Fréttablaðið - 05.05.2018, Blaðsíða 76
Me ð t i l k o m u netsins rofnaði hins vegar rit-s t j ó r n a r l e g a taumhaldið á þeim og þeir
hafa verið óstöðvandi og stjórn-
lausir upp frá því.
Lausleg yfirferð yfir lesendasíður
Morgunblaðsins og DV á síðasta
áratug liðinnar aldar sýnir svo ekki
verður um villst að skapgerðar-
brestir þeirra sem þurfa endalaust
að deila gremju sinni með alþjóð
hafa lítið breyst.
Næsta víst er einnig að þeir orð-
ljótustu engdust í bældum pirringi
fyrir tíma netsins en illu heilli lenda
skeytasendingar þeirra ekki lengur í
ruslafötunni. thorarinn@frettabladid.is
Taumhald á
virkum í
athugasemdum
Svokallaðir „virkir í
athugasemdum“ eru
áhugaverð og undar-
lega samansett hjörð
fólks sem telur sig
vita allt best og hefur
nánast þráhyggju-
kennda þörf fyrir að
auglýsa visku sína
og djúpan lífsskilning
í athugasemda-
kerfum netmiðlanna.
„Virkir“ hafa að vísu
alltaf verið til en á
pappírsöld létu þeir
helst að sér kveða í
lesendabréfum dag-
blaðanna.
Ljótur leikur
Nafnleynd, dulnefni og fölsk nöfn hafa verið öflugt vopn virkra í athugasemd-um frá því löngu áður en þeir ómerkilegustu í þeirra röðum fóru að sniglast um internetið. Þessu brenndi Mogginn sig á þegar Rósa-lín, sem skoraði á Ómar Ragnarsson að gefa kost á sér í embætti forseta Íslands, reyndist alls ekki vera Rósalín. Brögð voru í tafli og Mogginn brást skjótt við og baðst afsök-unar á því að hafa dregið Ómar inn í ljótan leik.
Varúð: Pamela!
Heldur þótti honum Þor-
birni RÚV ógna almennu
siðgæði landsmanna
með sýningum á sjón-
varpsþáttunum Strand-
verðir, eða Baywatch,
hvar Pamela Anderson
fór mikinn í flegnum,
rauðum sundbol. Allt var
þarna vaðandi í lauslæti
og persónum og leik-
endum ómögulegt að
hylja nekt sína almenni-
lega.
Alltaf eitthvað til að tuða yfir
Skoðanafíklar láta sig allt varða og
einblína ekki aðeins á stjórnmál og
siðapredikanir úr sínum háu söðlum.
Ef maður finnur ekkert til þess að
nöldra yfir, þá er alltaf verið að breyta
einhverju, til dæmis Prins Póló, bara
til þess að skemma fyrir manni.
Ríkisklámið
RÚV hefur löngum
verið vinsælt skot-
mark kverúlanta
sem hafa aldrei átt í
vandræðum með að
finna eitthvað í dag-
skránni til að æðrast
yfir. Oftast er þetta
allt bölvað klám og
sori hvort sem efnið
er innflutt eða heima-
framleiðsla.
Ruglaður Radíusklerkur
Davíð Þór Jónssyni, þá skemmti-
krafti en nú sóknarpresti, hefur
reynst einkar lagið að æra óstöðuga
í áratugi. Hann og Radíusbróðir
hans, Steinn Ármann Magnússon,
gengu fram af henni Soffíu og
fleirum skömmu fyrir aldamót.
Þóttu illa til fara og subbulegir.
Þessi reiðilestur er síðan engla-
söngur miðað við það sem Soffíur
vorra tíma hafa gólað á séra Davíð
eftir að hann gerðist pönksöngvari.
Er þetta frétt?
Ekkert veitir virkum í athugasemdum meiri sálarfró en að skera úr um hvað er fréttnæmt og hvað ekki og krossfesta fjölmiðla og blaðafólk mörgum sinnum á dag fyrir að vera alltaf að segja fréttir sem þeim finnst ekki vera fréttir. Og þar sem hver og einn virkur er mælikvarði allra hluta hafa þeir alltaf rétt fyrir sér.
Félagslegt ofbeldi
Andfélagslegur mótþrói er oft
ríkjandi þáttur í fari virkra í at-
hugasemdum á öllum tímum.
Af hverju má maður ekki reykja
í friði? Þetta er sígilt þrætuepli
þótt nú sé oftar spurt af hverju
maður megi ekki veipa í friði.
5 . M A Í 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
5
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
B
2
-5
3
F
8
1
F
B
2
-5
2
B
C
1
F
B
2
-5
1
8
0
1
F
B
2
-5
0
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
0
4
s
_
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K