héldu mér
við efnið. Til dæmis Bernharð
Wilkinson. Í dag er ég fyrst
og fremst í tilraunakenndri
tónlist, lifi og hrærist í þeirri
senu og er að semja sjálf. Ég
fæ mikið út úr því að vera í
þessum hóp. Þó að við séum
að gera alls kyns, þá erum við
líka að spila hefðbundnar
útsetningar, Mér finnst svo-
lítið skemmtilegt að koma
inn í það.
Heillaðist af dreng í hvítum
jakkafötum
Björg: Ég var fjögurra ára gömul og
sá strák í stundinni okkar sem spil-
aði á flautu í hvítum jakkafötum. Ég
lýsi hér með eftir honum því ég varð
algjörlega heilluð.
Emilía: Gæti þetta verið Ari Eld-
járn? Hann var að æfa með mér?
Björg: Ég veit það ekki. Ég vona að
hann gefi sig fram. Því ég man eftir
þessu augnabliki þó að ég hafi bara
verið fjögurra ára. En ég mátti ekki
fá þverflautu strax og var á blokk-
flautu í tvö ár sem mér fannst ekkert
sérlega skemmtilegt. Svo fékk ég að
byrja á þverflautu sjö ára. Eins og
margir flautuleikarar gekk ég líka
í gegnum tíma þar sem ég glímdi
við álagsmeiðsli. Þegar ég byrjaði
í háskólanámi þurfti ég að læra
líkamsbeitingu. Ég fór á námskeið
í líkamsbeitingu sem gjörbreytti
minni líðan.
Ég ákvað að læra það og tók kenn-
aranám í því líka. Ég er núna að leið-
beina fólki. Þetta skiptir máli.
Glímir enn við feimni
Steinunn Vala: Ég byrjaði sjö ára
gömul. Ég held að ég hafi valið
flautu því að mér fannst allar konur
sem spila á flautu svo ógeðslega
sætar. Mér fannst þær svo þokka-
fullar og flottar, svo þetta var mjög
hégómleg ákvörðun. Ég var brjál-
æðislega feimin, ég veit ekki hvort
þið hinar munið eftir því, en ég átti
mjög erfitt með að tala við kennara
mína. Ég var lítil og mikil mús. Átti
alltaf mjög erfitt með að spila á tón-
leikum vegna feimninnar. Frammi-
staðan var alltaf góð en það þurfti
alltaf að peppa mig upp í marga
daga áður til að hleypa í mig kjarki.
Feimnin fer aldrei en mér finnst
þægilegra að spila núna. Ég stressast
ekki upp úr öllu valdi.
Grét af leiðindum í píanónámi
Þuríður: Ég byrjaði í forskóla sex
ára og byrjaði að læra á píanó. Mér
fannst það bæði erfitt og leiðinlegt.
Ég grét yfir því og hætti í því námi.
Systkini mín voru að læra á píanó.
Systir mín var að æfa með Þórunni
Guðmundsdóttur á píanó og flautu.
Mér fannst það agalega smart. Þá var
ég ellefu ára og bað um að fá að læra
á flautu. Þá fór ég til Benna (Bern-
harðs Wilkinson), hins margum-
talaða flautupabba, sem hefur kennt
mörgum hér. Mér fannst rosalega
skemmtilegt að læra hjá honum,
hann var léttur og kátur og sagði
brandara og svona.
Berglind María: Þú ert rokk-
stjörnutónskáld. Þú hefur fyrst og
fremst verið að semja.
Þuríður: Fyrst þegar bréfið kom
frá Björk þá hugsaði ég með mér, æi
þetta er liðin tíð. Ég get ekki verið
með. En sem betur fer er ég alltof
forvitin til að geta hafnað svona
tilboði. Og það hefur verið algjört
ævintýri að fá að vera með, sjá
hvernig hlutirnir funkera. Ég sé alls
ekki eftir því.
Æfði á blokkflautu með Björk
Áshildur: Ég fór hefðbundna leið.
Það er mikil hefð fyrir tónlistar-
námi í minni fjölskyldu. Ég lærði
reyndar á blokkflautu með Björk
þegar ég var lítil. Við vorum með
frábæran kennara sem kom alla leið
frá Þýskalandi. Hann lét okkur strax
spila saman á mismunandi blokk-
flautur og það var mikill metnaður
í starfi hans. Við lærðum yfir sumar-
tímann og þetta var svo frábærlega
skemmtilegt og hvetjandi. Þegar það
kom að því að velja annað hljóð-
færi þá vildi ég bara vera áfram með
flautu. Var bara með æði fyrir þessu.
Þetta er mikil vinna, þetta er ekki
auðvelt og ekki alltaf blússandi
rómantík. Og það getur verið hund-
leiðinlegt sem maður þarf að gera til
að æfa sig og komast á þann stað þar
sem maður vill vera. En svo uppsker
maður og getur spilað allt sem hægt
er að hugsa sér. Og það er dásamlegt.
Að fá að vera með í þessu verkefni er
tækifæri sem kemur bara til manns
einu sinni á ævinni. Þetta er líka
tækifæri til að breyta til, stíga inn
í annan heim, áður en maður snýr
aftur í hversdagsleikann. Ég held að
ég hafi gott af þessu.
