Fréttablaðið - 05.05.2018, Blaðsíða 4
IFREIÐA
EKKJAÞJÓNUSTAN
&B
D
Auðbrekku 2
Kópavogi
557-6644 / 823-6644
www.dekkjathjonustan.is
dekkjathjonustan@dekkjathjonustan.is
www.facebook.com/dekkjathjonustan
Allar almennar bílaviðgerðir
Fyllum á A/C kælikerfi
Smur og dekkjaþjónusta
Pólýhúðun á felgum
Dekkjahótel
Ragnar Þór Ingólfsson
formaður VR
boðaði í ræðu 1. maí
baráttu sem
ekki hefur sést
í áratugi yrði
ekki komið til
móts við kröfur
launafólks.
Hann boðaði
skærur, kerfis
bundin verkföll minni hópa í stað
úreltra allsherjarverkfalla. Fleiri
en flugmenn og flugvirkjar gætu
lamað hér flugsamgöngur.
Eiríkur Rögnvaldsson
prófessor í íslenskri málfræði í HÍ
benti á það í grein
í Fréttablaðinu
að kennurum
námsbrautar í
íslensku sem
sinna einkum
íslensku nútíma
máli hefði á
tveimur og hálfu ári
fækkað úr fimm í tvo og hálfan. Á
sama tíma gerðu ytri aðstæður það
brýnna en nokkru sinni að fylgjast
grannt með stöðu íslenskunnar.
Alexandra Briem
transkona sem skipar 3. sætið á
lista Pírata fyrir borgar stjórnar
kosningarnar
gerði sér vonir um
að nafn breyting
hennar myndi
ganga í gegn
í tæka tíð til
þess að hún
fengi sitt rétta
nafn prentað á
at kvæða seðilinn.
Hún fékk hins vegar þær fregnir
hjá Embætti landlæknis að mál
hennar væri stopp í sérfræðinefnd
inni um kynáttunarvanda þar sem
ekki væri búið að skipa nýjan geð
lækni í nefndina.
Þrjú í fréttum
Átök, íslenska
og rétt nafn
TÖLUR VIKUNNAR 29.04.2018 TIL 05.05.2018
350.710
50 þúsund er fjöldi leigjenda
á Íslandi nú. Þeir eru nú 10 þúsund-
um fleiri en fyrir sjö árum.
3 þúsund fyrirtæki um það bil
starfa í ferðaþjónustu hér á landi.
Um 400 eru innan vébanda Sam-
taka ferðaþjónustunnar.
20% launahækkun fékk
forstjóri Hörpu síðasta sumar.
Í febrúar í fyrra hafði kjararáð
ákvarðað forstjóranum 1,3 millj-
ónir í mánaðarlaun. Stjórn Hörpu
hækkaði launin í 1,567 milljónir á
mánuði.
milljarða eru jarðböðin við Mývatn
metin á. Jókst virði þeirra um 1,3
milljarða, eða ríflega 40 prósent, í
fyrra. Í lok árs 2014 var baðstaður-
inn metinn á um 900 milljónir.
43.650
voru ellilífeyrisþegar í
desember árið 2016,
20.333 karlar og 23.317
konur.
4,5
manns bjuggu á Íslandi í lok
1. ársfjórðungs 2018.
STJÓRNSÝSLA Persónuvernd hefur
hafið frumkvæðisrannsókn á því að
Barnaverndarstofa afhenti Stund
inni og RÚV hundruð blaðsíðna um
barnaverndarmál á höfuðborgar
svæðinu. Málið er litið alvarlegum
augum og er lögreglan á höfuð
borgarsvæðinu einnig að skoða það.
Barnaverndarstofa lét frétta
stofu Ríkisútvarpsins og Stundinni
í té gagnapakka um einstök barna
verndarmál, deilur foreldra um
umgengnisrétt við börn og fundar
gerðir svo dæmi séu tekin.
Þó að nöfn og kennitölur hafi
verið afmáð úr gögnunum er mögu
legt að finna út hvaða einstaklinga
er um að ræða. Þetta ætlar Persónu
vernd að rannsaka.
„Gögn sem þessi eru líkast til
viðkvæmustu upplýsingarnar sem
hægt er að komast í. Það er því
mikilvægt að skoða hvernig vinnslu
persónugreinanlegra upplýsinga var
háttað í þessu tilviki. Við höfum
skoðað málið eins og það liggur fyrir
núna og teljum ástæðu til að hefja
frumkvæðisathugun,“ segir Vigdís
Eva Líndal, skrifstofustjóri upplýs
ingaöryggis hjá Persónuvernd.
Ekki er nóg samkvæmt persónu
verndarlögum að afmá nöfn og
kennitölur. Ef hægt er að rekja upp
lýsingar til tiltekinna einstaklinga
eigi þær að fara leynt.
Afhending gagnanna gæti einn
ig varðað við almenn hegningarlög.
Þar segir að opinber starfsmaður
gæti átt yfir höfði sér eins árs fang
elsi segi hann frá einhverju er leynt
á að fara sem hann hefur vitneskju
um í starfi sínu eða embætti.
Heiða Björg Pálmadóttir, starf
andi forstjóri Barnaverndarstofu,
neitar því að hafa brotið lög.
„Beiðni um upplýsingar var
unnin samkvæmt lögum í samráði
við lögfræðinga stofnunarinnar.“
Ásmundur Einar Daðason, vel
ferðarráðherra og æðsti yfirmaður
barnaverndarmála, segir málið
alvarlegt og til skoðunar.
„Við erum búin að kalla til okkar
forsvarsmenn Barnaverndarstofu og
barnaverndarnefndir á höfuð borgar
svæðinu á fund í næstu viku til að
fara yfir þessi mál,“ segir ráðherra.
Samkvæmt heimildum Frétta
blaðsins gætir mikils titrings innan
barnaverndarnefnda á höfuð
borgarsvæðinu vegna afhendingar
gagnanna.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lög
reglustjóri á höfuðborgarsvæðinu,
sagði málið á borði ákærusviðs.
Anna Eygló Karlsdóttir, yfirmað
ur barnaverndar Kópavogs, segir
að mögulega hafi mál úr Kópavogi
verið í gagnapakkanum.
„Bæjarlögmaður og lögfræðingur
barnaverndarnefndar Kópavogs
eru að skoða þetta mál. Við viljum
auðvitað ekki að upplýsingar sem
þessar rati til annarra en þeirra sem
málið varðar,“ segir Anna Eygló.
sveinn@frettabladid.is
Rannsaka afhendingu gagna
Barnaverndarstofu til fjölmiðla
Frumkvæðisathugun Persónuverndar er hafin á því hvernig staðið var að afhendingu gagna Barnaverndar-
stofu til fjölmiðla um viðkvæm málefni. Lekinn er litinn alvarlegum augum. Velferðarráðherra hefur kallað
forstjóra Barnaverndarstofu á teppið í næstu viku. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skoðar einnig málið.
Heiða Björg Pálmadóttir, starfandi forstjóri Barnaverndarstofu, neitar að hafa brotið lög. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Ásmundur Einar
Daðason vel-
ferðarráðherra.
5 . M A Í 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
5
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
B
2
-4
A
1
8
1
F
B
2
-4
8
D
C
1
F
B
2
-4
7
A
0
1
F
B
2
-4
6
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
0
4
s
_
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K