Eins og að missa vin
Melkorka: Það kom fljótt í ljós
að ég var tónelsk. Ég var svolítið
skrýtið barn. Mitt uppáhaldssjón-
varpsefni voru óperurnar Carmen
og Töfraflautan. Ég horfði aftur og
aftur á spólurnar. Þetta var þegar
ég var þriggja til sex ára gömul. Ég
man svo eftir tónleikum með Manu-
elu Wiesler sem ég fór á. Hún ætti
sko að vera í þessum hópi okkar!
En hún kom þarna svífandi inn á
sviðið í glitrandi litríkum skóm. Ég
var alveg heilluð og fannst hún vera
töfrakona.
En í mínu námi og ferli hef ég
samt alltaf átt í togstreitu við þetta
hljóðfæri. Ég hef alltaf átt erfitt með
þessa væmnu tengingu, það er bara
minn karakter. Ég hef líka verið tví-
stígandi gagnvart því að vera flautu-
leikari. Oft hætt og farið að gera eitt-
hvað annað. Á tímabili var ég komin
í læknisfræði í Kaupmannahöfn. En
svo togar tónlistin alltaf í mig.
Ég ætlaði að hætta með rosa
drama fyrir nokkrum árum og fékk
vinnu í Hörpu. En svo kemst ég
bara ekki upp með það því þetta er
orðinn svo stór hluti af mér. Þegar
ég byrjaði að vinna í Hörpu þá fór
ég bara í gegnum sorgarferli, það var
eins og ég hefði misst vin.
Það er kannski ekkert skrýtið.
Ég æfði í fjóra til fimm tíma á dag
og komst langt. Var í toppformi.
En gafst upp á strögglinu því það
er meira en að segja það að hafa
flautuleikinn að atvinnu. Ég ætlaði
mér að segja skilið við þennan vin.
En það er ekki hægt. Sem betur fer
koma alltaf einhverjir englar og
toga í mig, biðja mig um að spila.
Eins og Björk.
Guðni forseti kom á tónleikana
og spurði hvort þetta verkefni hefði
verið óvænt fyrir mig. Ég svaraði:
Já, hver hefði trúað því að ég yrði
poppstjarna á fertugsaldri? Hann
hló og sagði: Já, ég kannast við þessa
tilfinningu, mér líður oft eins og ég
hafi óvænt gengið inn í uppáhalds-
bíómyndina mína!
Eins og versta dóp
Þuríður: Ég var líka komin á þetta
þegar ég var að koma aftur heim
til Íslands. Að lífið væri orðið alltof
flókið. Ég var komin með þrjú börn
og að semja. Ég nennti ekki að starta
öllu upp á nýtt, stofna band og búa
mér til starfsvettvang. En það er
ekki hægt að skilja við þennan vin.
Þá kemur þessi sorg yfir mann.
Og það er skiljanlegt, ég hef eytt
hálfri ævinni í að spila. Það er það
skemmtilegasta sem ég geri. Það er
geðveiki að hætta því.
Emilía: Að spila á flautu er eins og
ástarsamband. Eða eitthvað verra.
Amma sagði við mig einu sinni:
Þetta er eins og versta dóp, klassíska
tónlistin. Og það er að vissu leyti
rétt. Hún lætur mig aldrei í friði.
Áshildur: Þegar maður er að spila,
túlka tilfinningar, fer hugurinn út
um allt, þú upplifir tilfinningar svo
sterkt, þetta er svo gefandi.
Berglind María: Þetta er mjög
dularfullt ferli. Og persónulegt.
Melkorka: Tónlistin tekur við þar
sem orðunum sleppir. Mér finnst
svo fallegt það sem Sigurður Páls-
son sagði um listina og hlutverk
listamannsins sem með því að vera
trúr samvisku sinni stækkar heim
annarra. Ég tengi við það. Það þarf
úthald og maður þarf að vera fylginn
sér.
Eiga þær ráð til ungra tónlistar-
manna sem vilja ná langt á sínu
sviði?
Berglind María: Það er nauðsyn-
legt að minna á þetta því það er of
lítið um skapandi nálgun í þessu
hefðbundna, klassíska tónlistar-
námi. Það er þess vegna sem margir
skapandi einstaklingar finna sér
aðrar leiðir. Eins og Björk.
Áshildur: Ungt fólk ætti ekki að
vera með öll eggin í sömu körfunni.
Sjá aðeins til.
Þuríður: Vera rosalega forvitin og
prófa alls kyns hluti. Gefa sér tæki-
færi.
Melkorka: Vera fylgin sér og
sínum draumum. Það er pláss fyrir
alla einhvers staðar og það er ekkert
alltaf þar sem maður heldur sjálfur.
↣
GUÐNI FORSETI KOM Á
TÓNLEIKANA OG SPURÐI
HVORT ÞETTA VERKEFNI
HEFÐI VERIÐ ÓVÆNT
FYRIR MIG. ÉG SVARAÐI:
JÁ, HVER HEFÐI TRÚAÐ
ÞVÍ AÐ ÉG YRÐI POPP
STJARNA Á FERTUGS-
ALDRI?
Melkorka
Fram undan er nokkurra mánaða langt tónleikaferðalag um Evrópu. MYND/SANTIAGO FELIPE
1 4 . A P R Í L 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
4
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
7
5
-8
F
2
4
1
F
7
5
-8
D
E
8
1
F
7
5
-8
C
A
C
1
F
7
5
-8
B
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
8
s
_
1
3
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K